Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands AGM Information 2017

Mar 2, 2017

2194_rns_2017-03-02_3720b374-007b-4184-ace6-2e60b8b0b0d5.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

E IMSKIP

Eimskipafélag Íslands hf.

Ályktunartillögur fyrir aðalfund 2017

Hluthöfum er bent á að endanlegar tillögur stjórnar verða lagðar fram tveimur víkum fyrir aðalfund. Öll gögn vegna aðalfundar er að finna á vefsiðu félagsins: www.eimskip.is/investors/agm

2. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár

Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. leggur til við aðalfund félagsins að ársreikningur fyrir árið 2016 verði sambykktur.

3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar á reikningsárinu 2016

Félagsstjórn leggur til við aðalfund að greiddur verði út arður vegna reikningsársins 2016 sem nemur 6,8 krónum á hlut. Nemi heildarfjárhæð arðgreiðslunnar 1.269,1 milljónum króna sem samsvari um 50,0% af hagnaði ársins. Viðmiðunardagsetning arðgreiðslu verði við lok viðskipta á aðalfundardegi og arðleysisdagur¹ því 24. mars 2017 og arðsréttardagur² 27. mars 2017. Lagt er til að útborgunardagur³ verði þann 19. apríl 2017.

4. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins

Stjórn félagsins leggur til að framlögð starfskjarastefna félagsins verði sambykkt.

5. Kosning stjórnar félagsins

Endanlegar upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar félagsins verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn, sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995.

6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, varamanna og undirnefnda stjórnar

Stjórn félagsins leggur til að stjórnarlaun vegna ársins 2017 verði sem hér segir:

Stjórnarformaður kr. 600.000 á mánuði
Varaformaður kr. 455.000 á mánuði
Meðstjórnendur kr. 300.000 á mánuði
Varamenn kr. 120.000 fyrir hvern setinn fund, þó ekki hærra en kr. 300.000 fyrir hvern mánuð
Nefndarmenn í endurskoðunarnefnd kr. 120.000 á mánuði
Nefndarmenn í starfskjaranefnd kr. 120.000 á mánuði

Stjórnarlaun og laun nefndarmanna í endurskoðunar- og starfskjaranefnd eru ákveðin fyrirfram fyrir kjörtímabilið.

7. Kosning endurskoðenda

Lagt er til að KPMG ehf., Borgartúni 27, 105 Reykjavík, verði endurkjörnir endurskoðendur félagsins fyrir árið 2017.


¹ Arðleysisdagur er sá dagur sem viðskipti hefjast án arðsréttinda, þ.e. næsti viðskiptadagur eftir aðalfund.
² Arðsréttardagur er sá dagur sem hluthafar verða að vera skráðir í hlutaskrá til að eiga rétt á arði, þ.e. annar viðskiptadagur eftir aðalfund. Þetta þýðir að hluthafar sem hafa keypt hluti á aðalfundardegi munu fá greiddan arð.
³ Útborgunardagur er sá dagur sem arður er greiddur út til hluthafa.