Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands Earnings Release 2016

May 26, 2016

2194_er_2016-05-26_32583e86-c745-4dd4-95a3-41b717c160a5.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

EBITDA JÓKST UM 66,5% Á FYRSTA ÁRSFJÓRÐUNGI 2016 Afkomuspá fyrir 2016 hækkuð í 49 til 53 milljónir evra

  • Rekstrartekjur námu 113,3 milljónum evra, jukust um 0,6 milljónir evra frá Q1 2015
  • EBITDA nam 9,6 milljónum evra samanborið við 5,8 milljónir evra og jókst um 66,5%
  • Hagnaður nam 1,8 milljónum evra samanborið við 1,5 milljónir evra og jókst um 21,1%
  • Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 8,1% frá Q1 2015
  • Flutningsmagn í flutningsmiðlun jókst um 5,9% frá Q1 2015
  • Eiginfjárhlutfall var 59,9% og nettóskuldir námu 33,4 milljónum evra í lok mars
  • Afkomuspá ársins 2016 hefur verið hækkuð í 49 til 53 milljónir evra
Rekstrarreikningur Q1 2016 Q1 2015 Breyting % 12M 2015
Rekstrartekjur 113.253 112.663 590 0,5% 499.581
Rekstrargjöld 103.621 106.879 (3.258) (3,0%) 454.384
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA 9.632 5.784 3.848 66,5% 45.197
Afskriftir (6.365) (5.735) (630) (11,0%) (24.729)
Rekstrarhagnaður - EBIT 3.267 4
9
3.218 - 20.468
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) (1.365) 2.170 (3.535) - 419
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga 100 9
2
8 8,7% 331
Hagnaður fyrir tekjuskatt 2.002 2.311 (309) (13,4%) 21.218
Tekjuskattur (157) (787) 630 80,1% (3.416)
Hagnaður tímabilsins 1.845 1.524 321 21,1% 17.802
Leiðrétt fyrir einskiptisliðum
Tekjubreyting 0,5% 8,1% 10,6%
EBITDA / rekstrartekjur 8,5% 5,1% 9,0%
EBIT / rekstrartekjur 2,9% 0,0% 4,1%
Nettóskuldir / LTM EBITDA 0,68 0,79 0,78
Efnahagsreikningur 31.03.2016 31.03.2015 Breyting % 31.12.2015
Eignir 368.468 341.538 26.930 7,9% 355.157
Fastafjármunir 237.638 221.322 16.316 7,4% 233.280
Veltufjármunir 130.830 120.216 10.614 8,8% 121.877
Eigið fé 220.796 214.879 5.917 2,8% 228.124
Skuldir 147.672 126.659 21.013 16,6% 127.033
Langtímaskuldir 54.023 42.761 11.262 26,3% 55.550
Skammtímaskuldir 93.649 83.898 9.751 11,6% 71.483
Vaxtaberandi skuldir 80.764 64.703 16.061 24,8% 71.401
Nettóskuldir 33.427 30.277 3.150 10,4% 35.418
Efnislegar eignir / heildareignir 92,9% 93,3% 92,6%
Eiginfjárhlutfall 59,9% 62,9% 64,2%
Sjóðstreymi Q1 2016 Q1 2015 Breyting % 12M 2015
Handbært fé frá rekstri 12.680 3.083 9.597 311,3% 37.357
Fjárfestingarhreyfingar (9.947) (8.495) (1.452) (17,1%) (35.206)
Fjármögnunarhreyfingar 8.861 (1.367) 10.228 - (5.173)
Breyting á handbæru fé 11.594 (6.779) 18.373 - (3.022)
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé (240) 1.666 (1.906) - (534)

Fjárhæðir í þúsundum evra

GYLFI SIGFÚSSON FORSTJÓRI

"Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, nam 9,6 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2016 og jókst um 66,5% samanborið við sama tímabil í fyrra. Rekstrartekjur fjórðungsins voru 113,3 milljónir evra og jukust um 0,5%, en lækkandi verð í alþjóðlegri flutningsmiðlun drógu úr tekjuvexti. Félagið hefur ráðist í aðgerðir á undanförnum mánuðum og hefur breytt siglingakerfinu til að mæta betur erfiðum aðstæðum yfir vetrarmánuðina. Vegna hagræðingarverkefna og aukins kostnaðaraðhalds dróst rekstrarkostnaður að frátöldum launakostnaði saman á fjórðungnum. Rekstrargjöld að meðtöldum launakostnaði lækkuðu um 3,0%, sem er góður árangur í ljósi mikilla kostnaðarhækkana vegna kjarasamninga á Íslandi. Hagnaður tímabilsins nam 1,8 milljónum evra og jókst um 21,1% samanborið við fyrsta ársfjórðung 2015, þrátt fyrir 3,7 milljóna evra neikvæðan viðsnúning á gengismun. Handbært fé frá rekstri nam 12,7 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 3,1 milljón evra á sama tímabili í fyrra og nam handbært fé 47,3 milljónum evra í lok mars. Þetta er besti fyrsti ársfjórðungur í rekstri félagsins frá árinu 2009, en fyrsti ársfjórðungur er sá fjórðungur sem að jafnaði skilar lægstri rekstrarafkomu hjá félaginu.

Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst um 8,1% frá fyrsta ársfjórðungi síðasta árs. Góður vöxtur var í flutningum tengdum Íslandi, Færeyjum og Noregi og sérstaklega góður í Noregi í samanburði við erfiðan fyrsta fjórðung í fyrra. Við munum hér eftir kynna í okkar uppgjörum breytingar á heildarflutningsmagni í flutningsmiðlun, bæði hvað varðar frystiflutningsmiðlun og almenna flutningsmiðlun, sem jókst um 5,9% frá sama tímabili í fyrra.

Eimskip og grænlenska skipafélagið Royal Arctic Line hafa undirritað viljayfirlýsingu um að tengja Grænland við alþjóðlegt siglingakerfi Eimskips. Félögin ráðgera að fjárfesta í og reka þrjú um það bil 2.000 gámaeininga skip sem verða hönnuð og smíðuð fyrir sérstakar aðstæður á Norður-Atlantshafi og munu þau tengja flutningakerfi Grænlands og Íslands við Skandinavíu, Evrópu og Norður-Ameríku. Nýju skipin verða hagkvæmari og umhverfisvænni í rekstri. Þetta verður þýðingarmikið samstarf sem skapa mun kostnaðarhagræði, auka afkastagetu og er skref í átt til framtíðar í endurnýjunaráætlun skipa Eimskips. Áætlað er að það taki tvö til þrjú ár að hanna og smíða skipin.

Eimskip heldur áfram að meta möguleg fjárfestingartækifæri til vaxtar. Félagið nýtir sér sterka fjárhagsstöðu sína nú þegar samþætting í greininni heldur áfram. Við erum komin langt í fyrirtækjakaupum erlendis og gerum ráð fyrir að þeim verði lokið á þriðja ársfjórðungi.

Annar ársfjórðungur lofar góðu samanborið við síðasta ár. Afkomuspá fyrir árið 2016 hefur verið hækkuð og er nú á bilinu 49 til 53 milljónir evra í stað þess að vera á bilinu 46 til 50 milljónir evra eins og kynnt var í febrúar síðastliðnum. Áætluð afkoma tengd nýjum fjárfestingum í fyrirtækjum og innviðum og kostnaður því tengdur eru ekki talin með í afkomuspá ársins."

REKSTUR FYRSTA ÁRSFJÓRÐUNGS

Rekstrartekjur Eimskips námu 113,3 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2016 samanborið við 112,7 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og jukust um 0,5% á milli ára. Tekjur af áætlunarsiglingum félagsins námu 83,2 milljónum evra samanborið við 78,6 milljónir evra á fyrsta fjórðungi síðasta árs og jukust um 5,9%. Magn í áætlunarsiglingum jókst um 8,1% frá sama tímabili 2015, einkum vegna góðs vaxtar í flutningum tengdum Íslandi, Færeyjum og Noregi. Sérstaklega góður vöxtur var í Noregi samanborið við erfiðan fyrsta ársfjórðung þar í landi á árinu 2015. Tekjur af flutningsmiðlun námu 30,0 milljónum evra samanborið við 34,1 milljón evra á fyrsta ársfjórðungi 2015 og drógust saman um 11,8%, einkum vegna lækkandi verða frá alþjóðlegu

skipafélögunum í Asíu. Eimskip mun hér eftir kynna breytingar á heildarflutningsmagni í flutningsmiðlun, bæði frystiflutningsmiðlun og almennri flutningsmiðlun, en hingað til hefur einungis magn í frystiflutningsmiðlun verið sýnt. Magn í flutningsmiðlun á fyrsta ársfjórðungi jókst um 5,9% frá sama tímabili í fyrra.

Rekstrargjöld fyrirtækisins námu 103,6 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 106,9 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi í fyrra og drógust saman um 3,0%. Þar af nam rekstrarkostnaður 77,0 milljónum evra samanborið við 84,7 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi 2015 og dróst saman um 9,1%. Félagið breytti siglingakerfi sínu haustið 2015 til að auka áreiðanleika þjónustunnar og til að auðvelda reksturinn yfir vetrartímann og hafa þessar breytingar bætt reksturinn. Viðhaldskostnaður skipa var einnig lægri en á fyrsta fjórðungi í fyrra. Ráðist hefur verið í ýmis hagræðingarverkefni sem eru að skila sér í lægri rekstrarkostnaði. Þá hefur kostnaður í flutningsmiðlun félagsins dregist saman vegna áhrifa af lægri verðum frá alþjóðlegu skipafélögunum. Laun og launatengd gjöld námu 26,6 milljónum evra á tímabilinu og jukust um 20,2% frá fyrra ári. Þar af skýrast 10,5% af almennum launahækkunum, 3,5% af gengisbreytingum, 3,3% af auknum umsvifum og yfirvinnu og 2,9% af fyrirtækjum sem bættust við samstæðu Eimskips á síðasta ári.

EBITDA fjórðungsins nam 9,6 milljónum evra samanborið við 5,8 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og jókst um 66,5%. EBITDA hlutfall tímabilsins var 8,5% samanborið við 5,1% á fyrsta ársfjórðungi 2015. EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 7,7 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 4,6 milljónir á sama tímabili í fyrra og jókst um 68,2%. EBITDA hlutfall áætlunarsiglinga var 9,3% samanborið við 5,8% EBITDA hlutfall á fyrsta ársfjórðungi 2015. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi félagsins nam 1,9 milljón evra samanborið við 1,2 milljónir evra á sama tímabili 2015 og jókst um 59,9%. EBITDA hlutfall flutningsmiðlunar var 6,3% og jókst frá því að vera 3,5% á fyrsta fjórðungi síðasta árs.

Afskriftir fjórðungsins námu 6,4 milljónum evra samanborið við 5,7 milljónir evra á sama tímabili í fyrra. Aukningin skýrist aðallega af fjárfestingum í rekstrarfjármunum, dokkunum skipa og nýjum fyrirtækjum innan samstæðunnar.

Rekstrarhagnaður fjórðungsins, EBIT, nam 3,3 milljónum evra samanborið við 49 þúsund evrur á fyrsta ársfjórðungi 2015.

Nettó fjármagnskostnaður nam 1,4 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 2,2 milljóna evra nettó fjármunatekjur á sama tímabili í fyrra. Gengissveiflur, þar sem gengi meðal annars Bandaríkjadollars og kínversks Yuan veiktist gagnvart evru, leiddu til 0,8 milljóna evra gengistaps á fjórðungnum samanborið við 2,9 milljóna evra gengishagnað á sama fjórðungi í fyrra. Þessi neikvæði viðsnúningur skýrir 3,7 milljóna evra breytingu á fjármagnsliðum frá fyrra ári. Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga nam 0,1 milljón evra og var sambærileg við sama tímabil í fyrra.

Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 2,0 milljónum evra samanborið við 2,3 milljóna evra hagnað fyrir tekjuskatt á fyrsta ársfjórðungi 2015. Lækkunin skýrist af neikvæðum viðsnúningi í fjármagnsliðum.

Gjaldfærður tekjuskattur fjórðungsins nam 0,2 milljónum evra samanborið við 0,8 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi í fyrra.

Hagnaður tímabilsins nam 1,8 milljónum evra samanborið við 1,5 milljónar evra hagnað á sama tímabili 2015. Þetta er 21,1% aukning hagnaðar, þrátt fyrir fyrrnefndan neikvæðan viðsnúning í gengismun.

Eins og fram kemur á eftirfarandi myndum hefur flutt magn í áætlunarsiglingum félagsins og flutningsmiðlun á fyrsta ársfjórðungi aukist jafnt og þétt frá fyrsta ársfjórðungi ársins á undan. Magnvísitalan á hægri ásnum miðast við að magnið árið 2010 sé 100.

Á árinu 2015 voru gerðar ýmsar breytingar á siglingakerfi félagsins til að auka afkastagetu þess og áreiðanleika þjónustu við viðskiptavini. Í febrúar 2015 voru græna leiðin, sem siglir á milli Íslands og Norður-Ameríku með viðkomu í Sortland í Noregi, og rauða leiðin, sem annaðist strandsiglingar við Ísland með tengingu við Evrópu, sameinaðar í nýja græna leið með þremur skipum sem sigla beint á milli Evrópu og Norður-Ameríku með viðkomum á Íslandi. Í október 2015 fékk gráa leiðin aukið hlutverk þar sem öðru 500 gámaeininga leiguskipi var bætt við leiðina til að auka afkastagetu og bætt var við viðkomum í Århus í Danmörku, Halmstad í Svíþjóð og í Swinoujscie í Póllandi.

Félagið er með 20 skip í rekstri, þar af þrettán eigin skip og sjö leiguskip. Þrettán skipanna eru í áætlunarsiglingum, þrjú eru í 'spot' þjónustu, eitt er í stórflutningum og þrjú í ferjusiglingum.

Rekstur félagsins hefur verið stöðugur undanfarin ár eins og sjá má á eftirfarandi myndum, en á árinu 2015 var verulegur vöxtur í tekjum og EBITDA, sem og í EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2016.

Myndirnar sýna hvernig rekstrartekjur og EBITDA skiptast á ársfjórðunga á árunum 2012 til 2016. Á myndunum hafa rekstrartekjur og EBITDA verið leiðrétt fyrir einskiptisliðum á árinu 2012. EBITDA á þriðja ársfjórðungi hefur verið hækkuð um 0,7 milljónir evra vegna kostnaðar við skráningu félagsins á markað. EBITDA á fjórða ársfjórðungi hefur einnig verið hækkuð um alls 3,9 milljónir evra, þar af um 1,0 milljón evra vegna skráningar félagsins og um 2,9 milljónir evra vegna kostnaðar við kauprétti sem framkvæmdastjórn féll frá.

Í milljónum evra

EFNAHAGUR

  • Heildareignir námu 368,5 milljónum evra í lok mars 2016
  • Eiginfjárhlutfall var 59,9%
  • Vaxtaberandi skuldir námu 80,8 milljónum evra
  • Nettóskuldir námu 33,4 milljónum evra

Heildareignir Eimskips námu 368,5 milljónum evra þann 31. mars 2016. Til samanburðar námu heildareignir 341,5 milljónum evra í lok mars 2015 og 355,2 milljónum evra í árslok 2015.

Fastafjármunir námu 237,6 milljónum evra samanborið við 221,3 milljónir evra í lok mars í fyrra og 233,3 milljónir evra í árslok 2015. Nettó fjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 10,6 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 7,0 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi 2015.

Veltufjármunir námu 130,8 milljónum evra í lok fjórðungsins samanborið við 120,2 milljónir evra í lok mars 2015 og 121,9 milljónir evra í árslok 2015. Breytingin skýrist einkum af breytingum á handbæru fé á fjórðungnum, en handbært fé endaði í 47,3 milljónum evra í lok fjórðungsins. Til samanburðar nam handbært fé 34,4 milljónum evra í lok mars í fyrra og 36,0 milljónum evra í árslok 2015.

Eigið fé nam 220,8 milljónum evra í lok mars og var eiginfjárhlutfallið 59,9%. Eigið fé var 214,9 milljónir í lok fyrsta ársfjórðungs 2015 með 62,9% eiginfjárhlutfall og 228,1 milljón evra með 64,2% eiginfjárhlutfall í árslok 2015. Aðalfundur sem haldinn var þann 17. mars 2016 samþykkti að í apríl yrði greiddur arður að fjárhæð 1.213,2 milljónir evra, eða 8,6 milljónir evra, og lækkaði það eigið fé og hækkaði skammtímaskuldir í lok fjórðungsins.

Skammtímaskuldir námu 93,6 milljónum evra í lok mars samanborið við 83,9 milljónir evra í lok mars 2015 og 71,5 milljónir evra í árslok 2015. Arðgreiðslan að fjárhæð 8,6 milljónir evra sem samþykkt var í mars að yrði til greiðslu í apríl og fjárfestingar í gámum juku skammtímaskuldir í lok fjórðungsins.

Vaxtaberandi skuldir námu 80,8 milljónum evra í lok fjórðungs samanborið við 64,7 milljónir evra í lok fyrsta ársfjórðungs í fyrra og 71,4 milljónir evra í lok árs 2015. Nettóskuldir í lok mars námu 33,4 milljónum evra samanborið við 30,3 milljónir evra í lok mars á síðasta ári og 35,4 milljónir evra í árslok 2015.

SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR

  • Handbært fé frá rekstri nam 12,7 milljónum evra á fjórðungnum
  • Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 9,9 milljónum evra
  • Handbært fé var 47,3 milljónir evra í lok mars

Handbært fé frá rekstri nam 12,7 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2016 samanborið við 3,1 milljón evra á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs.

Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 9,9 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 8,5 milljónir evra á sama tímabili í fyrra. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 11,2 milljónum evra, en stærstu fjárfestingarnar voru gámar og hafnarkrani. Til samanburðar námu heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum 8,0 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2015.

Nettó innstreymi fjármagns vegna fjármögnunarhreyfinga nam 8,9 milljónum evra samanborið við nettó útstreymi fjármagns vegna fjármögnunarhreyfinga að fjárhæð 1,4 milljónir evra á fyrsta fjórðungi síðasta árs. Félagið dró á lánalínu í lok mars vegna greiðslu arðs í apríl.

Sjóðsflæði var jákvætt um 11,6 milljónir evra á fjórðungnum samanborið við 6,8 milljóna evra neikvætt sjóðsflæði á sama tímabili í fyrra. Handbært fé nam 47,3 milljónum evra í lok mars samanborið við 34,4 milljónir evra í lok mars í fyrra og 36,0 milljónir evra í árslok 2015.

ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2016

Ákveðið hefur verið að hækka afkomuspá Eimskips fyrir árið 2016 er gert ráð fyrir að EBITDA verði á bilinu 49 til 53 milljónir evra í stað þess að vera á bilinu 46 til 50 milljónir evra eins og kynnt var í febrúar 2016. Áætluð afkoma tengd nýjum fjárfestingum og innviðum og kostnaður því tengdur eru ekki talin með í afkomuspá ársins.

Árið 2016 fer vel af stað og umfram væntingar félagsins og almennt séð eru horfur fyrir árið jákvæðar. Félagið gerir ráð fyrir áframhaldandi vexti í magni tengdu Íslandi, en að magn tengt Færeyjum verði svipað og á síðasta ári. Frystiflutningar í Noregi áttu erfitt uppdráttar á fyrsta ársfjórðungi 2015, en árið hefur farið vel af stað og er útlitið áfram jákvætt. Flutningsmiðlun, sem samanstendur af frystiflutningsmiðlun og almennri flutningsmiðlun, jókst um 5,9% á fyrsta ársfjórðungi. Frystiflutningsmiðlun hefur farið hægt af stað á árinu vegna efnahagsástands í Kína, á meðan almenn flutningsmiðlun hefur gengið vel og reiknað er með svipuðum vexti út árið.

Enn er óvissa varðandi kjarasamninga við hluta íslenskra áhafna á skipum félagsins, auk almennrar óvissu varðandi efnahagsaðstæður á heimsvísu, flutningsmagn, verð á flutningum, olíukostnað, gengisþróun og samkeppni.

HLUTHAFAR

Markaðsvirði félagsins var 45.1 milljarður króna þann 25. maí 2016

Nokkrar sveiflur voru á lokaverði bréfa Eimskips á árinu 2015. Lokaverðið var á bilinu 206,00 krónur á hlut þann 4. júní til 264,50 króna á hlut þann 3. nóvember, með meðaltalslokaverði ársins 235,22 krónum á hlut og árslokaverði 235,50 krónum á hlut. Lokaverð þann 25. maí 2016 var 241.75 krónur á hlut og var markaðsvirði félagsins miðað við fjölda útistandandi hluta því 45.1 milljarður króna þann dag sem jafngildir 323.3 milljónum evra.

Fjöldi útgefinna hluta er 200.000.000, þar af eru 186.639.230 útistandandi hlutir og 13.360.770 eigin hlutir. Fjöldi hluthafa í árslok 2015 var 955 og voru hluthafar 872 að tölu þann 25. maí 2016.

Aðalfundur Eimskips, sem haldinn var 17. mars 2016, samþykkti arðgreiðslu sem nam 6,50 krónum á hlut. Heildararðgreiðslan nam 1.213,2 milljónum króna eða 8,6 milljónum evra. Arðgreiðsludagur var 14. apríl 2016.

LYKILSTÆRÐIR ÁRSFJÓRÐUNGA

Fjárhæðir í þúsundum evra
-- -- --------------------------- --
Rekstrarreikningur Q1 2016 Q4 2015 Q3 2015 Q2 2015 Q1 2015
Rekstrartekjur 113.253 130.610 129.721 126.587 112.663
Rekstrargjöld 103.621 120.863 113.361 113.281 106.879
EBITDA 9.632 9.747 16.360 13.306 5.784
EBIT 3.267 2.476 10.427 7.516 4
9
Hagnaður tímabilsins 1.845 2.289 8.474 5.515 1.524
EBITDA / rekstrartekjur 8,5% 7,5% 12,6% 10,5% 5,1%
EBIT / rekstrartekjur 2,9% 1,9% 8,0% 5,9% 0,0%
Efnahagsreikningur 31.03.2016 31.12.2015 30.09.2015 30.06.2015 31.03.2015
Eignir 368.468 355.157 370.650 357.667 341.538
Eigið fé 220.796 228.124 225.958 219.400 214.879
Skuldir 147.672 127.033 144.692 138.267 126.659
Vaxtaberandi skuldir 80.764 71.401 81.769 77.012 64.703
Nettóskuldir 33.427 35.418 52.519 40.001 30.277
Eiginfjárhlutfall 59,9% 64,2% 61,0% 61,3% 62,9%
Sjóðstreymi Q1 2016 Q4 2015 Q3 2015 Q2 2015 Q1 2015
Handbært frá rekstri 12.680 15.574 6.889 11.811 3.083
Fjárfestingarhreyfingar (9.947) 4.032 (15.780) (14.963) (8.495)
Fjármögnunarhreyfingar 8.861 (11.611) 1.876 5.929 (1.367)
Handbært fé í lok tímabils 47.337 35.983 29.250 37.011 34.426

RANNSÓKN SAMKEPPNISEFTIRLITSINS

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins stendur enn yfir og hefur Eimskip engar frekari upplýsingar um hana en þegar hafa verið birtar. Inntak rannsóknarinnar liggur ekki fyrir og því ótímabært að fara nánar út í hugsanlegar niðurstöður hennar. Það er fyrirtækinu fyrir bestu að niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir sem allra fyrst.

UM EIMSKIP

Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 57 starfsstöðvar í 19 löndum, er með 20 skip í rekstri og hefur á að skipa 1.590 starfsmönnum. Um helmingur tekna Eimskips kemur frá starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningaþjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.

KYNNINGARFUNDUR 27. MAÍ 2016

Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 27. maí 2016 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung 2016. Hægt verður að nálgast kynningarefni fundarins að honum loknum á fjárfestasíðu félagsins, www.eimskip.is/investors og í fréttakerfi Nasdaq Nordic.

SAMÞYKKI STJÓRNAR

Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti árshlutareikning samstæðu Eimskips fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2016 á stjórnarfundi þann 26. maí 2016.

FJÁRHAGSDAGATAL

  • Uppgjör annars ársfjórðungs 2016 verður birt 25. ágúst 2016
  • Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2016 verður birt 17. nóvember 2016
  • Uppgjör fjórða ársfjórðungs 2016 verður birt 23. febrúar 2016
  • Aðalfundur 2017 verður haldinn 23. mars 2017

FREKARI UPPLÝSINGAR

  • Gylfi Sigfússon forstjóri, sími: 525 7202
  • Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, sími: 525 7202
  • Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: [email protected]

TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA

Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.