Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands Earnings Release 2015

Feb 25, 2016

2194_rns_2016-02-25_2345bbae-7895-4537-a95b-7761326ab4e3.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Afkomutilkynning | 25. februar 2016

E

EIMSKIP

HAGNADUR EIMSKIPS JÓKST UM 30,8% Á MILLI ÁRA

  • Rekstrartekjur voru 499,6 milljónir evra, jukust um 48,0 milljónir evra eða 10,6% frá 2014
  • EBITDA nam 45,2 milljónum evra samanborið við 38,5 milljónir evra 2014 og jókst um 17,3%
  • Hagnaður nam 17,8 milljónum evra samanborið við 13,6 milljónir evra 2014 og jókst um 30,8%
  • Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 4,2% á milli ára
  • Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 7,5% á milli ára
  • Eiginfjárhlutfall var 64,2% og nettóskuldir námu 35,4 milljónum evra í árslok
  • Stjórn félagsins leggur til 6,50 króna arðgreiðslu á hlut sem er 30% hækkun arðs frá 2015
  • Áættuð EBITDA ársins 2016 er á bilinu 46 til 50 milljónir evra

Fjárhæðir í þúscundum evra

Rekstrarreikningur Q4 2015 Q4 2014 Breyting % 2015 2014 Breyting %
Rekstrartekjur 130.610 118.794 11.816 9,9% 499.581 451.555 48.026 10,6%
Rekstrargjöld 120.863 109.953 10.910 9,9% 454.384 413.013 41.371 10,0%
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA 9.747 8.841 906 10,2% 45.197 38.542 6.655 17,3%
Afskriftir (7.271) (6.052) (1.219) (20,1%) (24.729) (23.195) (1.534) (6,6%)
Rekstrarhagnaður - EBIT 2.476 2.789 (313) (11,2%) 20.468 15.347 5.121 33,4%
Nettó fjármunatekjur 392 169 223 132,0% 419 591 (172) (29,1%)
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga 79 (30) 109 - 331 229 102 44,5%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 2.947 2.928 19 0,6% 21.218 16.167 5.051 31,2%
Tekjuskattur (658) (638) (20) (3,1%) (3.416) (2.560) (856) (33,4%)
Hagnaður tímabilsins 2.289 2.290 (1) (0,0%) 17.802 13.607 4.195 30,8%
Leiðrétt fyrir einskiptisliðum
Tekjubreyting 9,9% 11,2% 10,6% 4,1%
EBITDA / rekstrartekjur 7,5% 7,4% 9,0% 8,5%
EBIT / rekstrartekjur 1,9% 2,3% 4,1% 3,4%
Nettóskuldir / LTM EBITDA 0,78 0,65 0,78 0,65
Efnahagsreikningur 31.12.2015 31.12.2014 Breyting % 31.12.2015 31.12.2014 Breyting %
Eignir 355.157 332.040 23.117 7,0% 355.157 332.040 23.117 7,0%
Fastafjármunir 233.280 214.278 19.002 8,9% 233.280 214.278 19.002 8,9%
Veltufjármunir 121.877 117.762 4.115 3,5% 121.877 117.762 4.115 3,5%
Eigið fé 228.124 216.472 11.652 5,4% 228.124 216.472 11.652 5,4%
Skuldir 127.033 115.568 11.465 9,9% 127.033 115.568 11.465 9,9%
Langtimaskuldir 55.550 49.904 5.646 11,3% 55.550 49.904 5.646 11,3%
Skammtímaskuldir 71.483 65.664 5.819 8,9% 71.483 65.664 5.819 8,9%
Vaataberandi skuldir 71.401 64.432 6.969 10,8% 71.401 64.432 6.969 10,8%
Nettóskuldir 35.418 24.893 10.525 42,3% 35.418 24.893 10.525 42,3%
Efnislegar eignir / heildareignir 92,6% 94,2% 92,6% 94,2%
Eiginfjárhlutfall 64,2% 65,2% 64,2% 65,2%
Sjóðstrey mi Q4 2015 Q4 2014 Breyting % 2015 2014 Breyting %
Handbært fé frá rektí 15.574 12.713 2.861 22,5% 37.357 31.603 5.754 18,2%
Fjárfestingarhreyfingar 4.032 (4.382) 8.414 - (35.206) (18.311) (16.895) (92,3%)
Fjármögnunarhreyfingar (11.611) (2.108) (9.503) - (5.173) (572) (4.601) -
Breyting á handbæru fé 7.995 6.223 1.772 28,5% (3.022) 12.720 (15.742) -
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé (1.262) (857) (405) 47,3% (534) 449 (983) -
Handbært fé í lok tímabils 35.983 39.539 (3.556) (9,0%) 35.983 39.539 (3.556) (9,0%)

Afkomutilkynning | 25. februar 2016

E IMSKIP

GYLFI SIGFÚSSON FORSTJÓRI

„Rekstrarniðurstaða ársins 2015 var í samræmi við væntingar okkar, 10,6% tekjuvöxtur og 17,3% hækkun EBITDA frá fyrra ári. Árið skilaði hæstu rekstrartekjum og EBITDA frá árinu 2009. Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst um 4,2% á milli ára. Mikill vöxtur var í flutningum tengdum Íslandi á meðan magn tengt Færeyjum dróst lítillega saman vegna breytts flutningamynsturs á uppsjávarfiski. Góður gangur hefur verið í Noregi eftir erfiðleika á fyrsta ársfjörðungi. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 7,5% á milli ára.

Rekstrartekjur á fjörða ársfjörðungi námu 130,6 milljónum evra og jukust um 9,9% samanborið við sama ársfjörðung 2014. EBITDA nam 9,7 milljónum evra á fjörðungnum og jókst um 10,2% samanborið við fjörða ársfjörðung árið áður, en að teknu tilliti til óreglulegs kostnaðar jókst EBITDA um 20,4%. Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 10,1% og magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 6,6% samanborið við fjörða ársfjörðung 2014.

Á árinu 2015 gekk félaglið frá kaupum á fimm fyrirtækjum sem hafa verið innleidd í samstæðuna og eru að skila góðri afkomu. Félaglið heldur áfram að meta möguleg fjárfestingartækifæri til vaxtar í samræmi við stefnu félagsins. Sterk fjárhagsstaða Eimskips og þau tækifæri sem eru í greininni setja félaglið í góða stöðu til að ráðast í slík verkefni.

Eimskip hefur tekið á leigu gámaskipið Ceres, 880 gámaeininga kranalaust skip, frá og með marsmánuði. Skipíð er systurskip Lagarfoss sem félaglið lét smíða og tekið var í notkun á árinu 2014. Nafni Ceres verður breytt í Bakkafoss og mun skipíð þjóna á gulu leiðinni þar sem það leysir af hólmi Brúarfoss, 724 gámaeininga skip, sem fært verður á aðra leið eða í önnur verkefni. Nýr hafnarkrani verður tekinn í notkun í Sundahöfn í mars og verður krani úr Sundahöfn fluttur til Vestmannaeyja. Með þessum breytingum mun félaglið hafa möguleika á að nota kranalaus skip á bláu og gulu leiðinni.

Skip á gulu leiðinni munu á öðrum ársfjörðungi hefja reglulegar viðkomur í Helguvík til að þjóna kísilmálmframleiðslu United Silicon og öðrum fyrirtækjum á svæðinu.

Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2016 sem nemur 6,50 krónum á hlut, en það er 30% hækkun frá fyrra ári þegar arðgreiðslan nam 5,00 krónum á hlut. Nemur heildarfjárhæð arðgreiðslunnar 1.213,2 milljónum króna, eða 8,5 milljónum evra.

Fyrstu vikur ársins lofa góðu í samanborið við síðasta ár, bæði hvað varðar magn og afkomu. Afkomuspá okkar fyrir árið 2016 er EBITDA á bilinu 46 til 50 milljónir evra. Áætluð afkoma tengd nýjum fjárfestingum í fyrirtækjum og innviðum er ekki talin með í afkomuspá ársins.“

REKSTUR ÁRSINS 2015

Rekstrartekjur Eimskips á árinu 2015 námu 499,6 milljónum evra samanborið við 451,6 milljónir evra á árinu 2014 sem er aukning um 10,6%. Tekjur af áætlunarsiglingum námu 358,0 milljónum evra samanborið við 330,6 milljónir evra á fyrra ári og jukust þær um 8,3% á milli ára. Heildaraukning í magni í áætlunarsiglingum nam 4,2% frá 2014, einkum vegna verulegs vaxtar í flutningum tengdum Íslandi og þess að flutningar í Noregi hafa náð sér á strik eftir að hafa farið hægt af stað á fyrsta ársfjörðungi, en nokkur samdráttur var í magni tengdu Færeyjum meðal annars vegna þess að breytt mynstur er á flutningum á uppsjávarfiski. Tekjur af flutningsmiðlun námu 141,6 milljónum evra samanborið við 121,0 milljón evra á árinu 2014 og jukust þær um 17,0%, einkum vegna aukningar í magni, samsetningar flutninga, gengisþróunar og fjárfestinga í nýjum fyrirtækjum í samstæðu Eimskips. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 7,5% á milli ára.

Rekstrargjöld fyrirtækisins námu alls 454,4 milljónum evra samanborið við 413,0 milljónir evra árið 2014 og jukust um 10,0%. Þar af nam rekstrarkostnaður 358,3 milljónum evra samanborið við 331,5 milljónir evra árið áður sem er 8,1% hækkun. Laun og launatengd gjöld námu 96,1 milljón evra á tímabilinu og jukust um 17,9% frá fyrra ári, en þar af skýrast 6,6% af almennum launahækkunum, 4,2% af gengisbreytingum, 4,1% af nýjum fyrirtækjum í samstæðunni og 3,0% af auknum umsvifum og yfirvinni.


Afkomutilkynning | 25. februar 2016

E IMSKIP

EBITDA årsins, som 45,2 milliónum evra samanborið við 38,5 milliónir evra árið 2014 og samsvarar það 17,3% aukningu. EBITDA hlutfall tímabilsins, som 9,0% samanborið við 8,5% árið áður. Tekjur að fjárhæð 2,0 milliónir evra höfðu áhrif á EBITDA årsins, en um var að ræða söluhagnað og tjónabætur sem færðar voru á þriðja ársfjörðungi vegna gámaskipsins í smiðum í Kína sem hætt var við kaup á. EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins, som 35,8 milliónum evra samanborið við 32,7 milliónir evra á árinu 2014 sem er aukning um 9,5%. EBITDA hlutfall áætlunarsiglinga var 10,0% samanborið við 9,9%. EBITDA hlutfall á fyrra ári. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi, som 9,4 milliónum evra samanborið við 5,8 millióna evra. EBITDA 2014 og jókst um 61,2%. EBITDA hlutfall flutningsmiðlunar var 6,6% samanborið við 4,8% á fyrra ári og skýrist hækkunin einkum af nýjum fyrirtækjum í samstæðunni sem hækka. EBITDA hlutfallið. Áhrif nýrra fyrirtækja sem tekin voru yfir á árinu 2015 hækkuðu. EBITDA um 1,8 milliónir evra.

Afskriftir årsins, námu 24,7 milliónum evra samanborið við 23,2 milliónir evra á árinu 2014. Aukningin skýrist aðallega af aukinni fjárfestingu í rekstrarfjármunum og nýjum fyrirtækjum innan samstæðunnar.

Rekstrarhagnaður årsins, EBIT, som 20,5 milliónum evra samanborið við 15,3 milliónir evra 2014 og jókst um 33,4%.

Nettó fjármunatekjur, námu 0,4 milliónum evra samanborið við 0,6 millióna evra nettó fjármunatekjur árið 2014. Aukinn fjármagnskostnaður vegna aukinna vaxtaberandi skulda á árinu var bættur upp af hærri gengishagnaði árið 2015 en árið áður. Hlutdeild í hagnaði hlutdeildarfélaga, námu 0,3 milliónum evra samanborið við 0,2 milliónir evra árið áður.

Hagnaður fyrir tekjuskatt, námu 21,2 milliónum evra samanborið við 16,2 millióna evra hagnað fyrir tekjuskatt árið 2014 og er það hækkun um 5,1 millión evra eða 31,2%.

Gjaldfærður tekjuskattur tímabilsins, námu 3,4 milliónum evra samanborið við 2,6 milliónir evra á árinu 2014. Virkt tekjuskattshlutfall árið 2015 var 16,1% sem er svipað og árið áður.

Hagnaður årsins, eftir skatta, námu 17,8 milliónum evra samanborið við 13,6 millióna evra hagnað 2014 og er það hækkun um 4,2 milliónir evra eða 30,8%.

Eins og sjá má á eftirfarandi myndum þá hefur flutt magn bæði í áætlunarsiglingum félagsins og flutningsmiðlun verið að aukast jafnt og þétt frá árinu 2010. Magnvísitalan á hægri ásnum miðast við að magnið árið 2010 sé 100.

img-0.jpeg
Áætlunarsiglingar

img-1.jpeg
Frystiflutningsmiðlun

Miklar breytingar voru gerðar á siglingakerfi félagsins í mars 2013 sem juku afkastagetu þess og í febrúar 2014 var ráðist í aðlögun á kerfinu, meðal annars vegna þess að slæm veðurskilyrði til siglinga settu áætlunarkerfið úr skorðum. Bætt var við nýrri siglingaleið, gráu leiðinni, á milli Færeyja og Skotlands til að auka sveigjanleika kerfisins og áreiðanleika þjónustunnar við viðskiptavini. Í febrúar 2015 voru græna leiðin, sem siglir á milli Íslands og Norður-Ameriku með viðkomu í Sortland í Noregi, og rauða leiðin, sem annaðist strandsiglingar við Ísland með tengingu við Evrópu, sameinaðar í nýja græna leið með þremur skipum sem sigla beint á milli Evrópu og Norður-Ameriku með viðkomum á Íslandi. Í október 2015 fékk gráu leiðin aukið hlutverk þar sem öðru 500 gámaeininga leiguskipi var bætt við leiðina til að auka afkastagetu og bætt var við viðkomum í Árhus í Danmörku, Halmstad í Svíþjóð og í Swinoujscie í Pólandi.

3


Afkomutilkynning | 25. februar 2016

E IMSKIP

Félagið er með 20 skip í rekstri, þar af fjórtán eigin skip og sex leiguskip. Prettán skipanna eru í áætlunarsiglingum, þrjú eru í „spot“ þjónustu, eitt er í störflutningum og þrjú í ferjusiglingum.

Rekstur félagsins hefur verið stöðugur undanfarin ár eins og sjá má á eftirfarandi myndum, en á árinu 2015 var mikill vöxtur í tekjum og EBITDA. Myndirnar sýna hvernig rekstrartekjur og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, skiptast á ársfjörðunga á árunum 2011 til 2015.

Á myndunum hafa rekstrartekjur og EBITDA verið leiðrétt fyrir einskiptisliðum á árunum 2011 og 2012. Rekstrartekjur og EBITDA á fyrsta ársfjörðungi 2011 hafa verið lækkaðar um 6,4 milljónir evra vegna innheimtu á áður afskrifaðri kröfu. EBITDA hefur hins vegar verið hækkuð um 0,7 milljónir evra á öðrum ársfjörðungi 2011 vegna strands. Goðafoss og um 0,7 milljónir evra á þriðja ársfjörðungi 2012 vegna kostnaðar við skráningu félagsins. Að lokum var EBITDA á fjörða ársfjörðungi 2012 hækkuð um alls 3,9 milljónir evra, þar af um 1,0 milljón evra vegna skráningar félagsins og um 2,9 milljónir evra vegna kostnaðar við kauprétti sem fallið var frá.

Í milljónum evra

img-2.jpeg
Rekstrartekjur

img-3.jpeg
EBITDA

REKSTUR FJÖRÐA ÁRSFJÖRÐUNGS

  • Tekjur námu 130,6 milljónum evra, jukust um 11,8 milljónir evra eða 9,9% frá Q4 2014
  • EBITDA nam 9,7 milljónum evra, jókst um 0,9 milljónir evra eða 10,2% frá Q4 2014
  • Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 10,1% frá Q4 2014
  • Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 6,6% frá Q4 2014

Rekstrartekjur Eimskips námu 130,6 milljónum evra á fjörða ársfjörðungi 2015 samanborið við 118,8 milljónir evra á sama tímabili 2014 og jukust um 9,9%. Tekjur af áætlunarsiglingum félagsins námu 94,7 milljónum evra samanborið við 84,5 milljónir evra á fjörða ársfjörðungi fyrra árs og jukust um 12,1% á milli ára. Magn í áætlunarsiglingum jókst um 10,1% á fjörðungnum samanborið við sama tímabil í fyrra, en verulegur vöxtur var í flutningum tengdum Íslandi og góður vöxtur í Noregi á meðan magn tengt Færeyjum dróst lítillega saman. Tekjur af flutningsmiðlun námu 35,9 milljónum evra á fjörðungnum samanborið við 34,3 milljónir á sama tímabili 2014, en það samsvarar 4,7% vexti. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 6,6% samanborið við fjörða ársfjörðungi 2014. Aukningu í fluttu magni sem skilar sér ekki að fullu í tekjuaukningu má að miklu leyti skýra með lækkandi verði á flutningum á alþjóðlegum flutningamörkuðum á síðustu mánuðum ársins.

Rekstrargjöld fyrirtækisins námu alls 120,9 milljónum evra á fjörðungnum samanborið við 110,0 milljónir evra á sama tímabili 2014 og jukust um 9,9%. Þar af nam rekstrarkostnaður 94,8 milljónum evra samanborið við 88,2 milljónir evra á fjörða ársfjörðungi árið áður sem er 7,6% hækkun. Laun og launatengd gjöld námu 26,0 milljónum evra á tímabilinu samanborið við 21,8 milljónir evra og jukust um 19,4% frá sama fjörðungi fyrra árs. Meðal rekstrarkostnaðar fjörðungsins voru færðar 0,9 milljónir evra vegna sektar sem tengist fyrirtæki sem varð gjaldprota fyrir nauðasamningana 2009 og er sektin vegna áranna 2007 til 2009.


Afkomutilkynning | 25. februar 2016

E IMSKIP

EBITDA nam 9,7 milljónum evra á fjorða ársfjorðungi samanborið við 8,8 milljónir evra á sama tímabili 2014 og er það 10,2% hækkun. EBITDA hlutfall fjorðungsins nam 7,5%, lítillega hærra en 7,4%. EBITDA hlutfall á sama fjorðungi fyrra árs. Ef tekið væri tillit til ofangreinds öreglulegs kostnaðarliðar að fjárhæð 0,9 milljónir evra, yrði EBITDA hlutfall fjorðungsins 8,2%. EBITDA hlutfall áætlunarsiglinga var 8,5% samanborið við 9,0% á sama fjorðungi fyrra árs. EBITDA hlutfall flutningsmiðlunarstarfsemi var 4,8% og jókst úr 3,6% á fjorða ársfjorðungi 2014.

Afskriftir námu 7,3 milljónum evra samanborið við 6,1 milljón evra á fjorða ársfjorðungi 2014. Hækkunin skýrist af reglubundnu viðhaldi og endurbótum skipa, afskriftum í nýjum félögum í samstæðunni og auknum fjárfestingum.

Rekstrarhagnaður fjorðungsins, EBIT, nam 2,5 milljónum evra samanborið við 2,8 milljónir evra á sama tímabili á fyrra ári og dróst saman um 11,2%.

Nettó fjármunatekjur námu 0,4 milljónum evra á fjorðungnum samanborið við 0,2 milljóna evra nettó fjármunatekjur á fjorða ársfjorðungi 2014. Aukinn fjármagnskostnaður vegna aukinna vaxtaberandi skulda á fjorðungnum var bættur upp af hærri gengishagnaði en á fjorða ársfjorðungi árið áður. Hlutdeild í hagnaði hlutdeildarfélaga nam 79 þúsund evrum á fjorðungnum samanborið við 30 þúsund evra hlutdeild í tapi á fjorða ársfjorðungi fyrra árs.

Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 2,9 milljónum evra sem er sama fjárhæð og á fjorða ársfjorðungi fyrra árs.

Gjaldfærdur tekjuskattur fjorðungsins nam 0,7 milljónum evra samanborið við 0,6 milljónir evra á sama tímabili í fyrra. Virkt tekjuskattshlutfall á fjorðungnum var 22,3% sem er svipað og á sama tímabili árið áður.

Hagnaður fjorða ársfjorðungs eftir skatta nam 2,3 milljónum evra og er það sami hagnaður og á fjorða ársfjorðungi 2014.

EFNAHAGUR

  • Heildareignir námu 355,2 milljón evra í árslok 2015
  • Eiginfjárhlutfall var 64,2%
  • Vaxtaberandi skuldir námu 71,4 milljónum evra
  • Nettóskuldir námu 35,4 milljónum evra

Heildareignir Eimskips námu 355,2 milljónum evra þann 31. desember 2015. Til samanburðar námu heildareignir 332,0 milljónum evra í árslok 2014.

Fastafjármunir námu 233,3 milljónum evra í árslok samanborið við 214,3 milljónir evra í árslok 2014. Nettó fjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 31,7 milljónum evra samanborið við 19,4 milljónir evra árið 2014.

Veltufjármunir félagsins námu 121,9 milljónum evra í lok ársins samanborið við 117,8 milljónir evra í árslok 2014. Viðskiptakrófur hækuðu á milli ára vegna aukinna tekna, gengisþróunar og vegna nýrra fyrirtækja í samstæðunni. Handbært fé nam 36,0 milljónum evra í árslok samanborið við 39,5 milljónir evra í lok árs 2014.

Eigið fé nam 228,1 milljón evra í árslok 2015 og var eiginfjárhlutfallið 64,2%. Arður að fjárhæð 933,2 milljónir króna, jafngildi 6,3 milljóná evra, var greiddur hluthöfum í apríl. Til samanburðar nam eigið fé 216,5 milljónum evra í árslok 2014 og eiginfjárhlutfallið var 65,2%.

Skammtímaskuldir námu 71,5 milljónum evra í árslok samanborið við 65,7 milljónir evra í lok árs 2014. Viðskiptaskuldir jukust á milli ára vegna aukinna umsvifa, gengisþróunar og vegna nýrra fyrirtækja í samstæðunni.


Afkomutilkynning | 25. februar 2016

E IMSKIP

Vaxtaberandi skuldir námu 71,4 milljónum evra í lok ársins samanborið við 64,4 milljónir evra í árslok 2014. Nettóskuldir námu 35,4 milljónum evra í árslok samanborið við 24,9 milljónir evra í árslok 2014. Hækkun nettóskulda stafar einkum af fjárfestingu í innviðum og nýjum fyrirtækjum.

SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR

  • Handbært fé frá rekstri nam 37,4 milljónum evra á árinu 2015
  • Nettó fjárfestingarhreýfingar námu 35,2 milljón evra
  • Handbært fé var 36,0 milljónir evra í árslok 2015

Handbært fé frá rekstri nam 37,4 milljónum evra á árinu 2015 samanborið við 31,6 milljónir evra á árinu 2014.

Nettó fjárfestingarhreýfingar námu 35,2 milljónum evra samanborið við 18,3 milljónir evra á árinu á undan. Þar af námu fjárfestingarhreýfingar tengdar kaupum á nýjum fyrirtækjum 7,0 milljónum evra. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 48,3 milljónum evra, en þar af voru fjárfestingar fyrir 3,4 milljónir evra sem ekki höfðu áhrif á sjóðstreymi. Stærstu fjárfestingarnar voru nýja frystigeymslan í Hafnarfirði og tveir nýir hafnarkranar. Til samanburðar námu heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum 20,5 milljónum evra árið 2014, þar af fjárfestingar að fjárhæð 1,8 milljónir evra sem ekki höfðu áhrif á sjóðstreymi. Félagið fékk í október endurgreiðslu vegna samnings um smiði á skipi í Kína sem var rift og nam fjárhæðin 14,1 milljón evra.

Nettó útstreymi fjármagns vegna fjármögnunarhreýfinga nam 5,2 milljónum evra samanborið við 0,6 milljónir evra á árinu 2014. Breytingin skýrist einkum af hærri arðgreiðslu á árinu 2015 en árið áður.

Sjóðsflæði var neikvætt um 3,0 milljónir evra samanborið við jákvætt sjóðsflæði að fjárhæð 12,7 milljónir evra á árinu 2014. Handbært fé í árslok nam 36,0 milljónum evra samanborið við 39,5 milljónir evra í lok ársins 2014.

ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2016

Afkomuspa fyrir árið 2016 er að EBITDA verði á bilinu 46 til 50 milljónir evra.

Almennt séð eru horfur fyrir árið 2016 jákvæðar. Félagið gerir ráð fyrir áframhaldandi vexti í magni tengdu Íslandi. Frystiflutningar í Noregi áttu erfitt uppdráttar á fyrsta ársfjörðungi 2015 en útlitið fyrir þetta ár er jákvætt. Gert er ráð fyrir samdrætti í magni tengdu Færeyjum vegna breytts flutningamynsturs á uppsjávarfiski. Gert er ráð fyrir að vöxtur í frystiflutningum verði í samræmi við vöxt á mörkuðum almennt, en kaup á nýjum fyrirtækjum á árinu 2015 munu styrkja þjónustu félagsins í frystiflutningsmiðlun til framtíðar.

Enn er óvissa varandi kjarasamninga við hluta íslenskra áhafna á skipum félagsins, auk almennrar óvissu varandi efnahagsaðstæður á heimsvísu, flutningsmagn, verð á flutningum, olíukostnað, gengisþróun og samkeppni.

HLUTHAFAR

  • Markaðsvirði félagsins var 44,0 milljarðar króna þann 24. febrúar 2016

Viðskipti með bréf Eimskips höfust á Nasdaq Iceland þann 16. nóvember 2012. Útboðsgengi var 208,00 krónur á hlut og var lokaverð í árslok 2012 230,00 krónur á hlut.

Nokkrar sveiflur voru á lokaverði bréfa Eimskips á árinu 2015. Lokaverðið var á bilinu 206,00 krónur á hlut þann 4. júní til 264,50 króna á hlut þann 3. nóvember, með meðaltalslokaverði ársins 235,22 krónum á hlut og árslokaverði 235,50 krónum á hlut. Lokaverð þann 24. febrúar 2016 var 236,00 krónur og var


Afkomutilkynning | 25. februar 2016

E IMSKIP

markaðsvirði félagsins miðað við fjölda útstandandi hluta því 44,0 milljarðar króna þann dag sem jafngildir 309,7 milljónum evra.

Fjöldi útgefinna hluta er 200.000.000, þar af eru 186.639.230 útistandandi hlutir og 13.360.770 eigin hlutir. Fjöldi hluthafa í árslok 2015 var 955 og voru hluthafar 902 að tólu þann 24. februar 2016.

Arðgreiðslustefna Eimskips er að árleg arðgreiðsla jafngildi 10-50% af hagnaði eftir skatta. Ákvörðun um arðgreiðslu og nákvæma fjárhæð er háð áætlun fyrirtækisins um fárfestingar, horfum á markaði og fullnægjandi fjármagnsskipan á hverjum tíma. Stjórn félagsins leggur til við aðalfund að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2016 sem nemur 6,50 krónum á hlut. Nemur heildarfjárhæð arðgreiðslunnar 1.213,2 milljónum króna eða 8,5 milljónum evra, sem samsvarar 47,9% af hagnaði ársins 2015.

LYKILSTÆRDIR ÁRSFJÓRDUNGA

Fjárhæðir í þúsundum evra

Rekstrarreikningur Q4 2015 Q3 2015 Q2 2015 Q1 2015 Q4 2014
Rekstrartekjur 130.610 129.721 126.587 112.663 118.794
Rekstrargjöld 120.863 113.361 113.281 106.879 109.953
EBITDA 9.747 16.360 13.306 5.784 8.841
EBIT 2.476 10.427 7.516 49 2.789
Hagnaður timabilsins 2.289 8.474 5.515 1.524 2.290
EBITDA / rekstrartekjur 7,5% 12,6% 10,5% 5,1% 7,4%
EBIT / rekstrartekjur 1,9% 8,0% 5,9% 0,0% 2,3%
Efnahagsreikningur 31.12.2015 30.09.2015 30.06.2015 31.03.2015 31.12.2014
Eignir 355.157 370.650 357.667 341.538 332.040
Eigið fé 228.124 225.958 219.400 214.879 216.472
Skuldir 127.033 144.692 138.267 126.659 115.568
Vaxtaberandi skuldir 71.401 81.769 77.012 64.703 64.432
Nettóskuldir 35.418 52.519 40.001 30.277 24.893
Eiginfjárhlutfall 64,2% 61,0% 61,3% 62,9% 65,2%
Sjóðstrey mi Q4 2015 Q3 2015 Q2 2015 Q1 2015 Q4 2014
Handbært frá rektri 15.574 6.889 11.811 3.083 12.713
Fjárfestingarhreýfingar 4.032 (15.780) (14.963) (8.495) (4.382)
Fjármögnunarhreýfingar (11.611) 1.876 5.929 (1.367) (2.108)
Handbært fé í lok timabils 35.983 29.250 37.011 34.426 39.539

RANNSÓKN SAMKEPPNISEFTIRLITSINS

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins stendur enn yfir. Eftirlitið óskaði eftir frekari upplýsingum frá félaginu og voru þær afhentar í febrúar 2016. Eimskip mun áfram leggja sig fram um að veita svör í samræmi við lagalegar skyldur félagsins. Pað er fyrirtækinu fyrir bestu að niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir sem allra fyrst.

ÖNNUR MÁL

Í desember 2015 var eignarhaldsfélag í eigu samstæðunnar sektað um 0,9 milljónir evra í tengslum við eignarhald á fyrirtæki sem varð gjaldbrota fyrir nauðasamninginn árið 2009. Sektin er fyrir tímabilið 2007


Afkomutilkynning | 25. februar 2016

E IMSKIP

til 2009. Eignarhaldsfélag samstæðunnar gjaldfærði kostnaðinn á fjórða ársfjórðungi 2015. Eignarhaldsfélagið undirbyr nú áfrýjun málsins.

UM EIMSKIP

Eimskip rekur 57 starfsstöðvar í 19 lőndum og er með 20 skip í rekstri. Félagið hefur á að skipa um 1.580 starfsmönnum. Um helmingur tekna félagsins kemur frá starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningabjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða viðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.

KYNNINGARFUNDUR 26. FEBRÚAR 2016

Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 26. februar 2016 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir árið 2015 og fjórða ársfjórðung. Hægt verður að nálgast kynningarefni fundarins að honum loknum á fjárfestasiðu félagsins, www.eimskip.is/investors, og í fréttakerfi Nasdaq Nordic.

SAMÞYKKI STJÓRNAR

Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti endurskoðaðan ársreikning samstæðu Eimskips fyrir árið 2015 á stjórnarfundi þann 25. februar 2016.

FJÁRHAGSDAGATAL

  • Aðalfundur 2016 verður haldinn 17. mars 2016
  • Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2016 verður birt 26. maí 2016
  • Uppgjör annars ársfjórðungs 2016 verður birt 25. ágúst 2016
  • Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2016 verður birt 17. nóvember 2016
  • Uppgjör fjórða ársfjórðungs 2016 verður birt 23. febrúar 2017
  • Aðalfundur 2017 verður haldinn 23. mars 2017

FREKARI UPPLÝSINGAR

  • Gylfi Sigfússon forstjóri, sími: 525 7202
  • Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, sími: 525 7202
  • Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: [email protected]

TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA

Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.