Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands AGM Information 2023

Jan 17, 2023

2194_rns_2023-01-17_8ff3959a-415b-409c-948c-297afb152557.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Eimskip: Tilnefningarnefnd óskar eftir framboðum til stjórnar

Eimskip: Tilnefningarnefnd óskar eftir framboðum til stjórnar

Tilnefningarnefnd er undirnefnd stjórnar og hefur það hlutverk að aðstoða og upplýsa stjórn vegna ferils við framboð til stjórnar og varastjórnar, sem og öflun framboða/tilnefninga til stjórnar, varastjórnar og undirnefnda hennar.

Aðalfundur Eimskips verður haldinn 9. mars 2023 og óskar tilnefningarnefnd eftir framboðum til stjórnar.

Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem hægt er að nálgast á vefsvæði aðalfundar á fjárfestasíðu félagsins og skal skila á netfangið [email protected]

Frestur til að skila inn framboðum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til klukkan 12:00 fimmtudaginn 9. febrúar 2023. Nefndin áskilur sér rétt eftir atvikum til að fjalla um framboð sem berast síðar.

Allir núverandi stjórnarmenn bæði aðal og varamenn í Eimskipafélagi Íslands hf. hyggjast gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.

Tillaga nefndarinnar að tilnefningu frambjóðenda til stjórnarsetu verður kynnt tveimur vikum fyrir aðalfund, með tillögum stjórnar, eða 23. febrúar.

Almennum framboðsfresti til stjórnar lýkur tíu sólarhringum fyrir aðalfund eða kl. 16:00 þann 27. febrúar nk. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar fram að því tímamarki.