AI assistant
Eimskipafélag Íslands — AGM Information 2021
Mar 22, 2021
2194_rns_2021-03-22_77ef3d42-e8d4-4d3c-bd36-64a3dae2572d.html
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Skráning á aðalfund Eimskipafélags Íslands hf. 25. mars 2021
Skráning á aðalfund Eimskipafélags Íslands hf. 25. mars 2021
Eimskip vill vekja athygli hluthafa á því að tilhögun fundahalda verður í samræmi við gildandi sóttvarnarreglur um viðburði þar sem allt að 200 gestir sitja. Af því leiðir að:
- Þátttaka allra gesta verður skráð á númeruð sæti þar sem fram kemur nafn, kennitala og símanúmer. Skráning verður varðveitt í tvær vikur.
- Allir fundargestir skulu nota andlitsgrímu og tryggt verður að fjarlægð milli ótengdra aðila sé meiri en 1 metri.
- Koma þarf í veg fyrir hópamyndanir, jafnt fyrir og eftir viðburð.
Vegna þessa er nauðsynlegt að hluthafar sem ætla að mæta á aðalfund skrái sig fyrirfram á fundinn, eða fyrir kl. 15:00 næstkomandi miðvikudag 24. mars 2021. Hluthafar þurfa að skrá nafn, kennitölu og símanúmer áður en mætt er til fundar. Vinsamlega skráið ykkur hér
Á grundvelli þessarar skráningar verður atkvæðaseðill hluthafa prentaður út og hann lagður í það númeraða sæti sem hlutafanum verður úthlutað á aðalfundinum. Upplýsingar um sætisnúmer hluthafa verður aðgengilegt við inngang fundarins.
Öll gögn fundarins eru aðgengileg á fjárfestasíðu félagsins.
Ef breyta þarf tilhögun fundarhalda vegna breytinga á sóttvarnarreglum, þá verður tilkynnt um það í fréttakerfi Nasdaq Iceland.