AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Earnings Release 2013
Aug 29, 2013
2194_bfr_2013-08-29_0d86e7e0-11b1-45e6-bd23-7def673c4b81.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
EIMSKIP KYNNIR AFKOMU ANNARS ÁRSFJÓRÐUNGS OG ÁÆTLAÐA AFKOMU 2013
- Rekstrartekjur hækkuðu um 1,2% á milli ára og námu 108,1 milljón evra
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, var 9,8 milljónir evra
- Eiginfjárhlutfall var 63,9% í lok júní
- Flutningsmagn í áætlanasiglingum á Norður Atlantshafi jókst um 2,0% á milli ára
- Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 5,4% á milli ára
- Áætluð EBITDA fyrir árið 2013 er á bilinu 36 til 40 milljónir evra
Fjárhæðir í þúsundum evra
| Rekstrarreikningur | Q2 2013 | Q2 2012 | Breyting | % | 6M 2013 | 6M 2012 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 108.112 | 106.861 | 1.251 | 1,2% | 213.425 | 203.151 | 10.274 | 5,1% |
| Rekstrargjöld | 98.273 | 94.595 | 3.678 | 3,9% | 196.369 | 184.109 | 12.260 | 6,7% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA | 9.839 | 12.266 | (2.427) | (19,8%) | 17.056 | 19.042 | (1.986) | (10,4%) |
| Afskriftir | (5.028) | (5.830) | 802 | 13,8% | (10.162) | (11.292) | 1.130 | 10,0% |
| Rekstrarhagnaður - EBIT | 4.811 | 6.436 | (1.625) | (25,2%) | 6.894 | 7.750 | (856) | (11,0%) |
| Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) | (2.067) | (1.021) | (1.046) (102,4%) | (1.118) | (2.038) | 920 | 45,1% | |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 2.744 | 5.415 | (2.671) | (49,3%) | 5.776 | 5.712 | 64 | 1,1% |
| Tekjuskattur | (706) | 1.979 | (2.685) (135,7%) | (1.206) | 2.264 | (3.470) (153,3%) | ||
| Hagnaður tímabilsins | 2.038 | 7.394 | (5.356) | (72,4%) | 4.570 | 7.976 | (3.406) | (42,7%) |
| Leiðrétt fyrir einskiptisliðum: | ||||||||
| Tekjubreyting | 1,2% | 8,7% | 5,1% | 10,6% | ||||
| EBITDA / rekstrartekjur | 9,1% | 11,5% | 8,0% | 9,4% | ||||
| EBIT / rekstrartekjur | 4,5% | 6,0% | 3,2% | 3,8% | ||||
| Nettóskuldir / LTM EBITDA | 0,85 | 0,90 | 0,85 | 0,90 | ||||
| Efnahagsreikningur | 30.06.2013 30.06.2012 | Breyting | % | 30.06.2013 31.12.2012 | Breyting | % | ||
| Eignir | 314.051 | 299.766 | 14.285 | 4,8% | 314.051 | 313.281 | 770 | 0,2% |
| Fastafjármunir | 213.335 | 202.509 | 10.826 | 5,3% | 213.335 | 209.723 | 3.612 | 1,7% |
| Eigið fé | 200.656 | 184.698 | 15.958 | 8,6% | 200.656 | 199.599 | 1.057 | 0,5% |
| Skuldir | 113.395 | 115.068 | (1.673) | (1,5%) | 113.395 | 113.682 | (287) | (0,3%) |
| Vaxtaberandi skuldir | 60.549 | 61.871 | (1.322) | (2,1%) | 60.549 | 59.254 | 1.295 | 2,2% |
| Nettóskuldir | 33.087 | 34.670 | (1.583) | (4,6%) | 33.087 | 21.950 | 11.137 | 50,7% |
| Efnislegar eignir / heildareignir | 93,4% | 93,6% | 93,4% | 93,7% | ||||
| Eiginfjárhlutfall | 63,9% | 61,6% | 63,9% | 63,7% | ||||
| Sjóðstreymi | Q2 2013 | Q2 2012 | Breyting | % | 6M 2013 | 6M 2012 | Breyting | % |
| Handbært fé frá rekstri | 8.226 | 13.045 | (4.819) | (36,9%) | 5.869 | 16.790 | (10.921) | (65,0%) |
| Fjárfestingarhreyfingar | (3.663) | (5.609) | 1.946 | 34,7% | (11.708) | (27.586) | 15.878 | 57,6% |
| Fjármögnunarhreyfingar | (822) | (5.386) | 4.564 | 84,7% | (3.300) | (5.854) | 2.554 | 43,6% |
| Breyting á handbæru fé | 3.741 | 2.050 | 1.691 | 82,5% | (9.139) | (16.650) | 7.511 | 45,1% |
| Áhrif gjaldmiðla á handbært fé | (256) | 154 | (410) (266,2%) | (703) | 334 | (1.037) (310,5%) | ||
| Handbært fé í lok tímabils | 27.462 | 27.201 | 261 | 1,0% | 27.462 | 27.201 | 261 | 1,0% |
GYLFI SIGFÚSSON, FORSTJÓRI
"Efnahagsástandið á Íslandi var krefjandi á öðrum ársfjórðungi. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands hefur orðið 4,8% samdráttur í innfluttu magni til landsins og 0,5% samdráttur í útflutningi fyrstu sex mánuði ársins. Flutningsmagn í áætlanasiglingum Eimskips jókst um 2,0% á öðrum ársfjórðungi samanborið við annan ársfjórðung 2012, en vöxtur hefur verið í flutningum í Færeyjum, í Noregi og í flutningum á milli Evrópu og Norður-Ameríku á meðan samdráttur hefur verið í innflutningi til Íslands. Magn í alþjóðlegri flutningsmiðlun á öðrum ársfjórðungi jókst um 5,4% í samanburði við fyrra ár.
Rekstrartekjur félagsins námu 108,1 milljón evra og EBITDA var 9,8 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2013. Samdráttur í innflutningi til landsins og viðbótarkostnaður við fjölgun um eitt skip í nýju siglingakerfi félagsins höfðu neikvæð áhrif á afkomuna.
Í marsmánuði kynnti Eimskip umfangsmiklar breytingar á siglingakerfi félagsins með það fyrir augum að styrkja stöðu sína fyrir framtíðarvöxt félagsins. Breytingarnar skapa ný tækifæri fyrir viðskiptavini félagsins og opna félaginu nýjar leiðir til tekjuöflunar. Með breytingunum var bætt við vikulegum strandsiglingum á Íslandi, nýjum viðkomuhöfnum í Færeyjum, Skotlandi, Póllandi og í Bandaríkjunum, auk þess sem afkastageta kerfisins var aukin um 7,7%. Strandsiglingarnar hafa gefið okkur tækifæri til að auka hagkvæmni í innanlandskerfinu okkar með því að draga úr fjölda flutningabifreiða í rekstri. Aukin þjónusta við Færeyjar með því að koma við á þrem höfnum hefur leitt til aukinna flutninga. Eimskip hefur nú á að skipa öflugasta gámaflutningakerfi á heimamarkaði sínum á Norður-Atlantshafi. Félagið mun halda áfram leggja áherslu á að markaðssetja og selja nýja siglingakerfið.
Fastur kostnaður jókst við það að bæta skipi við siglingakerfið og afleiðingar þess sjást á öðrum ársfjórðungi þar sem það tekur tíma að auka flutningsmagnið og tekjurnar á móti auknum kostnaði. Breytingarnar á kerfinu hafa lækkað EBITDA um sem nemur um 0,8 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi samanborið við síðasta ár.
Samdráttur í flutningum til Íslands hefur einnig haft neikvæð áhrif á EBITDA samanborið við fyrra ár. Það er mikilvægt bæði fyrir íslenskt efnahagslíf og fyrir Eimskip að fjárfestingarverkefni á Íslandi fari af stað, að lausn verði fundin á skuldavanda heimila og fyrirtækja og að ásættanleg lausn náist í tengslum við fjármagnshöftin.
Þótt staða efnahagslífsins á Íslandi sé enn veik þá eru flutningar Eimskips til Íslands á fyrstu sex vikum þriðja ársfjórðungs að sýna sambærilegt magn og á sama tímabili á síðasta ári. Byggt á spám okkar um þróun markaðarins á árinu áætlum við að EBITDA félagsins verði á bilinu 36 til 40 milljónir evra á árinu.
Eimskip leggur áfram sérstaka áherslu á uppbyggingu á Norður-Atlantshafi í tengslum við möguleg verkefni tengd sjávarútvegi og fiskeldi, stóriðju, olíu og námuvinnslu, ásamt hafnarþjónustu og annarri tengdri þjónustu. Félagið fylgist einnig með og metur möguleg tækifæri tengd Norðurheimsskautssiglingum framtíðarinnar."
REKSTUR ANNARS ÁRSFJÓRÐUNGS
Rekstrartekjur annars ársfjórðungs námu 108,1 milljón evra samanborið við 106,9 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2012 og jukust um 1,2% á milli ára. Aukning var í flutningum á helstu markaðssvæðum félagsins og nam hún 2,0% á milli ára í áætlanasiglingum félagsins á Norður-Atlantshafi. Aukningu í flutningsmagni í áætlanasiglingum má rekja til aukningar í Færeyjum, Noregi og flutningum frá Evrópu til Norður-Ameríku, en á móti kemur að minnkun var í flutningum til Íslands. Magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 5,4% í samburði við annan ársfjórðung 2012 einkum vegna aukinna flutninga frá Asíu til Evrópu. Verð í sjóflutningum á alþjóðlegum flutningamörkuðum dróst saman á milli ára.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, eða EBITDA, nam 9,8 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi samanborið við 12,3 milljónir evra á sama tímabili 2012. EBITDA hlutfall á fjórðungnum var 9,1%
samanborið við 11,5% á öðrum ársfjórðungi á fyrra ári. Félagið endurskipulagði siglingakerfi sitt í mars og jók afkastagetu þess um 7,7%. Það að bæta afkastagetuna hækkar fastan kostnað félagsins og það tekur tíma að byggja upp flutningsmagn og tekjur í kerfinu til að mæta þeim kostnaði sem strax fellur til. Áhrif þessara breytinga á ársfjórðungnum voru 0,8 milljónum evra lakari EBITDA samanborið við árið 2012. Lækkun á afkomu má einnig rekja til minna magns í sjóflutningum til Íslands.
Afskriftir námu 5,0 milljónum evra á fjórðungnum en voru 5,8 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2012. Lækkun afskrifta stafar einkum af því að hluti af skipum félagsins eru að fullu afskrifuð niður í hrakvirði.
Rekstrarhagnaður, EBIT, nam 4,8 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi samanborið við 6,4 milljóna evra rekstrarhagnað á sama tímabili í fyrra.
Nettó fjármagnsgjöld námu 2,1 milljón evra samanborið við 1,0 milljón evra á öðrum ársfjórðungi 2012. Breytinguna má meðal annars skýra með sveiflum í gengismun á milli ára tengdum stöðum á milli félaga innan samstæðu sem ekki hafa áhrif á handbært fé.
Reiknaðir skattar námu 0,7 milljónum evra samanborið við 2,0 milljóna evra tekjufærða skatta á öðrum ársfjórðungi 2012, en þá eignfærði dótturfélag skattalegt tap að fjárhæð 2,8 milljónir evra.
Hagnaður eftir skatta nam 2,0 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 7,4 milljóna evra hagnað eftir skatta á sama tímabili 2012.
REKSTUR FYRSTU SEX MÁNAÐA ÁRSINS
- Rekstrartekjur hækkuðu um 5,1% milli ára og námu 213,4 milljónum evra
- EBITDA var 17,1 milljón evra
- Flutningsmagn í áætlanasiglingum á Norður Atlantshafi jókst um 1,2% á milli ára
- Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 9,0% á milli ára
Rekstrartekjur Eimskips fyrstu sex mánuði ársins námu 213,4 milljónum evra samanborið við 203,2 milljónir evra fyrstu sex mánuðina 2012 og jukust um 5,1% á milli ára. Aukning var í flutningum á helstu markaðssvæðum félagsins og nam aukningin í áætlanasiglingum félagsins á Norður-Atlantshafi 1,2% á milli ára. Magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 9,0% í samburði við sama tímabil 2012 einkum vegna aukinna flutninga innan Asíu og frá Asíu til Evrópu. Tekjur hafa einnig aukist vegna hærra markaðsverðs á alþjóðlegum flutningamörkuðum. Hækkunin varð þó aðallega á fyrsta ársfjórðungi þar sem markaðsverðið fór lækkandi á öðrum ársfjórðungi.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, nam 17,1 milljón evra samanborið við 19,0 milljónir evra á sama tímabili 2012. EBITDA hlutfall á fyrri hluta ársins var 8,0% samanborið við 9,4% fyrstu sex mánuði 2012. Skýrist breyting á afkomu á milli ára aðallega af breyttu siglingakerfi og minni innflutningi til Íslands á öðrum ársfjórðungi.
Afskriftir námu 10,2 milljónum evra á fyrr hluta ársins en voru 11,3 milljónir evra á sama tímabili 2012. Lækkun afskrifta stafar einkum af því að hluti af skipum félagsins eru að fullu afskrifuð niður í hrakvirði.
Rekstrarhagnaður, EBIT, nam 6,9 milljónum evra samanborið við 7,8 milljóna evra rekstrarhagnað á sama tímabili í fyrra.
Nettó fjármagnsgjöld námu 1,1 milljón evra samanborið við 2,0 milljóna evra nettó fjármagnsgjöld fyrstu sex mánuði 2012. Skýrist sú breyting af lægri vaxtakostnaði af langtímalánum og minna gengistapi í ár en í fyrra.
Hagnaður fyrir tekjuskatt jókst og nam 5,8 milljónum evra í ár samanborið við 5,7 milljónir evra í fyrra.
Gjaldfærðir skattar námu 1,2 milljónum evra samanborið við 2,3 milljóna evra tekjufærða skatta á fyrra árshelmingi 2012.
Hagnaður eftir skatta nam 4,6 milljónum evra á tímabilinu samanborið við 8,0 milljóna evra hagnað á sama tímabili 2012.
Rekstur félagsins hefur verið stöðugur undanfarin ár eins og sjá má á eftirfarandi myndum, en þær sýna hvernig rekstrartekjur og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, skiptast á ársfjórðunga á árunum 2010 til 2013.
Á myndunum hafa rekstrartekjur og EBITDA verið leiðrétt fyrir einskiptisliðum á árunum 2011 og 2012. Rekstrartekjur og EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2011 hafa verið lækkaðar um 6,4 milljónir evra vegna innheimtu á áður afskrifaðri kröfu. EBITDA hefur hins vegar verið hækkuð um 0,7 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2011 vegna strands Goðafoss og um 0,7 milljónir á þriðja ársfjórðungi 2012 vegna kostnaðar við skráningu félagsins. Að lokum var EBITDA á fjórða ársfjórðungi 2012 hækkuð um alls 3,9 milljónir evra, þar af um 1,0 milljón evra vegna skráningar félagsins og um 2,9 milljónir evra vegna kostnaðar vegna kauprétta sem fallið var frá.
Í milljónum evra
Félagið kynnti í byrjun mars 2013 umfangsmiklar breytingar á siglingakerfi sínu. Fjölgað var um eitt skip í áætlanasiglingum félagsins sem jók afkastagetu kerfisins um 7,7% en á móti var fækkað um eitt skip í stórflutningum þannig að félagið var með 16 skip í rekstri á fyrri hluta ársins. Meginbreytingarnar fólust í vikulegum strandsiglingum um Ísland með beinni tengingu við Færeyjar, Bretland og meginland Evrópu og aukinni ferðatíðni og styttri siglingatíma til og frá Bandaríkjunum með viðkomu í Portland í Maine í stað Everett og Norfolk á austurströnd Bandaríkjanna. Aukinni þjónustu við Bandaríkin er einnig ætlað að styðja enn frekar við aukna flutninga á milli Norður-Noregs og Norður-Ameríku og bæta tengingu með styttri siglingatíma á milli Bandaríkjanna og Nýfundalands. Breytingarnar leiða einnig til aukinnar þjónustu fyrir ferskan fisk frá Færeyjum og aukinnar þjónustu félagsins við vaxandi olíuiðnað á Norðurslóðum með viðkomu í Aberdeen í Skotlandi. Þá hefur einnig verið komið á beinni tengingu inná Eystrasalt með viðkomu í Swinoujscie í Póllandi og með opnun skrifstofu í Gdynia. Brúarfoss lagði upp í fyrstu strandsiglinguna um Ísland þann 14. mars og fyrsta viðkoman í Portland í Bandaríkjunum var 26. mars. Fyrstu viðkomur í Swinoujscie í Póllandi og Aberdeen í Skotlandi voru í apríl. Breytingarnar á siglingakerfinu höfðu því óveruleg áhrif á rekstur fyrsta ársfjórðungs en komu að fullu inn á öðrum ársfjórðungi.
Félagið er nú með 16 skip í rekstri, þar af ellefu eigin skip og fimm leiguskip. Tólf skipanna eru í áætlanasiglingum, tvö eru í "spot" þjónustu, eitt er í stórflutningum og eitt er ferja.
EFNAHAGUR
- Heildareignir í lok júní námu 314,1 milljón evra
- Eiginfjárhlutfall var 63,9%
- Vaxtaberandi skuldir námu 60,5 milljónum evra
- Nettóskuldir námu 33,1 milljón evra
Heildareignir Eimskips námu 314,1 milljónum evra þann 30. júní 2013. Til samanburðar námu heildareignir 299,8 milljónum evra í lok annars ársfjórðungs 2012 og 313,3 milljónum evra í árslok 2012.
Fastafjármunir námu 213,3 milljónum evra í lok júní samanborið við 202,5 milljónir evra í lok júní 2012 og 209,7 milljónir evra í árslok 2012. Nettó fjárfestingar á fyrri hluta ársins námu 11,7 milljónum evra, en þar af námu greiðslur vegna smíði tveggja gámaskipa um 6,1 milljón evra.
Veltufjármunir félagsins námu 100,7 milljónum evra í lok júní samanborið við 97,3 milljónir evra í lok júní 2012 og 103,6 milljónir evra í árslok 2012. Handbært fé nam 27,5 milljónum evra í lok júní samanborið við 27,2 milljónir evra í lok júní 2012 og 37,3 milljónir evra í árslok 2012. Lækkunin frá áramótum skýrist einkum af fjárfestingum í skipum og öðrum tækjabúnaði og lækkun skammtímaskulda, en í árslok 2012 voru meðal skammtímaskulda ógreiddar fjárfestingar að fjárhæð 4,0 milljónir evra.
Eigið fé nam 200,7 milljónum evra í lok júní og var eiginfjárhlutfallið 63,9%. Arður að fjárhæð 2,7 milljónir evra var greiddur til hluthafa í lok apríl. Til samanburðar var eigið fé 184,7 milljónir evra í lok júní 2012 og eiginfjárhlutfallið 61,6% og 199,6 milljónir evra í lok árs 2012 og eiginfjárhlutfallið 63,7%.
Vaxtaberandi skuldir námu 60,5 milljónum evra í lok júní samanborið við 61,9 milljónir evra í lok júní 2012 og 59,3 milljónir evra í árslok 2012. Nettóskuldir námu 33,1 milljón evra í lok júní sem er lægra en 34,7 milljónir evra í lok annars ársfjórðungs 2012 en hærra en 22,0 milljónir evra í árslok 2012, og hafa þær hækkað vegna fjárfestinga og breytinga á rekstrartengdum eignum og skuldum.
SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR
- Handbært fé frá rekstri nam 5,9 milljónum evra fyrstu sex mánuði ársins
- Handbært fé nam 27,5 milljónum evra í lok júní
- Nettó fjárfestingar námu 11,7 milljónum evra
Handbært fé frá rekstri nam 5,9 milljónum evra á fyrri hluta ársins samanborið við 16,8 milljóna evra handbært fé frá rekstri á sama tímabili 2012. Breytingin á milli ára skýrist einkum af breytingum á rekstrartengdum eignum og skuldum.
Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 11,7 milljónum evra á fyrri hluta ársins. Til samanburðar voru nettó fjárfestingarhreyfingar 27,6 milljónir evra á fyrri hluta árs 2012. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 14,7 milljónum evra á tímabilinu, en þar af var fjárfest í skipum fyrir 6,1 milljón evra. Til samanburðar námu heildarfjárfestingar á sama tímabili í fyrra 33,8 milljónum evra, þar af voru 4,9 milljónir evra sem ekki höfðu áhrif á handbært fé.
Nettó fjármögnunarhreyfingar námu 3,3 milljónum evra á tímabilinu samanborið við 5,9 milljón evra á sama tímabili í fyrra. Sjóðsflæði var því neikvætt um 9,1 milljón evra og nam handbært fé í lok júní 27,5 milljónum evra samanborið við 27,2 milljónir evra í lok júní í fyrra.
ÁÆTLUÐ AFKOMA
Ákveðið hefur verið að félagið gefi út áætlun um rekstrarhagnað fyrir afskriftir, EBITDA, fyrir árið 2013.
Áætlað er að EBITDA ársins muni nema á bilinu 36 til 40 milljónum evra.
LYKILSTÆRÐIR ÁRSFJÓRÐUNGA 2012 OG 2013
Fjárhæðir í þúsundum evra
| Rekstrarreikningur | Q2 2013 | Q1 2013 | Q4 2012 | Q3 2012 | Q2 2012 |
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 108.112 | 105.313 | 107.929 | 112.574 | 106.861 |
| Rekstrargjöld | 98.273 | 98.096 | 101.642 | 101.735 | 94.595 |
| EBITDA | 9.839 | 7.217 | 6.287 | 10.839 | 12.266 |
| EBIT | 4.811 | 2.083 | 169 | 5.813 | 6.436 |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | 2.038 | 2.532 | (993) | 5.748 | 7.394 |
| Leiðrétt fyrir einskiptisliðum: | |||||
| EBITDA | 9.839 | 7.217 | 10.202 | 11.520 | 12.266 |
| EBIT | 4.811 | 2.083 | 4.084 | 6.494 | 6.436 |
| EBITDA / rekstrartekjur | 9,1% | 6,9% | 9,5% | 10,2% | 11,5% |
| EBIT / rekstrartekjur | 4,5% | 2,0% | 3,8% | 5,8% | 6,0% |
| Efnahagsreikningur | 30.06.2013 | 31.03.2012 | 31.12.2012 | 30.09.2012 | 30.06.2012 |
| Eignir | 314.051 | 307.193 | 313.281 | 303.077 | 299.766 |
| Eigið fé | 200.656 | 202.219 | 199.599 | 190.415 | 184.698 |
| Skuldir | 113.395 | 104.974 | 113.682 | 112.662 | 115.068 |
| Vaxtaberandi skuldir | 60.549 | 55.575 | 59.254 | 62.061 | 61.871 |
| Nettóskuldir | 33.087 | 31.598 | 21.950 | 33.245 | 34.670 |
| Eiginfjárhlutfall | 63,9% | 65,8% | 63,7% | 62,8% | 61,6% |
| Sjóðstreymi | Q2 2013 | Q1 2013 | Q4 2012 | Q3 2012 | Q2 2012 |
| Handbært frá rekstri | 8.226 | (2.357) | 12.749 | 7.333 | 13.045 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (3.663) | (8.045) | (8.188) | (3.410) | (5.609) |
| Fjármögnunarhreyfingar | (822) | (2.478) | 3.865 | (2.384) | (5.386) |
| Handbært fé í lok tímabils | 27.462 | 23.977 | 37.304 | 28.816 | 27.201 |
HLUTHAFAR
- Hlutabréfaverð í Eimskip hefur hækkað um 20,2% frá skráningu félagsins
- Markaðsvirði félagsins var 48,5 milljarðar íslenskra króna þann 28. ágúst 2013
Viðskipti með bréf Eimskips hófust á NASDAQ OMX Iceland þann 16. nóvember 2012. Útboðsgengi var 208,00 kr. á hlut. Sem af er þessu ári hefur lokaverð hæst farið í 281,00 kr. á hlut og lægst í 233,50 kr. á hlut og var meðaltalslokaverð tímabilsins 265,49 á hlut. Lokaverð þann 28. ágúst 2013 var 250,00 kr. á hlut sem jafngildir 20,2% hækkun frá skráningu félagsins. Markaðsvirði félagsins þann 28. ágúst var 48,5 milljarðar króna sem jafngildir 302,5 milljónum evra.
Fjöldi útgefinna hluta er 200.000.000 og er fjöldi útistandandi hluta 194.081.180. Fjöldi hluthafa þann 28. ágúst var 1.290.
UM EIMSKIP
Eimskip rekur 51 starfsstöð í 19 löndum og er með 16 skip í rekstri. Félagið hefur á að skipa um 1.360 starfsmönnum, þar af um 790 á Íslandi. Um helmingur tekna félagsins kemur frá starfsemi utan Íslands.
Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningaþjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.
KYNNINGARFUNDUR 30. ÁGÚST 2013
Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 30. ágúst 2013 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Gylfi Sigfússon, forstjóri, og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir annan ársfjórðung og fyrstu sex mánuði ársins 2013. Hægt verður að nálgast kynningarefni fundarins að honum loknum á fjárfestasíðu félagsins, www.eimskip.is/investors, og í fréttakerfi NASDAQ OMX Nordic.
SAMÞYKKI STJÓRNAR
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti árshlutareikning samstæðu Eimskips fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2013 á stjórnarfundi þann 29. ágúst 2013.
FJÁRHAGSDAGATAL
- Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2013 verður birt 21. nóvember 2013
- Uppgjör fjórða ársfjórðungs 2013 verður birt 27. febrúar 2014
FREKARI UPPLÝSINGAR
- Gylfi Sigfússon, forstjóri, sími: 525 7202
- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, sími: 525 7202
- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: [email protected]
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.