AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Earnings Release 2017
May 23, 2017
2194_ir_2017-05-23_b9b5584a-2190-4077-8fd1-6e7a0d5a3604.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
TEKJUVÖXTUR 29,7% Á FYRSTA ÁRSFJÓRÐUNGI 2017
EBITDA 9,3 milljónir evra, mikill innri vöxtur og góður árangur nýrra fyrirtækja en sjómannaverkfall hafði neikvæð áhrif
- Tekjur námu 146,9 milljónum evra, hækkuðu um 33,7 milljónir evra eða 29,7% frá Q1 2016
- Magn í áætlunarsiglingum jókst um 3,0% og tekjur hækkuðu um 8,9 milljónir evra eða 10,7%
- Magn í flutningsmiðlun jókst um 28,9% og tekjur hækkuðu um 24,8 milljónir evra eða 82,6%, aðallega vegna nýrra félaga
- EBITDA nam 9,3 milljónum evra, dróst saman um 0,3 milljónir evra eða 3,3% frá Q1 2016
- Aðlöguð EBITDA nam 11,6 milljónum evra og jókst um 20,5% að teknu tilliti til verkfallsins á Íslandi (1,5 milljónir evra) og annarra einskiptisliða (0,8 milljónir evra)
- Hagnaður nam 0,2 milljónum evra samanborið við 1,8 milljóna evra hagnað í Q1 2016
- Eiginfjárhlutfall var 56,6% og nettóskuldir námu 50,4 milljónum evra í lok mars
- Afkomuspá ársins 2017 er óbreytt, EBITDA á bilinu 57 til 63 milljónir evra
| REKSTRARREIKNINGUR | Q1 2017 | Q1 2016 | Breyting | % 12M 2016 | |
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 146.936 | 113.253 | 33.683 | 29,7% | 513.922 |
| Rekstrargjöld | 137.626 | 103.621 | 34.005 | 32,8% | 460.447 |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA | 9.310 | 9.632 | (322) | (3,3%) | 53.475 |
| Afskriftir | (7.371) | (6.365) | (1.006) | (15,8%) | (28.077) |
| Rekstrarhagnaður - EBIT | 1.939 | 3.267 | (1.328) | (40,6%) | 25.398 |
| Hrein fjármagnsgjöld | (1.510) | (1.365) | (145) | (10,6%) | (345) |
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga | (108) | 100 | (208) | - | 210 |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 321 | 2.002 | (1.681) | (84,0%) | 25.263 |
| Tekjuskattur | (128) | (157) | 29 | 18,5% | (3.368) |
| Hagnaður tímabilsins | 193 | 1.845 | (1.652) | (89,5%) | 21.895 |
| Hagnaður á hlut í evrum | 0,0003 | 0,0099 | (0,0096) | - | 0,1148 |
| Tekjubreyting | 29,7% | 0,5% | 2,9% | ||
| EBITDA / rekstrartekjur | 6,3% | 8,5% | 10,4% | ||
| EBIT / rekstrartekjur | 1,3% | 2,9% | 4,9% | ||
| Nettóskuldir / LTM-EBITDA | 0,95 | 0,68 | 0,78 | ||
| EFNAHAGSREIKNINGUR | 31.03.2017 31.03.2016 | Breyting | % | 31.12.2016 | |
| Eignir | 414.652 | 368.468 | 46.184 | 12,5% | 391.691 |
| Fastafjármunir | 265.160 | 237.638 | 27.522 | 11,6% | 253.256 |
| Veltufjármunir | 149.492 | 130.830 | 18.662 | 14,3% | 138.435 |
| Eigið fé | 234.879 | 220.796 | 14.083 | 6,4% | 243.775 |
| Skuldir | 179.773 | 147.672 | 32.101 | 21,7% | 147.916 |
| Langtímaskuldir | 69.933 | 54.023 | 15.910 | 29,5% | 64.456 |
| Skammtímaskuldir | 109.840 | 93.649 | 16.191 | 17,3% | 83.460 |
| Vaxtaberandi skuldir | 91.733 | 80.764 | 10.969 | 13,6% | 81.149 |
| Nettóskuldir | 50.377 | 33.427 | 16.950 | 50,7% | 41.606 |
| Efnislegar eignir / heildareignir | 86,6% | 92,9% | 89,4% | ||
| Eiginfjárhlutfall | 56,6% | 59,9% | 62,2% | ||
| SJÓÐSTREYMI | Q1 2017 | Q1 2016 | Breyting | % 12M 2016 | |
| Handbært fé frá rekstri | 7.535 | 12.680 | (5.145) | (40,6%) | 48.667 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (17.479) | (9.947) | (7.532) | (75,7%) | (39.907) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 11.633 | 8.861 | 2.772 | (31,3%) | (4.761) |
| Breyting á handbæru fé | 1.689 | 11.594 | (9.905) | - | 3.999 |
| Handbært fé í upphafi tímabils | 39.543 | 35.983 | 3.560 | 9,9% | 35.983 |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | 124 | (240) | 364 | - | (439) |
| Handbært fé í lok tímabils | 41.356 | 47.337 | (5.981) | (12,6%) | 39.543 |
Fjárhæðir eru í þúsundum evra
GYLFI SIGFÚSSON FORSTJÓRI
"Rekstrartekjur Eimskips á fyrsta ársfjórðungi 2017 jukust um 29,7% samanborið við sama tímabil í fyrra og námu 146,9 milljónum evra. Vöxturinn skýrist þannig að 18,2% er vegna nýrra fyrirtækja í samstæðunni og 11,5% vegna innri vaxtar, þrátt fyrir sjómannaverkfallið hér á landi sem hafði áhrif á flutt magn frá landinu. Innri vöxtur er tilkominn vegna vaxtar í flutningsmagni og hækkandi verða á alþjóðaflutningamarkaði.
Sjómannaverkfallið, sem stóð yfir frá 15. desember 2016 til 19. febrúar 2017, hafði neikvæð áhrif á flutt magn af fiski og tengdri þjónustu. EBITDA nam 9,3 milljónum evra samanborið við 9,6 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Neikvæð áhrif verkfallsins á EBITDA námu 1,5 milljónum evra. Stjórnvaldssekt Fjármálaeftirlitsins að fjárhæð 0,4 milljónir evra, sem Eimskip er ósammála og mun vísa til dómstóla, var gjaldfærð á fjórðungnum og kostnaður tengdur kaupum á nýjum fyrirtækjum nam 0,4 milljónum evra. Að teknu tilliti til þessara einskiptisliða nam aðlöguð EBITDA 11,6 milljónum evra og hækkaði um 20,5% á milli ára. Rekstur nýju félaganna Mareco og Extraco gengur vel og er í samræmi við væntingar okkar, en hlutdeild þeirra í EBITDA fjórðungsins nam 1,5 milljónum evra. Að teknu tilliti til verkfallsins og annarra einskiptisliða skilaði innri vöxtur starfseminnar 3,8% aukningu EBITDA, þrátt fyrir aukinn kostnað vegna aukinnar afkastagetu siglingakerfis félagsins og minna flutningsmagns í Noregi.
Rekstrargjöld hækkuðu um 32,8% samanborið við fyrsta ársfjórðung 2016. Þar af hækkuðu laun og launatengd gjöld um 19,6%, einkum vegna styrkingar íslensku krónunnar. Hækkun skýrist einkum af nýjum fyrirtækjum í samstæðunni, launakostnaði, hærri flutningsgjöldum frá alþjóðlegu skipafélögunum, hærri olíukostnaði, vexti í afkastagetu siglingakerfisins og ofangreindum einskiptisliðum. Hagnaður fjórðungsins nam 0,2 milljónum evra samanborið við 1,8 milljónir evra í fyrra, einkum vegna 1,0 milljónar evra hækkunar á afskriftum vegna aukinna fjárfestinga.
Tekjur af áætlunarsiglingum félagsins námu 92,1 milljón evra á fjórðungnum og hækkuðu um 8,9 milljónir evra eða 10,7%. Magn í áætlunarsiglingum jókst um 3,0% samanborið við sama tímabil í fyrra. EBITDA af áætlunarsiglingum dróst saman um 2,5 milljónir evra á fjórðungnum, aðallega vegna verkfallsins og annarra einskiptisliða hér að ofan sem námu alls 2,3 milljónum evra. Rekstur flutningsmiðlunar gekk vel, en magn jókst um 28,9% og tekjur námu 54,8 milljónum evra og hækkuðu um 24,8 milljónir evra eða 82,6%. Ný félög í samstæðunni skýra 69,4% af tekjuvextinum en 13,2% koma frá annarri flutningsmiðlunarstarfsemi. EBITDA af flutningsmiðlun hækkaði um 113,1%, en 79,6% voru vegna nýrra fyrirtækja og 33,5% vegna innri vaxtar.
Eimskip og Royal Arctic Line á Grænlandi undirrituðu í janúar samkomulag um samstarf, en það er háð kynningu og staðfestingu frá viðeigandi yfirvöldum ef við á. Eimskip undirritaði á sama tíma samning við skipasmíðastöð í Kína um smíði á tveimur 2.150 gámaeininga skipum með ísklassa og Polar Code sem uppfylla munu kröfur um nýja umhverfisstaðla. Gert er ráð fyrir að skipin verði afhent á árinu 2019. Samningsverð hvors skips nemur um 32 milljónum dollara þar sem 40% eru greidd á meðan á smíði stendur og 60% við afhendingu. Eimskip tryggði í apríl 80% fjármögnun af smíðaverði skipanna frá þýska bankanum KfW IPEX-Bank GmbH, en lánið er í evrum, til 15 ára og á mjög hagstæðum vaxtakjörum. Royal Arctic Line undirritaði einnig samning um smíði á einu sambærilegu skipi við sömu skipasmíðastöð.
Eimskip keypti 80% hlut í flutningsmiðlunarfyrirtækinu Mareco í Belgíu í janúar. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Antwerpen, það hefur starfsstöð í Sao Paulo í Brasilíu og er sérhæft í frystiflutningsmiðlun, einkum til Vestur-, Mið- og Suður-Afríku. Helstu vörutegundir eru sjávarafurðir, kjúklingur, svínakjöt og nautakjöt. Mareco flytur um 32 þúsund gámaeiningar á ári og eru áætlaðar árstekjur þess um 60 milljónir evra.
Snemma í apríl tilkynnti Eimskip um kaup á 51% hlut í CSI Group LLC sem er með höfuðstöðvar í Boston í Bandaríkjunum fyrir um 1,0 milljón evra. Kaupin styrkja stöðu Eimskips á markaði með gáma þar sem CSI er sérhæft í viðskiptum með gáma. Árstekjur CSI nema um 5,0 milljónum evra með um 10% EBITDA hlutfalli.
Þann 3. apríl 2017 höfnuðu norsk samkeppnisyfirvöld kaupum Eimskips á norska flutningafyrirtækinu Nor Lines AS. Eimskip mun halda áfram að leita leiða til að styrkja starfsemi sína í Noregi.
Eimskip vinnur áfram að innri vexti og kaupum á fyrirtækjum sem falla að starfsemi félagsins og auka virði þess. Félagið mun því halda áfram að meta nýja kosti í fjárfestingum á fyrirtækjum og skipum.
Fyrsti ársfjórðungur var í samræmi við væntingar okkar eins og kynnt var við útgáfu ársuppgjörs 2016 í febrúar, þar með talið áætluð áhrif sjómannaverkfallsins hér á landi. Fyrsti ársfjórðungur er venjulega sá fjórðungur sem skilar lægstri framlegð í rekstri félagsins. Afkomuspá Eimskips fyrir árið 2017 er óbreytt frá því sem kynnt var í febrúar og er EBITDA á bilinu 57 til 63 milljónir evra."
REKSTUR FYRSTA ÁRSFJÓRÐUNGS
Rekstrartekjur Eimskips á fyrsta ársfjórðungi 2017 námu 146,9 milljónum evra samanborið við 113,3 milljónir evra á sama tímabili árið áður og hækkuðu um 33,7 milljónir evra eða 29,7%. Af tekjuvextinum má rekja 18,2% til nýrra félaga í samstæðunni og 11,5% skýrast af innri vexti þrátt fyrir sjómannaverkfallið. Innri vöxtur eykst vegna hækkandi verða í alþjóðlegri flutningsmiðlun og aukins flutningsmagns. Tekjur af áætlunarsiglingum námu 92,1 milljón evra á fjórðungnum, hækkuðu um 8,9 milljónir evra frá fyrra ári eða 10,7%. Flutt magn í áætlunarsiglingum jókst um 3,0%, einkum vegna aukins innflutnings til Íslands. Rekstur flutningsmiðlunar gekk vel, en magn jókst um 28,9% og tekjur námu 54,8 milljónum evra og hækkuðu um 24,8 milljónir evra eða 82,6%. Ný félög í samstæðunni skýra vöxtinn að mestu leyti en 13,2% eru vegna innri vaxtar.
Rekstrargjöld fyrirtækisins námu 137,6 milljónum evra samanborið við 103,6 milljónir evra á fyrsta fjórðungi síðasta árs og jukust um 32,8%. Rekstrarkostnaður nam 105,8 milljónum evra samanborið við 77,0 milljónir evra í fyrra og jókst um 37,4%. Rekstrarkostnaður tengdur nýjum fyrirtækjum skýrir 24,2% en kostnaðaraukning vegna innri vaxtar var 13,2%, einkum vegna hækkandi verða í alþjóðlegri flutningsmiðlun og hækkandi olíuverðs. Laun og launatengd gjöld námu 31,9 milljónum evra á tímabilinu og hækkuðu um 19,6% frá 2016. Þar af skýrast 13,3% af styrkingu íslensku krónunnar, 3,5% af almennum launahækkunum og auknum umsvifum og 2,8% af nýjum félögum.
EBITDA fjórðungsins nam 9,3 milljónum evra samanborið við 9,6 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og lækkaði um 0,3 milljónir evra eða 3,3%. Aðlöguð EBITDA nam 11,6 milljónum evra og hækkaði um 2,0 milljónir evra eða 20,5% á milli ára að teknu tilliti til þriggja einskiptisliða. Sjómannaverkfallið hafði 1,5 milljóna evra neikvæð áhrif á EBITDA, sekt frá Fjármálaeftirlitinu hér á landi (FME) nam 0,4 milljónum evra og nam kostnaður tengdur fjárfestingum í nýjum fyrirtækjum 0,4 milljónum evra. Nýju fyrirtækin í samstæðunni, Mareco og Extraco, hækkuðu EBITDA um 1,5 milljónir evra.
EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 5,3 milljónum evra samanborið við 7,7 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og lækkaði um 2,5 milljónir evra. EBITDA hlutfall áætlunarsiglinga var 5,7% samanborið við 9,3% EBITDA hlutfall á fyrra ári. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi félagsins nam 4,0 milljónum evra, hækkaði um 2,1 milljón evra eða 113,1%, en þar af skýrast 79,6% af nýjum fyrirtækjum og 33,5% af innri vexti. EBITDA hlutfall flutningsmiðlunar var 7,4% samanborið við 6,3% á fyrsta ársfjórðungi 2016.
Afskriftir námu 7,4 milljónum evra, hækkuðu um 1,0 milljón evra eða 15,8%. Hækkunin skýrist aðallega af auknum fjárfestingum í rekstrarfjármunum og nýjum fyrirtækjum innan samstæðunnar.
Hrein fjármagnsgjöld námu 1,5 milljónum evra samanborið við 1,4 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Fjármagnsgjöld námu 1,1 milljón evra samanborið við 0,7 milljónir evra í fyrra sem skýrist af auknum vaxtaberandi skuldum. Nettó gengistap nam 0,6 milljónum evra í ár samanborið við 0,8 milljónir á fyrsta ársfjórðungi 2016.
Hagnaður fjórðungsins nam 0,2 milljónum evra samanborið við 1,8 milljónir evra á sama tímabili í fyrra.
Á eftirfarandi myndum kemur fram að flutt magn í áætlunarsiglingum félagsins og flutningsmiðlun á fyrsta ársfjórðungi hefur vaxið jafnt og þétt 2013 til 2017 samanborið við fyrsta ársfjórðung árið áður. Magnvísitalan á hægri ásnum miðast við að magnið árið 2010 sé 100.
Breytingar voru gerðar á siglingakerfi félagsins í lok febrúar 2017 þar sem nýrri rauðri leið var bætt við og þjónustu grænu og gráu leiðarinnar var breytt. Boðið er upp á vikulegar strandsiglingar til að styðja við aukna grósku í starfsemi á Íslandi. Í maí tók Helsingborg við sem viðkomuhöfn í Svíþjóð í stað Halmstad. Með nýja siglingakerfinu eykst afkastageta til og frá Evrópu og Norður-Ameríku um 7-11%.
Félagið er með 21 skip í rekstri, þar af þrettán eigin skip og átta leiguskip. Fjórtán skipanna eru í áætlunarsiglingum, þrjú í 'spot' þjónustu, eitt í stórflutningum og þrjú í ferjusiglingum. Eimskip hefur keypt Sophia, 700 gámaeininga skip sem byggt var 2008. Skipið var afhent í maí, hefur fengið nafnið Selfoss og kemur í stað Ice Star á rauðu leiðinni.
Rekstur félagsins hefur verið að vaxa á undanförnum árum eins og sjá má á eftirfarandi myndum sem sýna hvernig tekjur og EBITDA skiptast á fjórðunga á árunum 2013 til 2017. Verulegur vöxtur var í rekstrartekjum og EBITDA á árunum 2015 og 2016 og tekjuvöxtur heldur áfram á fyrsta fjórðungi þessa árs. EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2017 tekur tillit til einskiptisliða samtals að fjárhæð 2,3 milljónir evra. Þar af eru 1,5 milljónir evra vegna áhrifa sjómannaverkfallsins hér á landi, 0,4 milljónir evra vegna sektrar frá Fjármálaeftirlitinu og 0,4 milljónir evra vegna kostnaðar tengdum fjárfestingum í nýjum fyrirtækjum.
Í milljónum evra
EFNAHAGUR
- Heildareignir námu 414,7 milljónum evra í lok mars 2017
- Eiginfjárhlutfall var 56,6%
- Vaxtaberandi skuldir námu 91,7 milljónum evra
- Nettóskuldir námu 50,4 milljónum evra
Fastafjármunir námu 265,2 milljónum evra í lok mars 2017 samanborið við 253,3 milljónir evra í árslok 2016. Nettó fjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 3,6 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 10,6 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi í fyrra.
Veltufjármunir námu 149,5 milljónum evra í lok fjórðungsins samanborið við 138,4 milljónir evra í árslok 2016. Breytingin skýrist af breytingum á handbæru fé og viðskiptakröfum. Handbært fé nam 41,4 milljónum evra í lok fjórðungsins samanborið við 39,5 milljónir evra í árslok. Viðskiptakröfur jukust úr 96,6 milljónum evra í árslok 2016 í 105,0 milljónir evra í lok mars vegna árstíðabundinna sveiflna, gengismunar og nýrra félaga í samstæðunni.
Eigið fé nam 234,9 milljónum evra í lok mars og var eiginfjárhlutfallið 56,6%. Til samanburðar var eiginfjárhlutfallið 62,2% í árslok 2016. Aðalfundur sem haldinn var þann 23. mars 2017 samþykkti að þann 19. apríl yrði greiddur arður til hluthafa að fjárhæð 1.269,1 milljón króna, jafngildi 10,6 milljóna evra, sem lækkaði eigið fé og hækkaði skammtímaskuldir í lok fjórðungsins.
Skammtímaskuldir námu 109,8 milljónum evra í lok fyrsta ársfjórðungs samanborið við 83,5 milljónir evra í árslok 2016. Hækkunin á fjórðungnum skýrist af árstíðabundnum sveiflum, gengismuni, nýjum fyrirtækjum í samstæðunni og hækkun vaxtaberandi skammtímaskulda.
Vaxtaberandi skuldir námu 91,7 milljónum evra í lok mars og hækkuðu úr 81,1 milljón evra í lok árs 2016. Eimskip samdi í janúar við Íslandsbanka um lánalínu til 18 mánaða að fjárhæð 47,0 milljónir evra. Félagið dró 7,0 milljónir evra á línuna í tengslum við kaupin á Mareco og skýrir það að hluta hækkun vaxtaberandi skulda á fjórðungnum. Nettóskuldir námu 50,4 milljónum evra samanborið við 41,6 milljónir evra í árslok 2016.
SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR
- Handbært fé frá rekstri nam 7,5 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2017
- Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 17,5 milljónum evra
- Handbært fé var 41,4 milljónir evra í lok mars
Handbært fé frá rekstri nam 7,5 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2017 samanborið við 12,7 milljónir evra á sama tímabili í fyrra.
Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 17,5 milljónum evra samanborið við 9,9 milljónir evra á fyrsta fjórðungi 2016. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 6,4 milljónum evra og var stærsta fjárfestingin stækkun á kæligeymslu í Sundahöfn. Til samanburðar námu heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum 11,2 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2016.
Nettó fjármögnunarhreyfingar voru 11,6 milljónir evra samanborið við 8,9 milljónir í fyrra. Hækkunin er aðallega tilkomin vegna kaupanna á Mareco og þar með breytingar á hlutdeild minnihluta.
Handbært fé var 41,4 milljónir evra í lok mars samanborið við 39,5 milljónir evra í árslok 2016.
ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2017
Afkomuspá Eimskips fyrir árið 2017 er óbreytt frá því sem kynnt var í febrúar og er EBITDA á bilinu 57 til 63 milljónir evra.
Fyrsti ársfjórðungur var í samræmi við væntingar félagsins eins og kynnt var við útgáfu ársuppgjörs 2016 í febrúar, þar með talin áætluð áhrif sjómannaverkfallsins hér á landi. Fyrsti ársfjórðungur er venjulega sá fjórðungur sem skilar lægstri framlegð í rekstri félagsins. Horfur fyrir það sem eftir er ársins eru áfram jákvæðar. Gert er ráð fyrir vexti í innflutningi til Íslands og einnig er reiknað með að magn tengt Færeyjum vaxi. Í ljósi þess að kaupin á Nor Lines gengu ekki eftir í Noregi metur Eimskip nú næstu skref. Reiknað er með vexti í flutningsmiðlun á árinu, bæði innri vexti með auknu magni, hærri tekjum og aukinni framlegð og einnig í gegnum nýju fyrirtækin í flutningsmiðlun. Gert er ráð fyrir hækkandi verðum á alþjóðlegum flutningamörkuðum og olíuverð hefur farið hækkandi samanborið við fyrra ár. Samkeppni verður áfram hörð á markaðssvæði félagsins, sérstaklega í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi. Aukning hefur verið í Trans-Atlantic flutningum eftir að félagið jók afkastagetu sína til og frá Norður-Ameríku en samdráttur vegna kvótaskerðingar á Nýfundnalandi er fyrirsjáanlegur.
Almenn óvissa er varðandi efnahagsaðstæður á heimsvísu, flutningsmagn, verð á flutningum, olíukostnað, gengisþróun og samkeppni.
HLUTHAFAR
Markaðsvirði Eimskips var 560,0 milljónir evra eða 62,9 milljarðar króna þann 23. maí 2017
Lokaverð bréfa Eimskips hækkaði um 36,9% á árinu 2016. OMXI8 vísitalan lækkaði á sama tíma um 9,0%. Lokaverð ársins 2016 var 322,50 krónur á hlut og nam meðaltalslokaverð ársins 2016 274,24 krónum á hlut. Lokaverð þann 23. maí 2017 var 337,00 krónur á hlut, en það jafngildir hækkun um 4,5% frá árslokum 2016 og var markaðsvirði félagsins miðað við fjölda útistandandi hluta því 62,9 milljarðar króna þann dag sem jafngildir 560,0 milljónum evra. Til samanburðar var markaðsvirði félagsins 45,1 milljarður króna eða 323,3 milljónir evra þann 25. maí 2016.
Fjöldi útgefinna hluta er 200.000.000, þar af eru 186.639.230 útistandandi hlutir og 13.360.770 eigin hlutir. Fjöldi hluthafa í árslok 2016 var 806, en hluthafar voru 779 talsins þann 22. maí 2017.
Aðalfundur Eimskips, sem haldinn var þann 23. mars 2017, samþykkti arðgreiðslu sem nam 6,80 krónum á hlut. Nam heildararðgreiðslan 1.269,1 milljón króna eða 10,6 milljónum evra. Arðgreiðsludagur var 19. apríl 2017.
LYKILSTÆRÐIR ÁRSFJÓRÐUNGA
| REKSTUR | Q1 2017 | Q4 2016 | Q3 2016 | Q2 2016 | Q1 2016 |
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 146.936 | 140.497 | 134.070 | 126.102 | 113.253 |
| Rekstrargjöld | 137.626 | 130.592 | 116.310 | 109.924 | 103.621 |
| EBITDA | 9.310 | 9.905 | 17.760 | 16.178 | 9.632 |
| EBIT | 1.939 | 1.907 | 10.843 | 9.381 | 3.267 |
| Hagnaður tímabilsins | 193 | 1.914 | 9.381 | 8.755 | 1.845 |
| EBITDA / rekstrartekjur | 6,3% | 7,0% | 13,2% | 12,8% | 8,5% |
| EBIT / rekstrartekjur | 1,3% | 1,4% | 8,1% | 7,4% | 2,9% |
| EFNAHAGUR | 31.03.2017 | 31.12.2016 | 30.09.2016 | 30.06.2016 | 31.03.2016 |
| Eignir | 414.652 | 391.691 | 379.111 | 371.003 | 368.468 |
| Eigið fé | 234.879 | 243.775 | 240.061 | 229.928 | 220.796 |
| Skuldir | 179.773 | 147.916 | 139.050 | 141.075 | 147.672 |
| Vaxtaberandi skuldir | 91.733 | 81.149 | 79.958 | 78.846 | 80.764 |
| Nettóskuldir | 50.377 | 41.606 | 34.836 | 31.383 | 33.427 |
| Eiginfjárhlutfall | 56,6% | 62,2% | 63,3% | 62,0% | 59,9% |
| SJÓÐSTREYMI | Q1 2017 | Q4 2016 | Q3 2016 | Q2 2016 | Q1 2016 |
| Handbært frá rekstri | 7.535 | 14.485 | 5.831 | 15.671 | 12.680 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (17.479) | (18.442) | (7.225) | (4.293) | (9.947) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 11.633 | (1.306) | (1.213) | (11.103) | 8.861 |
| Handbært fé í lok tímabils | 41.356 | 39.543 | 45.122 | 47.463 | 47.337 |
Fjárhæðir eru í þúsundum evra
RANNSÓKN SAMKEPPNISEFTIRLITSINS
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins stendur enn yfir. Eimskip mun áfram leggja sig fram um að veita svör í samræmi við lagalegar skyldur félagsins. Það er félaginu fyrir bestu að niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir sem allra fyrst.
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lagt stjórnvaldssekt á félagið að fjárhæð 50 milljónir króna, um 0,4 milljónir evra, í tengslum við birtingu á uppgjöri fyrsta ársfjórðungs 2016 og var sektin gjaldfærð á fyrsta ársfjórðungi 2017. Þar sem Eimskip er ósammála lagatúlkun FME og niðurstöðu þess hefur félagið ákveðið að vísa málinu til dómstóla.
UM EIMSKIP
Eimskip er leiðandi flutningafyrirtæki á Norður-Atlantshafi með tengingar við alþjóðlega markaði og sérhæfingu í flutningsmiðlun um allan heim, með þá framtíðarsýn að vera framúrskarandi í flutningalausnum og þjónustu. Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 61 starfsstöð í 20 löndum, er með 21 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.720 starfsmönnum.
KYNNINGARFUNDUR 24. MAÍ 2017
Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 24. maí 2017 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung 2017. Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.
SAMÞYKKI STJÓRNAR
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti árshlutareikning samstæðu Eimskips fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2017 á stjórnarfundi þann 23. maí 2017.
FJÁRHAGSDAGATAL
- Q2 2017: Uppgjör birt 24. ágúst 2017
- Q3 2017: Uppgjör birt 21. nóvember 2017
- Q4 2017: Uppgjör birt 22. febrúar 2018
- Aðalfundur 2018: 22. mars 2018
FREKARI UPPLÝSINGAR
- Gylfi Sigfússon forstjóri, sími: 525 7202
- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, sími: 525 7202
- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: [email protected]
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.