AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Earnings Release 2015
Nov 19, 2015
2194_sr_2015-11-19_586e968b-e3fa-4f46-aec0-f6751c238924.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
EIMSKIP KYNNIR AFKOMU ÞRIÐJA ÁRSFJÓRÐUNGS 2015
- Rekstrartekjur voru 129,7 milljónir evra, jukust um 10,1 milljón evra eða 8,5% frá Q3 2014
- EBITDA nam 16,4 milljónum evra, jókst úr 12,6 milljónum evra eða um 29,5% frá Q3 2014
- Hagnaður nam 8,5 milljónum evra, jókst úr 7,5 milljónum evra eða um 12,7% frá Q3 2014
- Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 2,8% frá Q3 2014
- Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 1,0% frá Q3 2014
- Eiginfjárhlutfall var 61,0% og nettóskuldir námu 52,5 milljónum evra í lok september
- Áætlaðri EBITDA ársins 2015 hefur verið breytt og er hún á bilinu 44,5 til 46,5 milljónir evra
Fjárhæðir í þúsundum evra
| Rekstrarreikningur | Q3 2015 | Q3 2014 | Breyting | % | 9M 2015 | 9M 2014 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 129.721 | 119.583 | 10.138 | 8,5% | 368.971 | 332.761 | 36.210 | 10,9% |
| Rekstrargjöld | 113.361 | 106.949 | 6.412 | 6,0% | 333.521 | 303.060 | 30.461 | 10,1% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA | 16.360 | 12.634 | 3.726 | 29,5% | 35.450 | 29.701 | 5.749 | 19,4% |
| Afskriftir | (5.933) | (5.584) | (349) | (6,3%) | (17.458) | (17.143) | (315) | (1,8%) |
| Rekstrarhagnaður - EBIT | 10.427 | 7.050 | 3.377 | 47,9% | 17.992 | 12.558 | 5.434 | 43,3% |
| Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) | (482) | 1.192 | (1.674) | - | 2 7 |
422 | (395) | (93,6%) |
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga | 6 6 |
171 | (105) | (61,4%) | 252 | 259 | (7) | (2,7%) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 10.011 | 8.413 | 1.598 | 19,0% | 18.271 | 13.239 | 5.032 | 38,0% |
| Tekjuskattur | (1.537) | (896) | (641) | (71,5%) | (2.758) | (1.922) | (836) | (43,5%) |
| Hagnaður tímabilsins | 8.474 | 7.517 | 957 | 12,7% | 15.513 | 11.317 | 4.196 | 37,1% |
| Leiðrétt fyrir einskiptisliðum: | ||||||||
| Tekjubreyting | 8,5% | 5,3% | 10,9% | 1,8% | ||||
| EBITDA / rekstrartekjur | 12,6% | 10,6% | 9,6% | 8,9% | ||||
| EBIT / rekstrartekjur | 8,0% | 5,9% | 4,9% | 3,8% | ||||
| Nettóskuldir / LTM EBITDA | 1,29 | 0,86 | 1,29 | 0,86 | ||||
| Efnahagsreikningur | 30.09.2015 30.09.2014 | Breyting | % | 30.09.2015 31.12.2014 | Breyting | % | ||
| Eignir | 370.650 | 336.749 | 33.901 | 10,1% | 370.650 | 332.040 | 38.610 | 11,6% |
| Fastafjármunir | 228.554 | 216.639 | 11.915 | 5,5% | 228.554 | 214.278 | 14.276 | 6,7% |
| Veltufjármunir | 142.096 | 120.110 | 21.986 | 18,3% | 142.096 | 117.762 | 24.334 | 20,7% |
| Eigið fé | 225.958 | 215.659 | 10.299 | 4,8% | 225.958 | 216.472 | 9.486 | 4,4% |
| Skuldir | 144.692 | 121.090 | 23.602 | 19,5% | 144.692 | 115.568 | 29.124 | 25,2% |
| Langtímaskuldir | 40.777 | 66.448 | (25.671) | (38,6%) | 40.777 | 49.904 | (9.127) | (18,3%) |
| Skammtímaskuldir | 103.915 | 32.275 | 71.640 | 222,0% | 103.915 | 65.664 | 38.251 | 58,3% |
| Vaxtaberandi skuldir | 81.769 | 66.448 | 15.321 | 23,1% | 81.769 | 64.432 | 17.337 | 26,9% |
| Nettóskuldir | 52.519 | 32.275 | 20.244 | 62,7% | 52.519 | 24.893 | 27.626 | 111,0% |
| Efnislegar eignir / heildareignir | 92,9% | 94,1% | 92,9% | 94,2% | ||||
| Eiginfjárhlutfall | 61,0% | 64,0% | 61,0% | 65,2% | ||||
| Sjóðstreymi | Q3 2015 | Q3 2014 | Breyting | % | 9M 2015 | 9M 2014 | Breyting | % |
| Handbært fé frá rekstri | 6.889 | 4.968 | 1.921 | 38,7% | 21.783 | 18.890 | 2.893 | 15,3% |
| Fjárfestingarhreyfingar | (15.780) | (5.153) | (10.627) (206,2%) | (39.238) | (13.929) | (25.309) (181,7%) | ||
| Fjármögnunarhreyfingar | 1.876 | 8.483 | (6.607) | (77,9%) | 6.438 | 1.536 | 4.902 | - |
| Breyting á handbæru fé | (7.015) | 8.298 | (15.313) | - | (11.017) | 6.497 | (17.514) | - |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | (746) | 1.057 | (1.803) | - | 728 | 1.306 | (578) | (44,3%) |
| Handbært fé í lok tímabils | 29.250 | 34.173 | (4.923) | (14,4%) | 29.250 | 34.173 | (4.923) | (14,4%) |
GYLFI SIGFÚSSON FORSTJÓRI
"Rekstrartekjur og EBITDA á þriðja ársfjórðungi 2015 eru þær hæstu á einum ársfjórðungi frá árinu 2009. Rekstrartekjur voru 129,7 milljónir evra og jukust um 8,5% frá þriðja ársfjórðungi á fyrra ári, en þar af var söluhagnaður vegna skips í smíðum að fjárhæð 2,0 milljónir evra. EBITDA nam 16,4 milljónum evra og er það 29,5% hækkun frá þriðja ársfjórðungi 2014. Hagnaður eftir skatta nam 8,5 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 7,5 milljónir evra í fyrra og jókst um 12,7%.
Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins á Norður-Atlantshafi á fjórðungnum jókst um 2,8% samanborið við þriðja ársfjórðung í fyrra. Mikill vöxtur var í flutningum tengdum Íslandi á meðan minni vöxtur var í Noregi sem skýrist meðal annars af því að færri skip voru í rekstri í Noregi vegna reglubundins viðhalds. Magn dróst lítillega saman í Færeyjum sem skýrist af breyttu flutningamynstri á uppsjávarfiski. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun óx einnig hægar en búist var við samanborið við þriðja ársfjórðung síðasta árs vegna erfiðra markaðsaðstæðna í Kína, en aðrir markaðir eru í ágætu horfi.
Tekjur félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins jukust um 10,9% á milli ára og námu 369,0 milljónum evra. EBITDA fyrir tímabilið nam 35,5 milljónum evra og jókst um 5,7 milljónir evra á milli ára eða um 19,4%. Hagnaður eftir skatta jókst um 37,1% og nam 15,5 milljónum evra. Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 2,2% frá sama tímabili í fyrra og magn í frystiflutningsmiðlun um 7,9%.
Í október 2015 fékk gráa leiðin aukið hlutverk þar sem öðru 500 gámaeininga leiguskipi var bætt við leiðina til að auka afkastagetu og bætt var við viðkomum í Århus í Danmörku, Halmstad í Svíþjóð og í Swinoujscie í Póllandi.
Fyrsti áfangi af nýrri tíu þúsund tonna frystigeymslu félagsins í Hafnarfirði var tekinn í notkun um miðjan nóvember. Gert er ráð fyrir að byggingu geymslunnar verði lokið fyrir árslok.
Varðandi vinnumarkaðinn á Íslandi þá er Eimskip nú í samningaviðræðum við félag skipstjórnarmanna og vélstjóra og samningar við aðra íslenska áhafnarmeðlimi verða lausir um áramótin. Ekki er ljóst á þessari stundu hver áhrif nýrra kjarasamninga verða.
Stjórn og stjórnendur Eimskips halda áfram að meta möguleg fjárfestingartækifæri til vaxtar í samræmi við framtíðarsýn félagsins. Nokkur verkefni eru í vinnslu sem væntanlega skýrast á næstu misserum.
Það er ánægjulegt að endurgreiðslu á innborgun á nýsmíði skips í Kína er lokið, en þann 13. október tilkynnti félagið um endurgreiðslu að fjárhæð 16,1 milljón dollara. Félagið skoðar ýmsa möguleika varðandi endurnýjun á skipum félagsins.
Horfur fyrir fjórða ársfjórðung eru góðar, októbermánuður er í takt við okkar væntingar og magn í flutningakerfum félagsins það sem af er nóvember gefur jákvæðar vísbendingar. Í ljósi þessa höfum við ákveðið að þrengja afkomuspá félagsins fyrir árið 2015 úr 43 til 47 milljónum evra í EBITDA á bilinu 44,5 til 46,5 milljónir evra."
REKSTUR ÞRIÐJA ÁRSFJÓRÐUNGS
Rekstrartekjur Eimskips námu 129,7 milljónum evra á þriðja ársfjórðungi 2015 samanborið við 119,6 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og jukust um 8,5%. Þar af voru 2,0 milljónir evra tekjufærðar sem söluhagnaður og tjónabætur vegna gámaskipsins í smíðum í Kína sem hætt var við kaup á í lok ágúst. Endurgreiðslan fór fram 13. október. Tekjur af áætlunarsiglingum félagsins námu 93,7 milljónum evra samanborið við 87,3 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi í fyrra og jukust um 7,4% á milli ára. Magn í áætlunarsiglingum jókst um 2,8% á fjórðungnum samanborið við sama tímabil í fyrra, en verulegur vöxtur var í flutningum tengdum Íslandi og góður vöxtur í Noregi á meðan magn tengt Færeyjum dróst lítillega saman vegna breytts flutningamynsturs á uppsjávarfiski. Tekjur af flutningsmiðlun námu 36,0 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 32,3 milljónir á sama tímabili 2014, en það samsvarar 11,5% vexti. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 1,0% samanborið við þriðja ársfjórðung 2014 sem var mjög sterkur fjórðungur. Aukningu í tekjum umfram flutt magn má að miklu leyti skýra með
fjárfestingum í nýjum flutningsmiðlunarfyrirtækjum, samsetningu flutninga og gengisþróun, en evra veiktist töluvert á milli ára gagnvart helstu viðskiptamyntum félagsins.
EBITDA nam 16,4 milljónum evra á þriðja ársfjórðungi samanborið við 12,6 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og er það 29,5% hækkun. EBITDA hlutfall fjórðungsins nam 12,6% samanborið við 10,6% á sama fjórðungi fyrra árs. EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 12,5 milljónum evra samanborið við 10,9 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi 2014 og er það 14,9% hækkun. EBITDA hlutfall áætlunarsiglinga nam 13,4% samanborið við 12,5% í fyrra. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi nam 3,8 milljónum evra samanborið við 1,7 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og er það 121,7% vöxtur. EBITDA hlutfall flutningsmiðlunarstarfsemi var 10,6% og jókst úr 5,3% á þriðja ársfjórðungi í fyrra þar sem nýja frystigeymslan í St. Anthony og flutningsmiðlunarfyrirtæki sem keypt voru fyrr á þessu ári hafa áhrif til hækkunar.
Afskriftir námu 5,9 milljónum evra samanborið við 5,6 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi 2014. Hækkunin skýrist af reglubundu viðhaldi og endurbótum skipa og afskriftum í nýjum félögum í samstæðunni.
Rekstrarhagnaður fjórðungsins, EBIT, nam 10,4 milljónum evra samanborið við 7,1 milljón evra á sama tímabili í fyrra og er það aukning um 47,9%.
Nettó fjármagnsgjöld námu 0,5 milljónum evra samanborið við 1,2 milljóna evra nettó fjármunatekjur á þriðja ársfjórðungi 2014. Breytingin á milli ára skýrist aðallega af 0,2 milljóna evra gengishagnaði á þriðja ársfjórðungi í ár samanborið við 1,9 milljóna evra gengishagnað á sama tímabili í fyrra. Hlutdeild í hagnaði hlutdeildarfélaga nam 0,1 milljón evra á fjórðungnum samanborið við 0,2 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi fyrra árs.
Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 10,0 milljónum evra samanborið við 8,4 milljóna evra hagnað fyrir tekjuskatt á þriðja ársfjórðungi 2014 og er hækkunin 19,0%.
Gjaldfærðir skattar fjórðungsins námu 1,5 milljónum evra samanborið við 0,9 milljónir evra á sama tímabili í fyrra.
Hagnaður þriðja ársfjórðungs eftir skatta nam 8,5 milljónum evra samanborið við 7,5 milljóna evra hagnað á sama tímabili í fyrra og samsvarar það 12,7% hækkun.
REKSTUR FYRSTU NÍU MÁNAÐA ÁRSINS
- Tekjur námu 369,0 milljónum evra og jukust um 36,2 milljónir evra eða 10,9% á milli ára
- EBITDA var 35,5 milljónir evra og jókst um 5,7 milljónir evra eða 19,4% á milli ára
- Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 2,2% á milli ára
- Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 7,9% á milli ára
Rekstrartekjur Eimskips fyrstu níu mánuði ársins námu 369,0 milljónum evra samanborið við 332,8 milljónir evra á sama tímabili í fyrra sem er aukning um 10,9%. Tekjur af áætlunarsiglingum þessa fyrstu níu mánuði námu 263,3 milljónum evra samanborið við 246,1 milljónir evra og jukust þær um 7,0% á milli ára. Heildaraukning í magni í áætlunarsiglingum nam 2,2% frá sama tímabili í fyrra. Tekjur af flutningsmiðlun námu 105,6 milljónum evra samanborið við 86,6 milljónir evra fyrstu níu mánuðina í fyrra og jukust þær um 21,9%, einkum vegna aukningar í magni, samsetningar flutninga, gengisþróunar og fjárfestinga í nýjum fyrirtækjum í samstæðu Eimskips. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 7,9% frá fyrstu níu mánuðum 2014.
Rekstrargjöld fyrirtækisins námu alls 333,5 milljónum evra samanborið við 303,1 milljón evra fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2014 og jukust um 10,1%. Þar af nam rekstrarkostnaður 263,5 milljónum evra samanborið við 243,4 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og er það 8,3% hækkun. Laun og launatengd gjöld námu 70,0 milljónum evra á tímabilinu og jukust um 17,4% frá fyrra ári, en þar af skýrast 5,9% af
almennum launahækkunum, 4,6% af nýjum fyrirtækjum í samstæðunni, 4,0% af gengisbreytingum og 2,9% af auknum umsvifum og yfirvinnu.
EBITDA nam 35,5 milljónum evra fyrstu níu mánuði ársins samanborið við 29,7 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og samsvarar það 19,4% aukningu. EBITDA hlutfall tímabilsins nam 9,6% samanborið við 8,9% fyrstu níu mánuði fyrra árs. EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 27,8 milljónum evra samanborið við 25,1 milljón evra fyrstu níu mánuðina 2014 sem er aukning um 10,7%. EBITDA hlutfall áætlunarsiglinga var 10,6% samanborið við 10,2% fyrstu níu mánuðina í fyrra. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi nam 7,6 milljónum evra samanborið við 4,6 milljóna evra EBITDA á sama tímabili í fyrra og jókst um 66,6%. EBITDA hlutfall flutningsmiðlunar var 7,2% samanborið við 5,3% á síðasta ári og skýrist hækkunin einkum af nýjum fyrirtækjum í samstæðunni sem hækka EBITDA hlutfallið. Áhrif nýrra fyrirtækja sem tekin hafa verið yfir á árinu hækka EBITDA um 1,7 milljónir evra.
Afskriftir tímabilsins námu 17,5 milljónum evra samanborið við 17,1 milljón evra á sama tímabili í fyrra. Aukningin skýrist aðallega af fjárfestingum í tækjum og búnaði innan samstæðunnar.
Rekstrarhagnaður tímabilsins, EBIT, nam 18,0 milljónum evra samanborið við 12,6 milljónir evra á fyrstu níu mánuðum síðasta árs og jókst um 43,3%.
Nettó fjármunatekjur námu 27 þúsund evrum samanborið við 0,4 milljóna evra nettó fjármagnsgjöld fyrstu níu mánuði fyrra árs. Breytingin skýrist að mestu af lægri fjármunatekjum og hærri fjármagnskostnaði í ár en á sama tímabili í fyrra. Gengishagnaður nam 2,2 milljónum evra en það er sama fjárhæð og á fyrstu níu mánuðum fyrra árs. Hlutdeild í hagnaði hlutdeildarfélaga nam 0,3 milljónum evra sem er sama fjárhæð og á sama tímabili í fyrra.
Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 18,3 milljónum evra samanborið við 13,2 milljóna evra hagnað fyrir tekjuskatt fyrstu níu mánuði fyrra árs og er það hækkun um 5,0 milljónir evra eða 38,0%.
Gjaldfærðir skattar tímabilsins námu 2,8 milljónum evra samanborið við 1,9 milljónir evra á sama tímabili í fyrra. Virkt skatthlutfall er svipað og það var á sama tímabili í fyrra.
Hagnaður eftir skatta fyrstu níu mánuði ársins nam 15,5 milljónum evra samanborið við 11,3 milljóna evra hagnað á sama tímabili 2014 og er það hækkun um 4,2 milljónir evra eða 37,1%.
Eins og sjá má á eftirfarandi myndum þá hefur flutt magn bæði í áætlunarsiglingum félagsins og flutningsmiðlun verið að aukast jafnt og þétt frá árinu 2010. Magnvísitalan á hægri ásnum miðast við að magnið árið 2010 sé 100.
Miklar breytingar voru gerðar á siglingakerfi félagsins í mars 2013 sem juku afkastagetu þess og í febrúar 2014 var ráðist í aðlögun á kerfinu, meðal annars vegna þess að slæm veðurskilyrði til siglinga settu áætlunarkerfið úr skorðum. Bætt var við nýrri siglingaleið, gráu leiðinni, á milli Færeyja og Skotlands til að auka sveigjanleika kerfisins og áreiðanleika þjónustunnar við viðskiptavini. Í febrúar 2015 voru græna leiðin, sem siglir á milli Íslands og Norður-Ameríku með viðkomu í Sortland í Noregi, og rauða leiðin, sem annaðist strandsiglingar við Ísland með tengingu við Evrópu, sameinaðar í nýja græna leið með þremur skipum sem sigla beint á milli Evrópu og Norður-Ameríku með viðkomum á
Íslandi. Í október 2015 fékk gráa leiðin aukið hlutverk þar sem öðru 500 gámaeininga leiguskipi var bætt við leiðina til að auka afkastagetu og bætt var við viðkomum í Århus í Danmörku, Halmstad í Svíþjóð og í Swinoujscie í Pólandi.
Félagið er með 20 skip í rekstri, þar af fjórtán eigin skip og sex leiguskip. Þrettán skipanna eru í áætlunarsiglingum, þrjú eru í 'spot' þjónustu, eitt er í stórflutningum og þrjú í ferjusiglingum.
Rekstur félagsins hefur verið stöðugur undanfarin ár eins og sjá má á eftirfarandi myndum, en á árinu 2015 höfum við séð mikinn vöxt í tekjum og EBITDA. Myndirnar sýna hvernig rekstrartekjur og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, skiptast á ársfjórðunga á árunum 2011 til 2015.
Á myndunum hafa rekstrartekjur og EBITDA verið leiðrétt fyrir einskiptisliðum á árunum 2011 og 2012. Rekstrartekjur og EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2011 hafa verið lækkaðar um 6,4 milljónir evra vegna innheimtu á áður afskrifaðri kröfu. EBITDA hefur hins vegar verið hækkuð um 0,7 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2011 vegna strands Goðafoss og um 0,7 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi 2012 vegna kostnaðar við skráningu félagsins. Að lokum var EBITDA á fjórða ársfjórðungi 2012 hækkuð um alls 3,9 milljónir evra, þar af um 1,0 milljón evra vegna skráningar félagsins og um 2,9 milljónir evra vegna kostnaðar við kauprétti sem fallið var frá.
EFNAHAGUR
- Heildareignir námu 370,7 milljónum evra í lok september
- Eiginfjárhlutfall var 61,0%
- Vaxtaberandi skuldir námu 81,8 milljónum evra
- Nettóskuldir námu 52,5 milljónum evra
Heildareignir Eimskips námu 370,7 milljónum evra þann 30. september 2015. Til samanburðar námu heildareignir 336,7 milljónum evra í lok september 2014 og 332,0 milljónum evra í árslok 2014.
Fastafjármunir námu 228,6 milljónum evra í lok september samanborið við 216,6 milljónir evra í lok september í fyrra og 214,3 milljónir evra í árslok 2014. Nettó fjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 34,5 milljónum evra samanborið við 15,6 milljónir evra fyrstu níu mánuði ársins 2014.
Veltufjármunir félagsins námu 142,1 milljónum evra í lok þriðja ársfjórðungs samanborið við 120,1 milljón evra í lok september 2014 og 117,8 milljónir evra í árslok 2014. Á meðal viðskiptakrafna í lok september var 14,1 milljón evra vegna endurgreiðslu á skipi í smíðum sem greidd var í október. Viðskiptakröfur hækkuðu einnig vegna aukinna tekna, gengisþróunar og vegna nýrra fyrirtækja í samstæðunni. Handbært fé nam 29,3 milljónum evra í lok september samanborið við 34,2 milljónir evra í lok þriðja ársfjórðungs 2014 og 39,5 milljónir evra í lok árs 2014.
Eigið fé nam 226,0 milljónum evra í lok september og var eiginfjárhlutfallið 61,0%. Arður að fjárhæð 933,2 milljónir króna, jafngildi 6,3 milljóna evra, var greiddur hluthöfum í apríl. Til samanburðar nam eigið fé 216,5 milljónum evra í árslok 2014 og eiginfjárhlutfallið var 65,2%.
Skammtímaskuldir námu 103,9 milljónum evra í lok september samanborið við 70,0 milljónir evra í lok september 2014 og 65,7 milljónir evra í lok árs 2014. Hækkun á skammtíma vaxtaberandi skuldum á árinu nam 26,4 milljónum evra. Skýrist hækkunin einkum af 7,6 milljóna evra brúarláni vegna nýbyggingar skipa sem kemur til greiðslu á fyrsta ársfjórðungi 2016, láni vegna fjárfestingar í nýrri frystigeymslu í Hafnarfirði og lánalínu vegna fjárfestinga í gámakrönum og öðrum búnaði, samtals að fjárhæð 18,0 milljónir evra. Félagið hefur tryggt sér langtímafjármögnun vegna þessara verkefna sem dregið verður á nú á fjórða ársfjórðungi. Þá hafa viðskiptaskuldir aukist í takt við aukin umsvif, gengisþróun og vegna fyrirtækja sem bæst hafa við samstæðu Eimskips á þessu ári.
Vaxtaberandi skuldir námu 81,8 milljónum evra í lok fjórðungsins samanborið við 66,4 milljónir evra í lok september 2014 og 64,4 milljónir evra í árslok 2014.
Nettóskuldir námu 52,5 milljónum evra í lok september samanborið við 32,3 milljónir evra í lok september 2014 og 24,9 milljónir evra í árslok 2014.
SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR
- Handbært fé frá rekstri nam 21,8 milljónum evra fyrstu níu mánuði ársins
- Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 39,2 milljónum evra
- Handbært fé var 29,3 milljónir evra í lok september
Handbært fé frá rekstri nam 21,8 milljónum evra á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 18,9 milljónir evra á sama tímabili 2014.
Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 39,2 milljón evra samanborið við 13,9 milljónir evra á sama tímabili 2014. Þar af námu fjárfestingarhreyfingar tengdar kaupum á nýjum fyrirtækjum 7,0 milljónum evra. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 36,3 milljónum evra, en þar af voru fjárfestingar fyrir 2,1 milljón evra sem ekki höfðu áhrif á sjóðstreymi. Til samanburðar námu heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum 16,4 milljónum evra á fyrstu níu mánuðum 2014, þar af fjárfestingar að fjárhæð 1,7 milljónir evra sem ekki höfðu áhrif á sjóðstreymi.
Nettó innstreymi fjármagns vegna fjármögnunarhreyfinga nam 6,4 milljónum evra samanborið við 1,5 milljónir evra á sama tímabili í fyrra. Breytingin skýrist einkum af nýjum lánum að fjárhæð 19,2 milljónir evra vegna fjárfestinga.
Vegna aukinna fjárfestinga var sjóðsflæði neikvætt um 11,0 milljónir evra samanborið við jákvætt sjóðsflæði að fjárhæð 6,5 milljónir evra á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. Handbært fé í lok september nam 29,3 milljónum evra samanborið við 34,2 milljóna evra handbært fé í lok september 2014 og 39,5 milljónir evra í lok ársins.
ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2015
Eimskip tilkynnti þann 13. október 2015 um móttöku endurgreiðslu þar sem hætt var við kaup á gámaskipi sem var í smíðum í Kína. Á sama tíma var tilkynnt um nýja afkomuspá félagsins fyrir árið 2015 þar sem gert var ráð fyrir að EBITDA yrði á bilinu 43 til 47 milljónir evra.
Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins á fjórða ársfjórðungi er í samræmi við væntingar. Rekstur félagsins tengdur Íslandi hefur verið góður það sem af er ári og er gert ráð fyrir áframhaldandi vexti. Afkoma af starfsemi Eimskips í Noregi var undir væntingum á fyrsta ársfjórðungi vegna veðurfars og aflabrests en afkoman var mun betri á öðrum og þriðja ársfjórðungi og er áfram gert ráð fyrir vexti. Önnur starfsemi félagins stendur undir væntingum. Í ljósi þessa hefur afkomuspánni verið breytt og er nú gert ráð fyrir að EBITDA ársins 2015 verði á bilinu 44,5 til 46,5 milljónir evra.
LYKILSTÆRÐIR ÁRSFJÓRÐUNGA
Fjárhæðir í þúsundum evra
| Rekstrarreikningur | Q3 2015 | Q2 2015 | Q1 2015 | Q4 2014 | Q3 2014 |
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 129.721 | 126.587 | 112.663 | 118.794 | 119.583 |
| Rekstrargjöld | 113.361 | 113.281 | 106.879 | 109.953 | 106.949 |
| EBITDA | 16.360 | 13.306 | 5.784 | 8.841 | 12.634 |
| EBIT | 10.427 | 7.516 | 4 9 |
2.789 | 7.050 |
| Hagnaður tímabilsins | 8.474 | 5.515 | 1.524 | 2.290 | 7.517 |
| EBITDA / rekstrartekjur | 12,6% | 10,5% | 5,1% | 7,4% | 10,6% |
| EBIT / rekstrartekjur | 8,0% | 5,9% | 0,0% | 2,3% | 5,9% |
| Efnahagsreikningur | 30.09.2015 | 30.06.2015 | 31.03.2015 | 31.12.2014 | 30.09.2014 |
| Eignir | 370.650 | 357.667 | 341.538 | 332.040 | 336.749 |
| Eigið fé | 225.958 | 219.400 | 214.879 | 216.472 | 215.659 |
| Skuldir | 144.692 | 138.267 | 126.659 | 115.568 | 121.090 |
| Vaxtaberandi skuldir | 81.769 | 77.012 | 64.703 | 64.432 | 66.448 |
| Nettóskuldir | 52.519 | 40.001 | 30.277 | 24.893 | 32.275 |
| Eiginfjárhlutfall | 61,0% | 61,3% | 62,9% | 65,2% | 64,0% |
| Sjóðstreymi | Q3 2015 | Q2 2015 | Q1 2015 | Q4 2014 | Q3 2014 |
| Handbært frá rekstri | 6.889 | 11.811 | 3.083 | 12.713 | 4.968 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (15.780) | (14.963) | (8.495) | (4.382) | (5.153) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 1.876 | 5.929 | (1.367) | (2.108) | 8.483 |
| Handbært fé í lok tímabils | 29.250 | 37.011 | 34.426 | 39.539 | 34.173 |
HLUTHAFAR
Markaðsvirði félagsins var 47,4 milljarðar króna þann 18. nóvember 2015
Viðskipti með bréf Eimskips hófust á Nasdaq Iceland þann 16. nóvember 2012. Útboðsgengi var 208,00 kr. á hlut og var lokaverð í árslok 2012 230,00 kr. á hlut. Á árinu 2013 fór lokaverð hæst í 281,00 kr. á hlut og lægst í 221,00 kr. á hlut og var meðaltalslokaverð ársins 255,05 kr. á hlut. Lokaverð á hlut í árslok 2013 var 262,00 kr.
Á árinu 2014 var lokaverðið á bilinu 218,50 kr. til 268,50 kr. á hlut með meðaltalslokaverði ársins 234,69 kr. á hlut og lokaverði ársins 237,00 kr. Lokaverð þann 18. nóvember 2015 var 254,00 kr. og var markaðsvirði félagsins miðað við fjölda útstandandi hluta því 47,4 milljarðar króna þann dag sem jafngildir 337,4 milljónum evra.
Fjöldi útgefinna hluta er 200.000.000, þar af eru 186.639.230 útistandandi hlutir og 13.360.770 eigin hlutir. Fjöldi hluthafa í árslok 2014 var 1.101 og voru þeir 961 þann 18. nóvember 2015.
RANNSÓKN SAMKEPPNISEFTIRLITSINS
Umboðsmaður Alþingis ákvað í október að aðhafast ekki frekar á þessu stigi málsins vegna kvörtunar sem Eimskip sendi til hans. Helsta ástæðan er sú að rannsókn Samkeppniseftirlitsins stendur enn yfir og að Samkeppniseftirlitið hefur í svarbréfi til Umboðsmanns Alþingis fallist á að almennt séð sé óheppilegt að sex mánuðir líði frá því að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála er kveðinn upp
þar til stofnunin afhendi félaginu gögn samkvæmt honum. Samkeppniseftirlitið muni í framtíðinni leitast við að tryggja að tafir á borð við þær sem urðu á afgreiðslu erinda Eimskips endurtaki sig ekki.
Samkeppniseftirlitið vinnur enn að rannsókn málsins og hefur óskað eftir frekari upplýsingum frá félaginu. Eimskip mun áfram leggja sig fram við að veita svör í samræmi við lagalegar skyldur félagsins. Það er fyrirtækinu fyrir bestu að niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir sem allra fyrst.
UM EIMSKIP
Eimskip rekur 56 starfsstöðvar í 19 löndum og er með 20 skip í rekstri. Félagið hefur á að skipa um 1.570 starfsmönnum. Um helmingur tekna félagsins kemur frá starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningaþjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.
KYNNINGARFUNDUR 20. NÓVEMBER 2015
Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 20. nóvember 2015 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir þriðja ársfjórðung og fyrstu níu mánuði ársins 2015. Hægt verður að nálgast kynningarefni fundarins að honum loknum á fjárfestasíðu félagsins, www.eimskip.is/investors, og í fréttakerfi Nasdaq Nordic.
SAMÞYKKI STJÓRNAR
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti árshlutareikning samstæðu Eimskips fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2015 á stjórnarfundi þann 19. nóvember 2015.
FJÁRHAGSDAGATAL
- Uppgjör fjórða ársfjórðungs 2015 verður birt 25. febrúar 2016
- Aðalfundur 2016 verður haldinn 17. mars 2016
FREKARI UPPLÝSINGAR
- Gylfi Sigfússon forstjóri, sími: 525 7202
- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, sími: 525 7202
- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: [email protected]
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.