Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands Board/Management Information 2015

Jan 9, 2015

2194_iss_2015-01-09_9dffb154-09bc-40fa-b205-c3ace775b825.html

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Disclosure 320580

Eimskipafélag Íslands hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Skipulagsbreytingar hjá Eimskip

Ákveðið hefur verið að gera nokkrar breytingar á skipuriti Eimskips til að aðlaga starfsemi félagsins að síbreytilegu umhverfi, þörfum viðskiptavina og breyttum áherslum í skiparekstri. Breytingar verða gerðar á rekstrarsviði og í sölu og þjónustu og koma tvö ný svið í stað þeirra eldri sem bera munu heitin skiparekstrarsvið og flutningasvið. SKIPAREKSTRARSVIÐ Framkvæmdastjóri skiparekstrarsviðs verður Ásbjörn Skúlason, sem verið hefur framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, og mun sviðið sjá um rekstur skipaflota félagsins. Sviðið mun einnig sjá um leigu, kaup og sölu skipa og smíði á nýjum skipum. Mörg stór verkefni eru framundan í tengslum við endurnýjun á skipaflota félagsins og því er mikilvægt að leggja enn ríkari áherslu á þennan þátt starfseminnar. Í tengslum við breytingarnar mun Jóhann Steinar Steinarsson taka við stöðu forstöðumanns og mun hann verða staðsettur í Hamborg, Þýskalandi. FLUTNINGASVIÐ Framkvæmdastjóri flutningasviðs verður Matthías Matthíasson sem verið hefur framkvæmdastjóri sölu og þjónustu. Meginverkefni sviðsins eru eins og áður sala og þjónusta tengd sjóflutningum til og frá Íslandi, en að auki bætast við verkefni tengd flutningastýringu og sölu stórflutninga. Stórflutningadeild Forstöðumaður stórflutningadeildar verður Ingvar Sigurðsson og mun deildin sjá um sölu á stórflutningum. Mörg verkefni tengd stóriðju eru í farvatninu á Íslandi og mikilvægt fyrir félagið að fylgja þeirri þróun eftir með ríkari áherslu á sölu og þjónustu við stórflutninga. Flutningastýring Forstöðumaður flutningastýringar verður Jóhann Helgi Sigurðsson og mun deildin annast alla flutningastýringu Eimskips á Norður-Atlantshafi. Verkefni deildarinnar verða fyrst og fremst að tryggja áreiðanleika og sem hagkvæmastan rekstur á flutningakerfi félagsins. Söludeild áætlunarflutninga, söludeild flutningaþjónustu, skráning og skjöl og viðskiptaþjónusta, sem þau Brynjar Viggósson, Nanna H. Tómasdóttir, Arndís Aradóttir og Þórunn Marinósdóttir stýra, munu tilheyra flutningasviði. Engar breytingar verða á starfsemi þessara deilda frá því sem verið hefur.