Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands Earnings Release 2014

Feb 26, 2015

2194_rns_2015-02-26_313d9726-0930-45ae-9039-572c85c2ca66.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Afkomutilkynning | 26. februar 2015

E

EIMSKIP

EIMSKIP KYNNIR AFKOMU ÅRSINS 2014

  • Rekstrartekjur voru 451,6 milljónir evra, jukust um 17,7 milljónir evra eða 4,1% frá 2013
  • EBITDA nam 38,5 milljónum evra, hækkaði um 1,5 milljónir evra eða 4,0% frá 2013
  • Hagnaður eftir skatta var 13,6 milljónir evra, jókst um 2,8 milljónir evra eða 25,8% frá 2013
  • Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 7,9% á milli ára
  • Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 11,0% á milli ára
  • Eiginfjárhlutfall var 65,2% og nettóskuldir námu 24,9 milljónum evra í árslok
  • Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður sem samsvarar 45,7% af hagnaði ársins
  • Áætluð EBITDA ársins 2015 er á bilinu 39 til 44 milljónir evra

Fjárhæðir í þúsundum evra

Rekstrarreikningur Q4 2014 Q4 2013 Breyting % 2014 2013 Breyting %
Rekstrartekjur 118.794 106.875 11.919 11,2% 451.555 433.824 17.731 4,1%
Rekstrargjöld 109.953 98.996 10.957 11,1% 413.013 396.770 16.243 4,1%
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA 8.841 7.879 962 12,2% 38.542 37.054 1.488 4,0%
Afskriftir (6.052) (5.487) (565) (10,3%) (23.195) (21.143) (2.052) (9,7%)
Rekstrarhagnaður - EBIT 2.789 2.392 397 16,6% 15.347 15.911 (564) (3,5%)
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) 169 (842) 1.011 - 591 (3.234) 3.825 -
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga (30) 2 (32) - 229 2 227 -
Hagnaður fyrir tekjuskatt 2.928 1.552 1.376 88,7% 16.167 12.679 3.488 27,5%
Tekjuskattur (638) (384) (254) (66,1%) (2.560) (1.862) (698) (37,5%)
Hagnaður timabilsins 2.290 1.168 1.122 96,1% 13.607 10.817 2.790 25,8%
Leiðrétt fyrir einskiptisliðum:
Tekjubreyting 11,2% (1,0%) 4,1% 2,4%
EBITDA / rekstrartekjur 7,4% 7,4% 8,5% 8,5%
EBIT / rekstrartekjur 2,3% 2,2% 3,4% 3,7%
Nettóskuldir / LTM EBITDA 0,65 0,89 0,65 0,89
Efnahagsreikningur 31.12.2014 31.12.2013 Breyting % 31.12.2014 31.12.2013 Breyting %
Eignir 332.040 314.365 17.675 5,6% 332.040 314.365 17.675 5,6%
Fastafjármunir 214.278 216.096 (1.818) (0,8%) 214.278 216.096 (1.818) (0,8%)
Veltufjármunir 117.762 98.269 19.493 19,8% 117.762 98.269 19.493 19,8%
Eigið fé 216.472 205.771 10.701 5,2% 216.472 205.771 10.701 5,2%
Skuldir 115.568 108.594 6.974 6,4% 115.568 108.594 6.974 6,4%
Vaxtaberandi skuldir 64.432 59.398 5.034 8,5% 64.432 59.398 5.034 8,5%
Nettóskuldir 24.893 33.028 (8.135) (24,6%) 24.893 33.028 (8.135) (24,6%)
Efnislegar eignir / heildareignir 94,2% 93,5% 94,2% 93,5%
Eiginfjárhlutfall 65,2% 65,5% 65,2% 65,5%
Sjóðstreymi Q4 2014 Q4 2013 Breyting % 2014 2013 Breyting %
Handbært fé frá rektí 12.713 7.172 5.541 77,3% 31.603 20.537 11.066 53,9%
Fjárfestingarhreyfingar (4.382) (4.980) 598 12,0% (18.311) (26.601) 8.290 31,2%
Fjármögnunarhreyfingar (2.108) (2.049) (59) (2,9%) (572) (3.558) 2.986 83,9%
Breyting á handbærú fé 6.223 143 6.080 - 12.720 (9.622) 22.342 -
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé (857) (449) (408) (90,9%) 449 (1.312) 1.761 -
Handbært fé í lok timabils 39.539 26.370 13.169 49,9% 39.539 26.370 13.169 49,9%

Afkomutilkynning | 26. februar 2015

E IMSKIP

GYLFI SIGFÚSSON FORSTJÓRI

„Fjórði ársfjórðungur var í samræmi við væntingar með 11,2% vöxt í tekjum frá fjórða ársfjórðungi 2013 og EBITDA að fjárhæð 8,8 milljónir evra sem var 12,2% hærra en á sama tímabili 2013. Rekstrartekjur ársins 2014 námú 451,6 milljónum evra og jukust um 4,1% á milli ára. EBITDA ársins nám 38,5 milljónum evra og jókst um 4,0% frá 2013. Hagnaður ársins eftir skatta nám 13,6 milljónum evra og jókst um 25,8% á milli ára.

Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst um 7,9% frá fyrra ári. Verulegur vöxtur var í flutningum til og frá Íslandi og Færeyjum. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 11,0% frá 2013, einkum vegna flutninga innan Asíu, nýrra vöruflokka, nýrra markaða og aukinna flutninga þar sem Eimskip annast tollafgreiðslu og flutning vörunnar alla leið.

Eimskip gerði breytingar á siglingakerfi sínu á fyrsta ársfjórðungi 2014 og í febrúar 2015 með það að leiðarljósi að auka afkastagetu og áreiðanleika kerfisins og styrkja þar með enn frekar þjónustu við viðskiptavini félagsins. Á árinu 2014 var gráu leiðinni bætt við í siglingum á milli Færeyja og Skotlands og breytingar voru gerðar á viðkomum rauðu leiðarinnar sem tengdi strandsiglingar á Íslandi við Evrópu. Í febrúar 2015 voru rauða leiðin og græna leiðin, sem siglir á milli Evrópu og Norður-Ameríku með viðkomu í Sortland í Noregi, sameinaðar undir nafni grænu leiðarinnar með þrjú gámaskip í siglingum. Nýja græna leiðin mun sigla óslitið á milli Evrópu og Norður-Ameríku með viðkomur í höfnum á Íslandi til að þjóna íslenskum inn- og útflytjendum. Með breytingunni eykst tíðni ferða á milli Evrópu og Norður-Ameríku um allt að fimm ferðir á ári. Félagið mun í samstarfi við hafnaryfirvöld í Halifax og Halterm gámahöfnina styrkja þjónustu sína á milli Bandaríkjanna og Kanada.

Stjórn og stjórnendur Eimskips hafa varið tölverðum tíma í mat á mögulegum fjárfestingartækifærum í leit félagsins að tækifærum til vaxtar og til að styrkja stöðu félagsins á mörkuðum utan Íslands. Þetta er í samræmi við þá stefnu félagsins að vera leiðandi flutningafélag á Norður-Atlantshafi.

Fyrstu tvo mánuði þessa árs hefur Eimskip farið í samstarf, stofnað og fjárfest í ýmsum fyrirtækjum og uppbyggingarverkefnum. Flutningsmiðlunarfyrirtækið Jac. Meisner í Rotterdam í Hollandi var keypt og nýtt félag um skiparekstur var stofnað í Hamborg í Þýskalandi í samstarfi við König & Cie. Eimskip í Danmörku tók yfir vöruhúsarekstur Damco í Árósum sem gerir Eimskip að stærsta rekstraraðila í vöruhúsabjónustu í þessari næststærstu höfn Skandinavi. Eimskip keypti í samstarfi við Harbour Grace Shrimp Company Ltd. rekstur frystigeymslunnar í St. Anthony á Nýfundnalandi, en Eimskip hefur siglt til St. Anthony frá árinu 2005. Eimskip hefur einnig undirritað kaupsamning við eigendur flutningsmiðlunarfyrirtækisins Cargocan í St. John's á Nýfundnalandi um kaup á öllu hlutafé félagsins. Heildarfjárfestingin í þessum fyrirtækjum nemur um 6 milljónum evra og er gert ráð fyrir að hún auki rekstrartekjur Eimskips um 16 milljónir evra á ársgrundvelli og er áætað að EBITDA hlutfall verði á bilinu 8-10%.

Í byrjun þessa árs hóf Eimskip framkvæmdir við byggingu á 10 þúsund tonna frystigeymslu félagsins í Hafnarfirði. Félagið hefur einnig fjárfest í uppbyggingarverkefnum á Íslandi með kaupum á þremur lóðum á Grundartanga og tveim hafnarkrönum. Eimskip mun halda áfram meta möguleg fjárfestingartækifæri á komandi mánuðum og eru ýmis verkefni í vinnslu.

Bygging á Bakkafossi, 875 gámaeininga skipi, hefur ekki gengið samkvæmt áætlun og félagið gerir ráð fyrir frekari töfum á afhendingu sem áætuð hafði verið á fjórða ársfjórðungi þessa árs. Eimskip metur nú stöðuna í ljósi frekari tafa. Félagið hefur þegar greitt 11,4 milljónir evra vegna fjárfestingarinnar. Greiðslurnar til skipasmiðastöðvarinnar eru tryggðar af fyrsta flokks banka í eigu kínverska rikisins ef Eimskip ákveður að óska eftir endurgreiðslu þess sem þegar hefur verið greitt.

Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2015 sem nemur 5,00 krónum á hlut. Nemur heildarfjárhæð arðgreiðslunnar 933,2 milljónum króna, eða 6,2 milljónum evra, sem samsvarar 45,7% af hagnaði ársins 2014.

Afkomuspa okkar fyrir árið 2015 er EBITDA á bilinu 39 til 44 milljónir evra.“


Afkomutilkynning | 26. februar 2015

E IMSKIP

REKSTUR ÅRSINS 2014

Rekstrartekjur Eimskips á árinu 2014 námu 451,6 milljónum evra samanboríð við 433,8 milljónir evra á árinu 2013. Tekjur af áætlunarsiglingum félagsins námu 330,6 milljónum evra og jukust um 3,6% frá fyrra ári. Heildaraukning í magni áætlunarsiglinga nam 7,9% á milli ára og skýrist einkum af auknum flutningum á bifreiðum, byggingarvörum og makríl til og frá Íslandi og auknum flutningum á neysluvörum, makríl og laxi til og frá Færeýjum. Tekjur af flutningsmiðlun námu 121,0 milljón evra og jukust um 5,5% á milli ára. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 11,0% frá fyrra ári.

EBITDA ársins nam 38,5 milljónum evra samanboríð við 37,1 milljón evra á árinu 2013 og var EBITDA hlutfallið 8,5% bæði árin. Bættur árangur skýrist af vexti í flutningsmagni í áætlunarsiglingum og afkastameira siglingakerfi eftir breytingar á árinu 2014. Félagíð jók hagkvæmni siglingakerfisins í febrúar 2014 með fækkun skipa á rauðu leiðinni úr tveimur í eitt með því að færa Reykjavoss yfir á grænu leiðina og gráu leiðinni var bætt við með minna skipi en Reykjavossi. Á hinn bóginn voru fyrsti og fjörði ársfjörðungur félaginu erfiðir vegna slæmra veðurskilyrða á Norður-Atlantshafinu. Pá höfðu einnig öreglulegir liðir alls að fjárhæð 1,0 milljón evra áhrif á afkomu ársins. Þeir voru vegna vinnu við fjárfestingarverkefni, undirbúnings tvíhliða skráningar og ráðgjafarkostnaðar sem hláust af rannsókn samkeppnisyfirvalda. EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 32,7 milljónum evra og jókst um 5,1% frá 2013. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi nam 5,8 milljónum evra og lækkaði um 1,7% á milli ára.

Afskriftir ársins námu 23,2 milljónum evra samanboríð við 21,1 milljón evra á árinu 2013. Hækkunin stafar af viðbótum og endurnýjun á gámum og öðrum tækjabúnaði, sveiflum í eignfærðum endurbótum skipa og afskriftum vegna Lagarfoss.

Rekstrarhagnaður ársins, EBIT, nam 15,3 milljónum evra sem er 3,5% lækku frá 15,9 milljónum evra á fyrra ári, vegna 2,1 milljónar evra hækkunar á afskriftum.

Nettó fjármunatekjur ársins námu 0,6 milljónum evra samanboríð við 3,2 milljóna evra nettó fjármagnsgjöld á árinu 2013. Breytingin á milli ára skýrist einkum af 2,8 milljóna evra gengishagnaði 2014 samanboríð við 1,1 milljónar evra gengistap á fyrra ári. Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga nam 0,2 milljónum evra á árinu.

Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 16,2 milljónum evra samanboríð við 12,7 milljónir evra á árinu 2013 og jókst um 3,5 milljónir evra eða 27,5%.

Gjaldfærðir skattar ársins námu 2,6 milljónum evra samanboríð við 1,9 milljónir evra á árinu 2013. Virkt skatthlutfall var 15,8% á árinu en var 14,7% á fyrra ári.

Hagnaður ársins eftir skatta nam 13,6 milljónum evra samanboríð við 10,8 milljónir evra á árinu 2013 og jókst um 2,8 milljónir evra eða 25,8%.

Rekstur félagsins hefur verið stöðugur undanfarin ár eins og sjá má á eftirfarandi myndum, en þær sýna hvernig rekstrartekjur og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, skiptast á ársfjörðunga á árunum 2010 til 2014.

Á myndunum hafa rekstrartekjur og EBITDA verið leiðrétt fyrir einskiptisliðum á árunum 2011 og 2012. Rekstrartekjur og EBITDA á fyrsta ársfjörðungi 2011 hafa verið lækkaðar um 6,4 milljónir evra vegna innheimtu á áður afskrifáðri kröfu. EBITDA hefur hins vegar verið hækkuð um 0,7 milljónir evra á öðrum ársfjörðungi 2011 vegna strands Goðafoss og um 0,7 milljónir evra á þriðja ársfjörðungi 2012 vegna kostnaðar við skráningu félagsins. Að lokum var EBITDA á fjörða ársfjörðungi 2012 hækkuð um alls 3,9 milljónir evra, þar af um 1,0 milljón evra vegna skráningar félagsins og um 2,9 milljónir evra vegna kostnaðar við kauprétti sem fallið var frá.


Afkomutilkynning | 26. februar 2015

E IMSKIP

img-0.jpeg
i milljónum evra
Rekstrartekjur

img-1.jpeg
EBITDA

Mjög miklar breytingar voru gerðar á siglingakerfi félagsins í mars 2013 sem juku afkastagetu þess og í febrúar 2014 var ráðist í aðlögun á kerfinu, meðal annars vegna þess að slæm veðurskilyrði til siglinga settu áætlunarkerfið úr skorðum. Bætt var við nýrri siglingaleið, gráu leiðinni, á milli Færeýja og Skotlands til að auka sveigjanleika kerfisins og áreiðanleika þjónustunnar við viðskiptavini. Í febrúar 2015 voru græna leiðin, sem siglir á milli Íslands og Norður-Ameriku með viðkomu í Sortland í Noregi, og rauða leiðin, sem annaðist strandsiglingar við Ísland með tengingu við Evrópu, sameinaðar í nýja græna leið með þrem skipum sem sigla beint á milli Evrópu og Norður-Ameriku með viðkomum á Íslandi. Breytingin mun auka áreiðanleika og þjónustu við viðskiptavini og mun fjölga ferðum á milli Evrópu og Norður-Ameriku um fimm á ársgrundvelli.

Félagið er með 16 skip í rekstri, þar af tólf eigin skip og fjögur leiguskip. Tólf skipanna eru í áætlunarsiglingum, tvö eru í "spot" þjónustu, eitt er í stórflutningum og eitt er í ferjusiglingum.

REKSTUR FJÓRDA ÁRSFJÓRDUNGS

  • Rekstrartekjur voru 118,8 milljónir evra, jukust um 11,9 milljónir evra eða 11,2% frá Q4 2013
  • EBITDA var 8,8 milljónir evra, jókst um 1,0 milljón evra eða 12,2% frá Q4 2013
  • Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 7,6% frá Q4 2013
  • Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 7,1% frá Q4 2013

Rekstrartekjur á fjórða ársfjórðungi námu 118,8 milljónum evra samanborið við 106,9 milljónir evra á sama tímabili 2013 og jukust um 11,2% á milli ára. Tekjur af áætlunarsiglingum á fjórða ársfjórðungi námu 84,5 milljónum evra og jukust um 6,6% frá sama tímabili 2013. Nam heildaraukningin í magni í áætlunarsiglingum félagsins 7,6% frá fjórða ársfjórðungi 2013 og skýrist einkum af auknum flutningum á bifreiðum, byggingarvörum og almennri neytendavöru til Íslands og auknum flutningum tengdum Færeyjum, einkum á neysluvörum og sjávarafurðum. Tekjur af flutningsmiðlun námu 34,3 milljónum evra og jukust um 24,1% frá fjórða ársfjórðungi 2013. Magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 7,1% frá sama tímabili 2013, einkum vegna aukinna flutninga innan Asíu með stytti flutningaleiðum og vegna aukinna viðskipta við mottakanda voru þar sem Eimskip annast tollafgreiðslu og flutning gáma alla leið, þ.e. "door-to-door" flutninga. Auk þess var aukning vegna nýrra vöruflokka og nýrra markaða.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, nam 8,8 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 7,9 milljónir evra á sama tímabili 2013 og jókst um 12,2%. EBITDA hlutfall á fjórða ársfjórðungi var 7,4% bæði árin. Pá höfðu einnig öreglulegir liðir alls að fjárhæð 0,5 milljónir evra neikvæð áhrif á afkomu fjórðungsins. Þeir voru vegna vinnu við fjárfestingarverkefni, undirbúnings tvíhliða skráningar og ráðgjafarkostnaðar sem hlaust af rannsókn samkeppnisyfirvalda. EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 7,6 milljónum evra á fjórðungnum og jókst um 19,3% frá sama tímabili 2013. EBITDA af flutningsmiðlun nam 1,2 milljónum evra á fjórðungnum og dróst saman um 17,8% á milli ára.


Afkomutilkynning | 26. februar 2015

E IMSKIP

Afskriftir timabilsins námu 6,1 milljón evra en voru 5,5 milljónir evra á fjorða ársfjorðungi 2013. Hækkunin skýrist af viðbótum og endurnýjun á gámum og öðrum tækjabúnaði og afskrifta vegna Lagarfoss.

Rekstrarhagnaður, EBIT, nam 2,8 milljónum evra samanborið við 2,4 milljóná evra rekstrarhagnað á fjorða ársfjorðungi 2013. EBIT hlutfallið var 2,3% samanborið við 2,2% á sama tímabili 2013.

Nettó fjármunatekjur námu 0,2 milljónum evra á fjorðungnum samanborið við nettó fjármagnsgjöld að fjárhæð 0,9 milljónir evra á fjorða ársfjorðungi fyrra árs. Skýrist breytingin einkum af 0,6 milljóná evra gengishagnaði 2014 samanborið við 0,3 milljóná evra gengistap á fjorða ársfjorðungi í fyrra.

Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 2,9 milljónum evra á fjorðungnum samanborið við 1,6 milljóná evra hagnað á fjorða ársfjorðungi 2013 og jókst um 88,7%.

Gjaldfærðir skattar námu 0,6 milljónum evra á fjorða ársfjorðungi samanborið við 0,4 milljónir evra á sama tímabili 2013. Virkt skatthlutfall var 21,8% á fjorðungnum 2014 samanborið við 24,7% á sama ársfjorðungi 2013.

Hagnaður fjorðungsins eftir skatta nam 2,3 milljónum evra á samanborið við 1,2 milljóná evra hagnað á sama tímabili 2013.

EFNAHAGUR

  • Heildareignir námu 332,0 milljónum evra í árslok 2014
  • Eiginfjárhlutfall var 65,2%
  • Vaxtaberandi skuldir námu 64,4 milljónum evra
  • Nettóskuldir námu 24,9 milljónum evra

Heildareignir Eimskips námu 332,0 milljónum evra þann 31. desember 2014. Til samanburðar námu heildareignir 314,4 milljónum evra í árslok 2013.

Fastafjármunir námu 214,3 milljónum evra í árslok samanborið við 216,1 milljón evra í árslok 2013. Nettó fjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 19,4 milljónum en þar af námu fjárfestingar í nýjum skipum 4,0 milljónum evra. Sambærilegar tölur fyrir árið 2013 voru nettó fjárfestingar að fjárhæð 25,5 milljónir evra og þar af 8,5 milljónir evra vegna tveggja nýrra skipa í smíðum.

Veltufjármunir félagsins námu 117,8 milljónum evra í árslok 2014 samanborið við 98,3 milljónir evra í árslok 2013. Viðskiptakröfur og aðrar kröfur hækkuðu frá árslokum 2013 vegna aukinna tekna og gengismunar. Handbært fé nam 39,5 milljónum evra í árslok samanborið við 26,4 milljónir evra í lok árs 2013.

Eigið fé nam 216,5 milljónum evra í árslok 2014 og var eiginfjárhlutfallið 65,2%. Arður að fjárhæð 3,1 milljón evra var greiddur hluthöfum í lok apríl 2014. Til samanburðar var eigið fé 205,8 milljónir evra í árslok 2013 og eiginfjárhlutfallið 65,5%.

Vaxtaberandi skuldir námu 64,4 milljónum evra í árslok samanborið við 59,4 milljónir evra í árslok 2013. Breytingin á vaxtaberandi skuldum í ár stafar einkum af nýju 10,3 milljóná evra langtímaláni vegna fjármögnunar á Lagarfossi.

Nettóskuldir námu 24,9 milljónum evra í árslok samanborið við 33,0 milljónir evra í árslok 2013.

SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR

  • Handbært fé frá rekstri nam 31,6 milljónum evra á árinu 2014
  • Nettó fjárfestingarbreyfingar námu 18,3 milljónum evra

Afkomutilkynning | 26. februar 2015

E IMSKIP

  • Handbært fé var 39,5 milljónir evra í árslok

Handbært fé frá rekstri nam 31,6 milljónum evra á árinu 2014 samanborið við 20,5 milljóna evra handbært fé frá rekstri 2013.

Nettó fjárfestingarhreýfingar námu 18,3 milljónum evra samanborið við 26,6 milljónir evra 2013. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 20,5 milljónum evra, en þar af voru fjárfestingar fyrir 1,8 milljónir evra sem ekki höfðu áhrif á sjóðstreymi. Til samanburðar námu heildarfjárfestingar 29,3 milljónum evra árið 2013, en fjárfestingar í skipum námu þá 8,5 milljónir evra samanborið við 4,0 milljónir evra 2014.

Nettó útstreymi fjármagns vegna fjármögnunarhreýfinga nam 0,5 milljónum evra samanborið við 3,6 milljónir evra á árinu 2013.

Sjóðsflæði var jákvætt um 12,7 milljónir evra á árinu samanborið við neikvætt sjóðsflæði að fjárhæð 9,6 milljónir evra 2013. Handbært fé í árslok 2014 nam 39,5 milljónum evra samanborið við 26,4 milljóna evra handbært fé í árslok 2013.

ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2015

Afkomuspá félagsins fyrir árið 2015 er á bilinu 39 til 44 milljónir evra.

Félagið gerir ráð fyrir áframhaldandi vexti í innflutningi til Íslands. Meiri óvissa ríkir um útflutning frá Íslandi, meðal annars vegna slæmrar loðnuvertiðar sem af er árinu. Áfram er gert ráð fyrir vexti í inn- og útflutningi í Færeýjum. Einnig er gert ráð fyrir vexti í flutningum á milli Norður-Ameríku og Evrópu, auk þess sem gert er ráð fyrir vexti í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun. Spáin tekur tillit til aukningar afkomu vegna fjárfestingar í nýjum fyrirtækjum sem félagið hefur nú þegar tilkynnt um. Til viðbótar við almenna óvissu varðandi flutningsmagn, verð á flutningum, olíukostnað og samkeppni ríkir óvissa um niðurstöður almennra kjarasamninga á vinnumarkaði hér á landi.

HLUTHAFAR

  • Markaðsvirði félagsins var 43,4 milljarðar króna þann 25. febrúar 2015

Viðskipti með bréf Eimskips hófust á Nasdaq Iceland þann 16. nóvember 2012. Útboðsgengi var 208,00 kr. á hlut og var lokaverð í árslok 2012 230,00 kr. á hlut. Á árinu 2013 fór lokaverð hæst í 281,00 kr. á hlut og lægst í 221,00 kr. á hlut og var meðaltalslokaverð ársins 255,05 kr. á hlut. Lokaverð á hlut í árslok 2013 var 262,00 kr.

Á árinu 2014 var lokaverðið á bilinu 218,50 kr. til 268,50 kr. á hlut með meðaltalslokaverði ársins 234,69 kr. á hlut og lokaverði ársins 237,00 kr. á hlut. Lokaverð þann 25. febrúar 2015 var 232,50 kr. og var markaðsvirði félagsins því 43,4 milljarðar króna þann dag sem jafngildir 289,5 milljónum evra.

Fjöldi útgefinna hluta er 200.000.000 og er fjöldi útistandandi hluta 186.639.230. Fjöldi hluthafa í árslok 2014 var 1.101 og voru þeir 1.089 þann 25. febrúar 2015. Félagið á 13.360.770 eigin hluti, en þeim hefur fjölgað um 7.441.950 hluti eða 125,7% samanborið við febrúar 2014.

Stjórn Eimskips hefur breytt arðgreiðslustefnu félagsins þannig að árlegar arðgreiðslur verði á bilinu 10-50% af hagnaði ársins. Stjórnin leggur til við aðalfund að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2015 sem nemur 5,00 krónum á hlut. Nemur heildarfjárhæð arðgreiðslunnar 933,2 milljónum króna, eða 6,2 milljónum evra, sem samsvarar 45,7% af hagnaði ársins 2014.


Afkomutilkynning | 26. februar 2015

E IMSKIP

LYKILSTÆRDIR ÁRSFJÓRDUNGA

Fjárhæðir í þúsundum evra

Rekstrarreikningur Q4 2014 Q3 2014 Q2 2014 Q1 2014 Q4 2013
Rekstrartekjur 118.794 119.583 108.978 104.200 106.875
Rekstrargjöld 109.953 106.949 97.929 98.182 98.996
EBITDA 8.841 12.634 11.049 6.018 7.879
EBIT 2.789 7.050 5.146 362 2.392
Hagnaður (tap) tímabilsins 2.290 7.517 4.593 (793) 1.168
EBITDA / rekstrartekjur 7,4% 10,6% 10,1% 5,8% 7,4%
EBIT / rekstrartekjur 2,3% 5,9% 4,7% 0,3% 2,2%
Efnahagsreikningur 31.12.2014 30.09.2014 30.06.2014 31.03.2014 31.12.2013
Eignir 332.040 336.749 315.897 314.772 314.365
Eigið fé 216.472 215.659 206.588 202.124 205.771
Skuldir 115.568 121.090 109.309 112.648 108.594
Vaxtaberandi skuldir 64.432 66.448 56.841 57.990 59.398
Nettóskuldir 24.893 32.275 32.023 30.503 33.028
Eiginfjárhlutfall 65,2% 64,0% 65,4% 64,2% 65,5%
Sjóðstreymi Q4 2014 Q3 2014 Q2 2014 Q1 2014 Q4 2013
Handbært frá rekstri 12.713 4.968 8.225 5.697 7.172
Fjárfestingarhreyfingar (4.382) (5.153) (5.952) (2.824) (4.980)
Fjármögnunarhreyfingar (2.108) 8.483 (5.103) (1.844) (2.049)
Handbært fé í lok tímabils 39.539 34.173 24.818 27.487 26.370

RANNSÓKN SAMKEPPNISEFTIRLITSINS

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála úrskurðaði þann 22. desember 2014 um kröfu félagsins um aðgang að kæru og fylgiskjólum Samkeppniseftirlitsins til embættis sérstaks saksóknara. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála ógilti ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að synja félaginu aðgangi að gögnunum og lagði fyrir eftirlitið að taka á ný afstöðu til kröfu félaganna á grundvelli þeirra ákvæða í samkeppnis- og stjórnsýslulógum sem gilda um aðgang aðila að gögnum máls. Prátt fyrir áskoranir til eftirlitsins hefur félagið ekki enn fengið aðgang að þessum gögnum. Er þetta í þriðja sinn á einu ári sem áfrýjunarnefnd samkeppnismála fellir úr gildi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um synjun á afhendingu gagna, í heild eða að hluta.

Félaginu barst í janúar 2015 upplýsingabeiðni frá Samkeppniseftirlitinu. Vegna þess hve almenn beiðnin er og í ljósi þeirra takmörkuðu upplýsinga sem félagið hefur um rannsóknina er félagið þeirrar skoðunar að beiðnin varpi ekki frekara ljósi á grundvöll rannsóknarinnar.

UM EIMSKIP

Eimskip rekur 55 starfsstöðvar í 19 lóndum og er með 16 skip í rekstri. Félagið hefur á að skipa um 1.430 starfsmönnum. Um helmingur tekna félagsins kemur frá starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningabjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.


Afkomutilkynning | 26. februar 2015

E IMSKIP

KYNNINGARFUNDUR 27. FEBRÚAR 2015

Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 27. februar 2015 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir árið 2014 og fjórða ársfjórðung. Hægt verður að nálgast kynningarefni fundarins að honum loknum á fjárfestasiðu félagsins, www.eimskip.is/investors, og í fréttakerfi Nasdaq Nordic.

SAMÞYKKI STJÓRNAR

Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti endurskoðaðan ársreikning samstæðu Eimskips fyrir árið 2014 á stjórnarfundi þann 26. februar 2015.

FJÁRHAGSDAGATAL

  • Aðalfundur 2015 verður haldinn 26. mars 2015
  • Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2015 verður birt 21. maí 2015
  • Uppgjör annars ársfjórðungs 2015 verður birt 27. ágúst 2015
  • Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2015 verður birt 19. nóvember 2015
  • Uppgjör fjórða ársfjórðungs 2015 verður birt 25. febrúar 2016
  • Aðalfundur 2016 verður haldinn 17. mars 2016

FREKARI UPPLÝSINGAR

  • Gylfi Sigfússon forstjóri, sími: 525 7202
  • Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, sími: 525 7202
  • Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: investors@eimskip.

TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA

Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.