Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands AGM Information 2018

Aug 10, 2018

2194_agm-r_2018-08-10_1e448579-07cc-49fc-a444-589acd73dcfe.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

HLUTHAFAFUNDUR EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS HF.

Þann 6. september 2018 kl. 16:00 er boðað til hluthafafundar í Eimskipafélagi Íslands hf., kt. 690409-0460, í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2.

Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál:

1. Kosning stjórnar félagsins.

Kosið er til fimm sæta í stjórn og tveggja í varastjórn.

Greinargerð stjórnar:

Samherji Holding ehf. keypti nýverið 25,3% hlutafjár í Eimskipafélagi Íslands hf. og hefur nú óskað eftir hluthafafundi þar sem fram fari stjórnarkjör. Vegna þess boðar stjórn til hluthafafundar.

2. Önnur mál.

***

Reglur um þátttöku og atkvæðagreiðslu á fundinum

Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá, leggja fram ályktunartillögur og spyrja spurninga, með skriflegum eða rafrænum hætti. Kröfu þar um skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun sem berast skal stjórn félagsins eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, fyrir kl. 16:00 þann 27. ágúst 2018. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors

Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 skal tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst fimm dögum fyrir hluthafafund. Framboðstilkynningu má nálgast á skrifstofu félagsins. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir hluthafafund.

Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu að frádregnum eigin hlutum sem eru án atkvæðisréttar. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthöfum sem ekki sækja fund stendur til boða að kjósa um dagskrármál með skriflegum hætti eða veita umboð. Ekki verður unnt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum.

Eigi síðar en fimm dögum fyrir fund þarf beiðni hluthafa um að kjósa með skriflegum hætti að berast félaginu. Hluthafar geta fengið atkvæðaseðla senda til sín, en einnig má nálgast þá í höfuðstöðvum félagsins þar sem greiða má atkvæði alla virka daga milli kl. 9:00 og 16:30. Atkvæðin skulu berast félaginu fyrir fundinn. Hluthafar geta veitt skrifleg umboð að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Slík umboð skulu berast félaginu áður en fundur hefst eða við skráningu á fundarstað. Nánari upplýsingar um atkvæðareglur og notkun umboða er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors

Aðrar upplýsingar

Skjöl sem lögð verða fyrir fund er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors

Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2, 104 Reykjavík, virka daga milli kl. 9:00 og 16:30.

Endanleg dagskrá og tillögur stjórnar verða birtar einni viku fyrir fundinn. Berist tillögur frá hluthöfum verða þær birtar viku fyrir fundinn ásamt uppfærðri dagskrá.

Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá kl. 15:30 á fundardegi.

Reykjavík, 10. ágúst 2018,

Stjórn Eimskipafélags Íslands hf.