AI assistant
Eimskipafélag Íslands — AGM Information 2015
Mar 4, 2015
2194_egm_2015-03-04_d5e3b4c7-d4ed-4d96-96ed-578936ef521f.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Eimskipafélag Íslands hf.
Ályktunartillögur fyrir aðalfund 2015
Hluthöfum er bent á að endanlegar tillögur verða lagðar fram tveimur vikum fyrir aðalfund. Öll gögn vegna aðalfundar er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.is/investors/agm
2. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. leggur til við aðalfund félagsins að ársreikningur fyrir árið 2014 verði samþykktur.
3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar á reikningsárinu 2014
Félagsstjórn leggur til við aðalfund að greiddur verði út arður vegna reikningsársins 2014 sem nemur 5,00 krónum á hlut. Nemi heildarfjárhæð arðgreiðslunnar 933,2 milljónum króna sem samsvari um 45,7% af hagnaði ársins. Viðmiðunardagsetning arðgreiðslu verði við lok viðskipta á aðalfundardegi og arðleysisdagur1 því 27. mars 2015 og arðsréttardagur2 30. mars 2015. Lagt er til að útborgunardagur3 verði þann 21. apríl 2015.
4. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins
Stjórn félagsins leggur til að framlögð starfskjarastefna félagsins verði samþykkt.
5. Kosning stjórnar félagsins
Endanlegar upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar félagsins verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn, sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995.
6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, varamanna og undirnefnda stjórnar
Stjórn félagsins leggur til að stjórnarlaun vegna ársins 2015 verði sem hér segir:
| Stjórnarformaður | kr. 550.000 á mánuði |
|---|---|
| Varaformaður | kr. 415.000 á mánuði |
| Meðstjórnendur | kr. 275.000 á mánuði |
| Varamenn | kr. 110.000 fyrir hvern setinn fund, þó ekki hærra en kr. 275.000 fyrir hvern mánuð |
| Nefndarmenn í endurskoðunarnefnd |
kr. 110.000 á mánuði |
| Nefndarmenn í starfskjaranefnd |
kr. 110.000 á mánuði |
Stjórnarlaun og laun nefndarmanna í endurskoðunar- og starfskjaranefnd eru ákveðin fyrirfram fyrir kjörtímabilið.
7. Kosning endurskoðenda
Lagt er til að KPMG ehf., Borgartúni 27, 105 Reykjavík, verði endurkjörnir endurskoðendur félagsins fyrir árið 2015.
1 Arðleysisdagur er sá dagur sem viðskipti hefjast án arðsréttinda, þ.e. næsti viðskiptadagur eftir aðalfund.
2 Arðsréttardagur er sá dagur sem hluthafar verða að vera skráðir í hlutaskrá til að eiga rétt á arði, þ.e. annar viðskiptadagur
eftir aðalfund. Þetta þýðir að hluthafar sem hafa keypt hluti á aðalfundardegi munu fá greiddan arð.
3 Útborgunardagur er sá dagur sem arður er greiddur út til hluthafa.