Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands AGM Information 2022

Mar 17, 2022

2194_agm-r_2022-03-17_af76515e-27b9-422a-a04d-b861a4af7924.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

NIÐURSTÖÐUR AÐALFUNDAR EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS HF.

HALDINN RAFRÆNT VIA LUMI OG Í HÖFUÐSTÖÐVUM FÉLAGSINS

FIMMTUDAGINN 17. MARS 2022 KL. 16:30

Meðfylgjandi eru niðurstöður fundarins.

1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess á liðnu starfsári og staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár (dagskrárliðir 1 og 2)

Ársreikningurinn og skýrsla stjórnar voru samþykkt.

2. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar á reikningsárinu 2021 (dagskrárliður 3)

Fyrir fundinum lá eftirfarandi tillaga stjórnar félagsins sem var samþykkt:

Fundurinn samþykkti að félagið greiði hluthöfum arð vegna reikningsársins 2021 sem nemur 14,27 krónum á hlut sem samsvarar um 44,0% af hagnaði ársins. Viðmiðunardagsetning arðgreiðslu verði við lok viðskipta á aðalfundardegi og arðleysisdagur því 18. mars 2022 og arðsréttardagur 21. mars 2022. Lagt er til að útborgunardagur verði þann 20. apríl 2022.

3. Tillaga um endurnýjun heimildar til kaupa á eigin hlutum skv. gr. 11.2 í samþykktum félagsins (dagskrárliður 4)

Fundurinn samþykkti tillögu stjórnar um að endurnýja heimildina til næstu 18 mánaða.

4. Tillaga um lækkun hlutafjár að fjárhæð kr. 2.150.000 að nafnverði með greiðslu til hluthafa (dagskrárliður 5)

Fundurinn samþykkti tillögu stjórnar um lækkun hlutafjár.

5. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins (dagskrárliður 6)

Fundurinn samþykkti framlagða starfskjarastefnu stjórnar, með þeirri breytingu sem barst frá Gildi lífeyrissjóð.

Gildandi starfskjarastefnu félagsins má nálgast á vefsíðu aðalfundar 2022 og fjárfestasíðu félagsins.

6. Kosning stjórnar félagsins (dagskrárliður 7)

Fundurinn kaus eftirfarandi einstaklinga í stjórn félagsins:

Guðrún Blöndal Lárus L. Blöndal Margrét Guðmundsdóttir Ólöf Hildur Pálsdóttir Óskar Magnússon

Fundurinn kaus eftirfarandi einstaklinga í varastjórn félagsins:

Baldvin Þorsteinsson Jóhanna á Bergi

7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, varamanna og undirnefnda stjórnar (dagskrárliður 8)

Fundurinn samþykkti tillögum um þóknun stjórnarmanna, varamanna og undirnefnda stjórnar, sem verða því sem hér segir:

Stjórnarformaður kr. 700.000 á mánuði
Varaformaður kr. 550.000 á mánuði
Meðstjórnendur kr. 350.000 á mánuði
Varamenn kr. 140.000 fyrir hvern setinn fund, þó ekki hærra en kr. 350.000 fyrir
hvern mánuð
Nefndarmenn í
endurskoðunarnefnd
kr. 140.000 á mánuði
Nefndarmenn í
starfskjaranefnd
kr. 140.000 á mánuði
Nefndarmenn í
Tilnefningarnefnd
kr. 140.000 á mánuði

Stjórnarlaun og laun nefndarmanna eru ákveðin fyrirfram fyrir kjörtímabilið.

8. Kosning endurskoðenda (dagskrárliður 9)

PricewaterhouseCoopers ehf., Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík, var kjörið endurskoðunarfélag Eimskipafélags Íslands hf. fyrir árið 2022.

Stjórn félagsins hittist í kjölfar aðalfundarins og skipti með sér verkum.

Óskar Magnússon var kosinn stjórnarformaður og Margrét Guðmundsdóttir var kosin varaformaður stjórnar.