Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands Earnings Release 2017

Aug 25, 2017

2194_ir_2017-08-24_53915621-e944-4a82-821b-f500f40f609a.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

EBITDA Á ÖÐRUM ÁRSFJÓRÐUNGI Í SAMRÆMI VIÐ VÆNTINGAR Afkomuspá ársins 2017 er óbreytt, EBITDA á bilinu 57 til 63 milljónir evra

  • Tekjur námu 173,1 milljón evra, hækkuðu um 47,0 milljónir evra eða 37,2% frá Q2 2016
  • Magn í áætlunarsiglingum jókst um 3,5% og tekjur hækkuðu um 21,5 milljónir evra eða 22,4%
  • Magn í flutningsmiðlun jókst um 39,6% og tekjur hækkuðu um 25,4 milljónir evra eða 84,3%, þar af voru 22,0 milljónir evra vegna nýrra félaga
  • EBITDA nam 16,7 milljónum evra, jókst um 0,5 milljónir evra eða 3,2% frá Q2 2016
  • Kostnaður jókst um 1,1 milljón evra vegna ójafnvægis í flutningum á Íslandi, en staðsetningargjald gáma vegur á móti þeim kostnaði á seinni helmingi ársins
  • Hagnaður nam 4,9 milljónum evra samanborið við 8,8 milljóna evra hagnað í Q2 2016
  • Aðallega vegna breytinga á gengismun að fjárhæð 3,2 milljónir evra
  • Eiginfjárhlutfall var 54,5% og nettóskuldir námu 77,8 milljónum evra í lok júní
  • Afkomuspá ársins 2017 er óbreytt, EBITDA á bilinu 57 til 63 milljónir evra

Fjárhæðir eru í þúsundum evra

REKSTRARREIKNINGUR Q2 2017 Q2 2016 Breyting % 6M 2017 6M 2016 Breyting %
Rekstrartekjur 173.060 126.102 46.958 37,2% 319.996 239.355 80.641 33,7%
Rekstrargjöld 156.357 109.924 46.433 42,2% 293.983 213.545 80.438 37,7%
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA 16.703 16.178 525 3,2% 26.013 25.810 203 0,8%
Afskriftir (7.485) (6.797) (688) (10,1%) (14.856) (13.162) (1.694) (12,9%)
Rekstrarhagnaður - EBIT 9.218 9.381 (163) (1,7%) 11.157 12.648 (1.491) (11,8%)
Hrein fjármagnsgjöld (2.836) 706 (3.542) - (4.346) (659) (3.687) -
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga (65) 115 (180) - (173) 215 (388) -
Hagnaður fyrir tekjuskatt 6.317 10.202 (3.885) (38,1%) 6.638 12.204 (5.566) (45,6%)
Tekjuskattur (1.383) (1.447) 64 4,4% (1.511) (1.604) 93 5,8%
Hagnaður tímabilsins 4.934 8.755 (3.821) (43,6%) 5.127 10.600 (5.473) (51,6%)
Hagnaður á hlut í evrum 0,0253 0,0467 (0,0214) (45,9%) 0,0255 0,0565 (0,0310) (54,8%)
Tekjubreyting 37,2% (0,4%) 33,7% 0,0%
EBITDA / rekstrartekjur 9,7% 12,8% 8,1% 10,8%
EBIT / rekstrartekjur 5,3% 7,4% 3,5% 5,3%
Nettóskuldir / LTM-EBITDA 1,45 0,60 1,45 0,60
EFNAHAGSREIKNINGUR 30.06.2017 30.06.2016 Breyting % 30.06.2017 31.12.2016 Breyting %
Eignir 434.390 371.003 63.387 17,1% 434.390 391.691 42.699 10,9%
Fastafjármunir 280.665 236.271 44.394 18,8% 280.665 253.256 27.409 10,8%
Veltufjármunir 153.725 134.732 18.993 14,1% 153.725 138.435 15.290 11,0%
Eigið fé 236.706 229.928 6.778 2,9% 236.706 243.775 (7.069) (2,9%)
Skuldir 197.684 141.075 56.609 40,1% 197.684 147.916 49.768 33,6%
Langtímaskuldir 91.208 50.957 40.251 79,0% 91.208 64.456 26.752 41,5%
Skammtímaskuldir 106.476 90.118 16.358 18,2% 106.476 83.460 23.016 27,6%
Vaxtaberandi skuldir 114.376 78.846 35.530 45,1% 114.376 81.149 33.227 40,9%
Nettóskuldir 77.768 31.383 46.385 147,8% 77.768 41.606 36.162 86,9%
Efnislegar eignir / heildareignir 86,2% 92,7% 86,2% 89,4%
Eiginfjárhlutfall 54,5% 62,0% 54,5% 62,2%
SJÓÐSTREYMI Q2 2017 Q2 2016 Breyting % 6M 2017 6M 2016 Breyting %
Handbært fé frá rekstri 11.779 15.671 (3.892) (24,8%) 19.155 28.351 (9.196) (32,4%)
Fjárfestingarhreyfingar (24.989) (4.293) (20.696) - (40.051) (14.240) (25.811) -
Fjármögnunarhreyfingar 9.176 (11.103) 20.279 - 18.551 (2.242) 20.793 -
Breyting á handbæru fé (4.034) 275 (4.309) - (2.345) 11.869 (14.214) -
Handbært fé í upphafi tímabils 41.356 47.337 (5.981) (12,6%) 39.543 35.983 3.560 9,9%
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé (714) (149) (565) - (590) (389) (201) -
Handbært fé í lok tímabils 36.608 47.463 (10.855) (22,9%) 36.608 47.463 (10.855) (22,9%)

GYLFI SIGFÚSSON FORSTJÓRI

"EBITDA á öðrum ársfjórðungi var í samræmi við væntingar félagsins. Tekjur á fjórðungnum hækkuðu um EUR 47,0 milljónir eða 37,2% samanborið við sama tímabil í fyrra og námu 173,1 milljón evra. Tekjur af áætlunarsiglingum hækkuðu um 22,4% og flutningsmiðlunartekjur hækkuðu um 84,3%, einkum vegna nýrra félaga í samstæðunni. Rekstrargjöld fjórðungsins hækkuðu um 46,4 milljónir evra eða 42,2% samanborið við annan ársfjórðung í fyrra. Rekstrargjöld í áætlunarsiglingum hækkuðu um 27,9% og um 80,6% í flutningsmiðlun. Hækkun kostnaðar í áætlunarsiglingum skýrist einkum af kostnaði tengdum aukinni afkastagetu siglingakerfisins, kostnaði tengdum ójafnvægi í flutningum til og frá Íslandi og hærri olíukostnaði. Einnig hærri launakostnaði bæði vegna styrkingar íslensku krónunnar og vegna almennra launahækkana og aukinna umsvifa. Hækkun rekstrargjalda í flutningsmiðlun er aðallega tilkomin vegna nýrra flutningsmiðlunarfyrirtækja og hærri verða á alþjóðaflutningamarkaði.

Eimskip jók afkastagetu siglingakerfisins um 7-11% í febrúar með því að breyta siglingaleiðum og bæta við einu skipi, en við það hækkaði kostnaður kerfisins á meðan öflun nýrra tekna tekur lengri tíma. Ójafnvægi á milli innog útflutnings tengdum Íslandi hefur aukist, þar sem innflutningur jókst verulega á fyrstu sex mánuðum ársins, einkum vegna flutninga á bifreiðum og byggingavörum, á sama tíma og útflutningur dróst saman, einkum vegna sjómannaverkfallsins á fyrsta ársfjórðungi. Þetta ójafnvægi leiðir til aukins kostnaðar vegna yfirvinnu í hafnarstarfseminni og kostnaðar vegna leigu á skipum til að annast endurstaðsetningu gáma og flutning á viðbótarmagni. Eimskip hefur brugðist við þessum viðbótarkostnaði með því að auka hagkvæmni í hafnarstarfsemi og með því að leggja á gámastaðsetningargjald (Container Positioning Charge, CPC) frá 1. júní 2017.

EBITDA nam 16,7 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 16,2 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi í fyrra, en 1,1 milljónar evra kostnaður vegna ójafnvægis í flutningum hafði áhrif á afkomu fjórðungsins.

Tekjur af áætlunarsiglingum félagsins námu 117,5 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi og hækkuðu um 21,5 milljónir evra eða 22,4%. Magn í áætlunarsiglingum jókst um 3,5% samanborið við sama tímabil í fyrra. EBITDA af áætlunarsiglingum nam 11,8 milljónum evra og dróst saman um 1,1 milljón evra eða 8,7%, einkum vegna hærri kostnaðar að fjárhæð 2,1 milljón evra vegna aukinnar afkastagetu siglingakerfisins og ójafnvægis í flutningum.

Rekstur flutningsmiðlunar gekk vel á fjórðungnum, en magn jókst um 39,6% og tekjur námu 55,6 milljónum evra og hækkuðu um 25,4 milljónir evra eða 84,3%. Ný félög í samstæðunni skýra 70,3% af tekjuvextinum en 14,0% koma frá annarri flutningsmiðlunarstarfsemi. EBITDA af flutningsmiðlun nam 4,9 milljónum evra og hækkaði um 1,7 milljónir evra eða 50,1%, en þar af voru 40,0% vegna nýrra fyrirtækja og 10,1% vegna innri vaxtar.

Árangur fjórðungsins litaðist af gengissveiflum. Rekstrarreikningur félagsins er tiltölulega vel varinn fyrir gengissveiflum en efnahagsreikningurinn er opnari gagnvart þeim. Um 6,5% veiking Bandaríkjadollars gagnvart evru og um 3,7% styrking íslensku krónunnar gagnvart evru á öðrum ársfjórðungi leiddi til 2,0 milljóna evra gengistaps. Samanborið við 1,2 milljóna evra gengishagnað á öðrum ársfjórðungi 2016 nemur neikvæður viðsnúningur á milli ára 3,2 milljónum evra. Hagnaður fjórðungsins nam 4,9 milljónum evra samanborið við 8,8 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi í fyrra, einkum vegna viðsnúningsins í gengismun á milli ára.

Tekjur félagsins námu 320,0 milljónum evra á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 239,4 milljónir evra á sama tímabili á síðasta ári. EBITDA fyrir fyrstu sex mánuðina nam 26,0 milljónum evra og jókst um 0,2 milljónir evra samanborið við fyrra ár. Að teknu tilliti til einskiptisliða á fyrsta ársfjórðungi jókst aðlöguð EBITDA fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2017 um 2,3 milljónir evra eða 9,7% samanborið við EBITDA í fyrra. Kostnaður að fjárhæð 3,8

milljónir evra vegna breytts siglingakerfis og vegna ójafnvægis í flutningum hafði einnig neikvæð áhrif á EBITDA fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Hagnaður nam 5,1 milljón evra samanborið við 10,6 milljónir evra á fyrstu sex mánuðum ársins 2016. Flutt magn í áætlunarsiglingum jókst um 3,3% samanborið við fyrstu sex mánuðina í fyrra og jókst magn í flutningsmiðlun um 34,3%.

Eimskip undirritaði í janúar samning við skipasmíðastöð í Kína um smíði á tveimur 2.150 gámaeininga skipum með ísklassa og Polar Code sem afhent verða á árinu 2019. Fyrsta samningsgreiðslan, að fjárhæð 11,7 milljónir evra, fór fram í maí.

Eimskip keypti í júní 75% í flutningsmiðlunarfyrirtækinu SHIP-LOG A/S sem er með höfuðstöðvar í Árósum í Danmörku. Fyrirtækið er með sterka stöðu í hitastýrðum flutningum á matvælum og lyfjum. Ársvelta fyrirtækisins nemur um 17 milljónum evra og er EBITDA hlutfall 6-7%.

Eimskip vinnur áfram að innri vexti og kaupum á fyrirtækjum sem falla að starfsemi félagsins og auka virði þess. Félagið breytti siglingakerfi sínu í febrúar og bætti við skipi sem jók afkastagetu kerfisins um 7-11%. Breytingarnar á kerfinu höfðu í för með sér aukningu kostnaðar um 2,7 milljónir evra á fyrri helmingi ársins. Þessi fjárfesting í innri vexti gefur félaginu færi á að annast þá miklu aukningu sem orðið hefur í inniflutningi til Íslands. Ójafnvægið í magni í inn- og útflutningi til og frá Íslandi hefur leitt til mikils álags og óhagræðis í starfseminni í Sundahöfn. Gripið hefur verið til aðgerða til að draga úr kostnaði og lagt á áðurnefnt gámastaðsetningargjald til að vega upp á móti kostnaði vegna ójafnvægisins. Félagið er nú í góðri stöðu til að snúa vexti í flutningsmagni í aukinn hagnað á seinni helmingi ársins.

Nýju fjárfestingarnar eru að ganga vel, þær falla vel að starfsemi Eimskips og auka virði félagsins. Stefna félagsins um vöxt með kaupum á sérhæfðum flutningsmiðlunarfyrirtækjum er að skila góðum árangri. EBITDA af flutningsmiðlun hefur aukist verulega undanfarin þrjú ár, úr 3,8 milljónum evra fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2015 í 9,0 milljónir evra fyrir fyrstu sex mánuði 2017, en það jafngildir um 136% hækkun. Unnið er að því að samþætta starfsemi nýju fyrirtækjanna til að skapa öflugt net og tækifæri til vaxtar með nýjum vörutegundum, mörkuðum, samlegð og samræmdri sölustarfsemi. Öðrum markmiðum hefur einnig verið náð með þessum kaupum með því að auka hlutfall félaga með litla rekstrarfjármuni í rekstri, skapa hærri arðsemi og fá aukna landræðilega dreifingu tekna og EBITDA. Félagið mun halda áfram að meta nýja kosti í fjárfestingum í fyrirtækjum og skipum.

EBITDA var í samræmi við væntingar okkar á fyrstu sex mánuðum ársins. EBITDA í júlí var sterk og flutt magn fyrstu þrjár vikur ágústmánaðar er á áætlun. Afkomuspá fyrir árið 2017 er óbreytt og er EBITDA á bilinu 57 til 63 milljónir evra."

REKSTUR ANNARS ÁRSFJÓRÐUNGS

Rekstrartekjur Eimskips á öðrum ársfjórðungi 2017 námu 173,1 milljón evra samanborið við 126,1 milljónir evra á sama tímabili árið áður og hækkuðu um 47,0 milljónir evra eða 37,2%. Flutt magn í áætlunarsiglingum jókst um 3,5%, einkum vegna aukins innflutnings til Íslands, útflutnings frá Færeyjum og áætlunarsiglinga í Noregi. Tekjur af áætlunarsiglingum námu 117,5 milljónum evra og hækkuðu um 22,4%. Rekstur flutningsmiðlunar gekk vel á fjórðungnum, en magn jókst um 39,6% og tekjur námu 55,6 milljónum evra og hækkuðu um 84,3%. Tekjuvöxturinn skiptist þannig að 70,3% koma frá nýjum félögum í samstæðunni en 14,0% eru vegna innri vaxtar í kjölfar hærri verða í alþjóðlegri flutningsmiðlun og aukins flutningsmagns.

Rekstrargjöld félagsins námu 156,4 milljónum evra samanborið við 109,9 milljónir evra á öðrum fjórðungi síðasta árs og jukust um 46,4 milljónir evra eða 42,2%. Rekstrargjöld áætlunarsiglinga námu 102,2 milljónum evra og hækkuðu um 27,9%. Hækkunin skýrist af kostnaði tengdum aukningu á afkastagetu siglingakerfisins, kostnaði

tengdum ójafnvægi í flutningum til og frá Íslandi og hærri olíukostnaði. Einnig hærri launakostnaði bæði vegna styrkingar íslensku krónunnar og vegna almennra launahækkana og aukinna umsvifa. Rekstrargjöld flutningsmiðlunar námu 54,1 milljón evra og hækkuðu um 80,6%. Hækkun rekstrargjalda í flutningsmiðlun skýrist, eins og tekjuvöxturinn, einkum af nýjum fyrirtækjum, hærri verðum í alþjóðlegri flutningsmiðlun og auknu flutningsmagni.

EBITDA fjórðungsins nam 16,7 milljónum evra samanborið við 16,2 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi í fyrra og hækkaði um 0,5 milljónir evra eða 3,2%. Óreglulegur kostnaður tengdur ójafnvægi í áætlunarkerfinu og kostnaðar tengdum fjárfestingum í nýjum fyrirtækjum samtals að fjárhæð 1,2 milljónir evra hafði áhrif á afkomu fjórðungsins. Nýju fyrirtækin í samstæðunni hækkuðu EBITDA annars ársfjórðungs um 1,4 milljónir evra.

EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 11,8 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 12,9 milljónir evra á öðrum fjórðungi síðasta árs og lækkaði um 1,1 milljónir evra eða 8,7%. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi félagsins nam 4,9 milljónum evra, hækkaði um 1,7 milljónir evra eða 50,1%, en þar af skýrast 40,0% af nýjum fyrirtækjum og 10,1% af innri vexti.

Afskriftir námu 7,5 milljónum evra, hækkuðu um 0,7 milljónir evra eða 10,1%. Hækkunin skýrist aðallega af auknum fjárfestingum í rekstrarfjármunum og nýjum fyrirtækjum innan samstæðunnar.

Hrein fjármagnsgjöld námu 2,8 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi samanborið við 0,7 milljóna evra hreinar fjármunatekjur á sama tímabili í fyrra, en breytingin er neikvæður viðsnúningur að fjárhæð 3,5 milljónir evra. Gengissveiflur á fjórðungnum leiddu til gengistaps að fjárhæð 2,0 milljónir evra samanborið við 1,2 milljóna evra gengishagnað á öðrum ársfjórðungi 2016. Gengistapið stafar einkum af um 6,5% veikingu Bandaríkjadollars gagnvart evru og um 3,7% styrkingu íslensku krónunnar gagnvart evru á fjórðungnum.

Hagnaður annars ársfjórðungs nam 4,9 milljónum evra samanborið við 8,8 milljónir evra á sama tímabili 2016 og dróst saman um 3,8 milljónir evra sem skýrist að mestu af gengissveiflum, fjármagnskostnaði og auknum afskriftum.

REKSTUR FYRSTU SEX MÁNAÐA ÁRSINS

  • Tekjur námu 320,0 milljónum evra, hækkuðu um 80,6 milljónir evra eða 33,7% frá 6M 2016
  • Magn í áætlunarsiglingum jókst um 3,3% og tekjur hækkuðu um 30,4 milljónir evra eða 17,0%
  • Magn í flutningsmiðlun jókst um 34,3% og tekjur hækkuðu um 50,2 milljónir evra eða 83,5%, vegna nýrra fyrirtækja og innri vaxtar
  • EBITDA nam 26,0 milljónum evra og jókst um 0,2 milljónir evra eða 0,8% frá 6M 2016
  • Aðlöguð EBITDA var 28,3 milljónir evra og jókst um 9,7% að teknu tilliti til einskiptisliða að fjárhæð 2,3 milljónir evra á fyrstu sex mánuðum ársins

Rekstrartekjur Eimskips fyrstu sex mánuði ársins 2017 námu 320,0 milljónum evra samanborið við 239,4 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og hækkuðu um 80,6 milljónir evra eða 33,7%. Flutt magn í áætlunarsiglingum jókst um 3,3% með vexti á öllum þremur mörkuðunum og magnaukning í flutningsmiðlun var 34,3%, vegna nýrra fyrirtækja og innri vaxtar.

Rekstrargjöld félagsins námu 294,0 milljónum evra samanborið við 213,5 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og jukust um 80,4 milljónir evra eða 37,7%. Aukningin skýrist af nýjum fyrirtækjum, aukinni afkastagetu siglingakerfisins, hærri olíukostnaði, hærri launakostnaði bæði vegna styrkingar íslensku krónunnar og vegna almennra launahækkana og aukinna umsvifa, hærri verðum í alþjóðlegri flutningsmiðlun og auknu flutningsmagni.

EBITDA tímabilsins nam 26,0 milljónum evra samanborið við 25,8 milljónir evra á fyrstu sex mánuðum síðasta árs og jókst um 0,2 milljónir evra eða 0,8%. Aðlöguð EBITDA var 28,3 milljónir evra, jókst um 2,3 milljónir evra á milli ára eða 9,7%, að teknu tilliti til einskiptisliða samtals að fjárhæð 2,3 milljónir evra. Sjómannaverkfallið hafði 1,5 milljóna evra neikvæð áhrif, kostnaður tengdur kaupum á fyrirtækjum nam 0,4 milljónum evra og loks nam sekt frá Fjármálaeftirlitinu 0,4 milljónum evra. Ný fyrirtæki í samstæðunni hækkuðu EBITDA um 2,9 milljónir evra fyrstu sex mánuði ársins.

Kostnaður að fjárhæð 3,8 milljónir evra vegna breytts siglingakerfis og vegna ójafnvægis í flutningum hafði einnig neikvæð áhrif á EBITDA fyrir fyrstu sex mánuði ársins.

Hagnaður fyrir fyrstu sex mánuði ársins nam 5,1 milljón evra samanborið við 10,6 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og dróst saman um 5,5 milljónir evra, en breytingin skýrist að mestu af gengissveiflum, fjármagnskostnaði og hækkuðum afskriftum.

Á eftirfarandi myndum kemur fram að flutt magn fyrstu sex mánuði ársins í áætlunarsiglingum félagsins og flutningsmiðlun hefur vaxið jafnt og þétt á árunum 2013 til 2017 samanborið við sama tímabil árið áður. Magnvísitalan á hægri ásnum miðast við að magnið árið 2010 sé 100.

Breytingar voru gerðar á siglingakerfi félagsins í lok febrúar 2017 þar sem nýrri rauðri leið var bætt við og þjónustu grænu og gráu leiðarinnar var breytt. Boðið er upp á vikulegar strandsiglingar til að styðja við aukna grósku í starfsemi á Íslandi. Í maí tók Helsingborg við sem viðkomuhöfn í Svíþjóð í stað Halmstad. Með nýja siglingakerfinu eykst afkastageta til og frá Evrópu og Norður-Ameríku um 7-11%.

Félagið er með 22 skip í rekstri, þar af þrettán eigin skip og níu leiguskip. Fjórtán skipanna eru í áætlunarsiglingum, þrjú í 'spot' þjónustu, eitt í stórflutningum og fjögur í ferjusiglingum. Eimskip keypti Sophia, 700 gámaeininga skip sem byggt var 2008, og gaf því nafnið Selfoss. Skipið var afhent í maí og kom í stað Ice Star á rauðu leiðinni.

Rekstur félagsins hefur verið að vaxa á undanförnum árum eins og sjá má á eftirfarandi myndum sem sýna hvernig tekjur og EBITDA skiptast á fjórðunga á árunum 2013 til 2017. Verulegur vöxtur var í rekstrartekjum og EBITDA á árunum 2015 og 2016 og tekjuvöxtur heldur áfram á fyrstu tveim fjórðungum þessa árs. EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2017 tekur tillit til einskiptisliða samtals að fjárhæð 2,3 milljónir evra. Þar af eru 1,5 milljónir evra vegna áhrifa sjómannaverkfallsins hér á landi, 0,4 milljónir evra vegna sektar frá Fjármálaeftirlitinu og 0,4 milljónir evra vegna kostnaðar tengdum fjárfestingum í nýjum fyrirtækjum.

EFNAHAGUR

  • Heildareignir námu 434,4 milljónum evra í lok júní
  • Eiginfjárhlutfall var 54,5%
  • Vaxtaberandi skuldir námu 114,4 milljónum evra
  • Nettóskuldir námu 77,8 milljónum evra

Fastafjármunir námu 280,7 milljónum evra í lok júní 2017 samanborið við 253,3 milljónir evra í árslok 2016. Nettó fjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 24,2 milljónum evra samanborið við 15,0 milljónir evra á fyrstu sex mánuðum 2016. Stærstu fjárfestingarnar voru vegna skipasmíðinnar í Kína, kaup á Selfossi og stækkun kæligeymslu í Sundahöfn.

Veltufjármunir námu 153,7 milljónum evra í lok júní samanborið við 138,4 milljónir evra í árslok 2016. Breytingin skýrist af breytingum á handbæru fé og viðskiptakröfum. Handbært fé nam 36,6 milljónum evra í lok júní samanborið við 39,5 milljónir evra í árslok. Viðskiptakröfur jukust úr 96,6 milljónum evra í árslok 2016 í 114,0 milljónir evra í lok júní vegna nýrra félaga í samstæðunni, árstíðabundinna sveiflna og gengismunar.

Eigið fé nam 236,7 milljónum evra í lok júní og var eiginfjárhlutfallið 54,5%. Til samanburðar var eiginfjárhlutfallið 62,2% í árslok 2016. Arður að fjárhæð 1.269,1 milljón króna, eða 10,6 milljónir evra, var greiddur hluthöfum í apríl 2017.

Skammtímaskuldir námu 106,5 milljónum evra í lok júní samanborið við 83,5 milljónir evra í árslok 2016. Hækkunin á fjórðungnum skýrist af árstíðabundnum sveiflum, gengismun, nýjum fyrirtækjum í samstæðunni og hækkun vaxtaberandi skammtímaskulda.

Vaxtaberandi skuldir námu 114,4 milljónum evra í lok júní og hækkuðu úr 81,1 milljón evra í lok árs 2016. Eimskip samdi í janúar við Íslandsbanka um lánalínu til 18 mánaða að fjárhæð 47,0 milljónir evra. Félagið hefur dregið 30,2 milljónir evra á línuna í tengslum við fjárfestingar og skýrir það að mestu hækkun vaxtaberandi skulda á tímabilinu. Nettóskuldir námu 77,8 milljónum evra samanborið við 41,6 milljónir evra í árslok 2016.

SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR

  • Handbært fé frá rekstri nam 19,2 milljónum evra á fyrstu sex mánuðum ársins 2017
  • Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 25,0 milljónum evra
  • Handbært fé var 36,6 milljónir evra í lok júní

Handbært fé frá rekstri nam 19,2 milljónum evra fyrstu sex mánuði ársins 2017 samanborið við 28,4 milljónir evra á sama tímabili í fyrra.

Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 40,1 milljón evra samanborið við 14,2 milljónir evra á sama tímabili 2016. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 27,3 milljónum evra, þar af námu viðhaldsfjárfestingar 8,7 milljónum evra. Stærstu fjárfestingarnar voru vegna skipasmíðinnar í Kína, kaupa á Selfossi og stækkun á kæligeymslu í Sundahöfn. Til samanburðar námu heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum 17,5 milljónum evra á fyrstu sex mánuðum 2016, þar af voru viðhaldsfjárfestingar að fjárhæð 9,4 milljónir evra.

Nettó fjármögnunarhreyfingar voru jákvæðar um 18,6 milljónir evra samanborið við 2,2 milljóna evra neikvæðar fjármögnunarhreyfingar á fyrri helmingi fyrra árs. Breytingin er aðallega tilkomin vegna arðgreiðslu og vegna nýrra lána í tengslum við fjárfestingar.

Handbært fé var 36,6 milljónir evra í lok júní samanborið við 39,5 milljónir evra í árslok 2016.

ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2017

Afkomuspá Eimskips fyrir árið 2017 er óbreytt frá því sem kynnt var í febrúar og er EBITDA á bilinu 57 til 63 milljónir evra.

Fyrri helmingur ársins var í samræmi við væntingar félagsins eins og fram hefur komið. Sjómannaverkfallið hér á landi hafði neikvæð áhrif á fyrsta ársfjórðung og annar ársfjórðungur varð fyrir neikvæðum áhrifum af auknu ójafnvægi í fluttu magni til og frá Íslandi sem olli auknum kostnaði á fjórðungnum. Félagið hefur frá 1. júní lagt á gámastaðsetningargjald (Container Positioning Charge, CPC) til að vega upp á móti þessum aukna kostnaði. Rekstur nýrra fyrirtækja hefur gengið í samræmi við væntingar og þau eru að skila auknu verðmæti til starfseminnar. Horfur fyrir það sem eftir er ársins eru jákvæðar. EBITDA í júlí var sterk og flutt magn fyrstu þrjár vikur ágústmánaðar er í samræmi við væntingar. Gert er ráð fyrir auknum innflutningi til Íslands og að magn í útflutningi aukist á síðari hluta ársins. Einnig er gert ráð fyrir auknum útflutningi frá Færeyjum. Gert er ráð fyrir að rekstur flutningsmiðlunar verði áfram öflugur og að hann vaxi bæði vegna nýrra fyrirtækja og innri vaxtar. Almennt er búist við að verð á alþjóðlegum flutningamörkuðum og olíuverð á síðari hluta ársins verði í meira jafnvægi samanborið við verulegar hækkanir á fyrri hluta árs 2017. Samkeppni verður áfram hörð á markaðssvæði félagsins, sérstaklega í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi. Aukning hefur verið í Trans-Atlantic flutningum eftir að félagið jók afkastagetu sína til og frá Norður-Ameríku en samdráttur vegna kvótaskerðingar á Nýfundnalandi er fyrirsjáanlegur.

Almenn óvissa er varðandi efnahagsaðstæður á heimsvísu, flutningsmagn, verð á flutningum, olíukostnað, gengisþróun og samkeppni.

HLUTHAFAR

Markaðsvirði Eimskips var 452,8 milljónir evra eða 57,3 milljarðar króna þann 24. ágúst 2017

Lokaverð bréfa Eimskips var 322,50 krónur á hlut og nam meðaltalslokaverð ársins 2016 274,24 krónum á hlut. Lokaverð þann 24. ágúst 2017 var 307,00 krónur á hlut og var markaðsvirði félagsins miðað við fjölda útistandandi hluta því 57,3 milljarðar króna þann dag sem jafngildir 452,8 milljónum evra. Til samanburðar var markaðsvirði félagsins 53,6 milljarðar króna eða 406,4 milljónir evra þann 24. ágúst 2016.

Fjöldi útgefinna hluta er 200.000.000, þar af eru 186.639.230 útistandandi hlutir og 13.360.770 eigin hlutir. Fjöldi hluthafa í árslok 2016 var 806, en hluthafar voru 742 talsins þann 23. ágúst 2017.

Aðalfundur Eimskips, sem haldinn var þann 23. mars 2017, samþykkti arðgreiðslu sem nam 6,80 krónum á hlut. Nam heildararðgreiðslan 1.269,1 milljón króna eða 10,6 milljónum evra. Arðgreiðsludagur var 19. apríl 2017.

LYKILSTÆRÐIR ÁRSFJÓRÐUNGA

REKSTUR Q2 2017 Q1 2017 Q4 2016 Q3 2016 Q2 2016
Rekstrartekjur 173.060 146.936 140.497 134.070 126.102
Rekstrargjöld 156.357 137.626 130.592 116.310 109.924
EBITDA 16.703 9.310 9.905 17.760 16.178
EBIT 9.218 1.939 1.907 10.843 9.381
Hagnaður tímabilsins 4.934 193 1.914 9.381 8.755
EBITDA / rekstrartekjur 9,7% 6,3% 7,0% 13,2% 12,8%
EBIT / rekstrartekjur 5,3% 1,3% 1,4% 8,1% 7,4%
EFNAHAGUR 30.06.2017 31.03.2017 31.12.2016 30.09.2016 30.06.2016
Eignir 434.390 414.652 391.691 379.111 371.003
Eigið fé 236.706 234.879 243.775 240.061 229.928
Skuldir 197.684 179.773 147.916 139.050 141.075
Vaxtaberandi skuldir 114.376 91.733 81.149 79.958 78.846
Nettóskuldir 77.768 50.377 41.606 34.836 31.383
Eiginfjárhlutfall 54,5% 56,6% 62,2% 63,3% 62,0%
SJÓÐSTREYMI Q2 2017 Q1 2017 Q4 2016 Q3 2016 Q2 2016
Handbært frá rekstri 11.779 7.535 14.485 5.831 15.671
Fjárfestingarhreyfingar (24.989) (17.479) (18.442) (7.225) (4.293)
Fjármögnunarhreyfingar 9.176 11.633 (1.306) (1.213) (11.103)
Handbært fé í lok tímabils 36.608 41.356 39.543 45.122 47.463

Fjárhæðir eru í þúsundum evra

RANNSÓKN SAMKEPPNISEFTIRLITSINS

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins stendur enn yfir. Eimskip mun áfram leggja sig fram um að veita svör í samræmi við lagalegar skyldur félagsins. Það er félaginu fyrir bestu að niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir sem allra fyrst.

FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lagt stjórnvaldssekt á félagið að fjárhæð 50 milljónir króna, um 0,4 milljónir evra, í tengslum við birtingu á uppgjöri fyrsta ársfjórðungs 2016 og var sektin gjaldfærð á fyrsta ársfjórðungi 2017. Þar sem Eimskip er ósammála lagatúlkun FME og niðurstöðu þess hefur félagið vísað málinu til dómstóla.

UM EIMSKIP

Eimskip er leiðandi flutningafyrirtæki á Norður-Atlantshafi með tengingar við alþjóðlega markaði og sérhæfingu í flutningsmiðlun um allan heim, með þá framtíðarsýn að vera framúrskarandi í flutningalausnum og þjónustu.

Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 63 starfsstöðvar í 20 löndum, er með 22 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.790 starfsmönnum.

KYNNINGARFUNDUR 25. ÁGÚST 2017

Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 25. ágúst 2017 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir annan ársfjórðung og fyrstu sex mánuði ársins 2017. Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.

SAMÞYKKI STJÓRNAR

Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti árshlutareikning samstæðu Eimskips fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2017 á stjórnarfundi þann 24. ágúst 2017.

FJÁRHAGSDAGATAL

  • Q3 2017: Uppgjör birt 21. nóvember 2017
  • Q4 2017: Uppgjör birt 22. febrúar 2018
  • Aðalfundur 2018: 22. mars 2018

FREKARI UPPLÝSINGAR

  • Gylfi Sigfússon forstjóri, sími: 525 7202
  • Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, sími: 525 7202
  • Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: [email protected]

TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA

Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.