AI assistant
Eik fasteignafélag — Proxy Solicitation & Information Statement 2017
Mar 6, 2017
2193_rns_2017-03-06_fa2b8826-a9cb-484e-ab83-ba5a239a8c8d.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Eik Fasteignafélag
Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn 29. mars 2017.
Stjórn Eikar fasteignafélags hf. boðar til aðalfundar í félaginu og verður hann haldinn á 19. hæð í Turninum, Smáratorgi 3, 201 Kópavogi, miðvikudaginn 29. mars 2017 og hefst stundvislega kl. 15:30.
Drög að dagskrá fundarins er svohljóðandi:
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár.
- Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, eru lagðir fram til staðfestingar.
- Ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu og greiðslu arðs.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnar fyrir störf þeirra fyrir komandi starfsár, að fengnum tillögum félagsstjórnar.
- Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Tillaga félagsstjórnar um breytingar á samþykktum félagsins.
- Kosning félagsstjórnar.
- Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
- Önnur mál sem löglega eru fram borin.
Aðrar upplýsingar:
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hónd. Umboðsmaður skal leggja fram dagsett og skriflegt eða rafrænt umboð á eyðublaði eða í samræmi við eyðublað sem er aðgengilegt á vef félagsins. Rafænt umboð skal senda á netfangið [email protected] áður en fundur hefst. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvisað við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er. Umboðseyðublað má nálgast inn á www.eik.is/fjarfestar/hluthafar.
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum og leggja fram ályktunartillögur ef hann gerir skriflega eða rafræna krófu um það til stjórnar félagsins eigi síðar en kl. 15:30 sunnudaginn 19. mars 2017. Hægt er að senda tillögur fyrir fundinn á netfangið [email protected]. Hafí hluthafi krafist þess að fá mál tekin til meðferðar á fundinum eða lagt fram ályktunartillögur fyrir 16.-19. mars 2017, verða endanleg dagskrá og tillögur upplæðar á vefsíðu félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfundinn. Mál, sem ekki hafa verið greind í endanlegri dagskrá aðalfundar, er ekki unnt að taka til endanlegrar úrlausnar á fundinum nema með samþykki allra hluthafa en gera má um þau ályktun til leiðbeiningar fyrir félagsstjórn.
Á hluthafafundum félagsins fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á fundinum ef einhver atkvæðisbærra fundarmanna krefst þess. Stjórnarkjör skal jafnan vera skriflegt, ef tillögur koma fram um fleiri menn en kjósa skal um. Hluthafar getta greitt atkvæði bréflega fyrir fundinn með því að fylla með skýrum og greinilegum hætti út atkvæðaseðil sem finna má á vefsíðu félagsins, undirrita og votta seðilinn, og senda hann með pósti á lögheimili félagsins eða rafrænt á netfangið [email protected]. Atkvæðaseðillinn þarf að uppfylla framangreind skilyrði og berast í síðasta lagi einni klukkustund fyrir upphaf aðalfundarins svo atkvæðið teljist gilt.
Frestur til að tilkynna um framboð til stjórnar á netfangið [email protected] lýkur finm dögum fyrir aðalfund, nánar tiltekið kl. 15:30 fóstudaginn 24. mars 2017. Eyðublöð vegna framboð til stjórnarsetu er að finna á vefsíðu félagsins og verða upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar birtar þar og verða til sýnis á skrifstofu þess eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Aðalfundur er lögmætur ef fulltrúar sem hafa yfir að ráða helmingi hlutafjárins híd minnsta mæta eða taka þátt, sbr. 11. gr. samþykktta félagsins. Aðalfundurinn fer fram á íslensku og verða fundargógn og atkvæðaseðlar, sem verða afhent á fundarstað, einnig á íslensku.
Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa og annað sem varðar aðalfundinn, svo sem endanleg dagskrá, tillögur stjórnar og hluthafa, starfskjarastefnu, eyðublöð vegna umboð og framboð til stjórnar, upplýsingar um atkvæðagreiðslu og atkvæðaseðil vegna skriflegra kosninga og kosninga fyrir aðalfund, skjól sem verða lögð fram á aðalfundi, upplýsingar um frambjóðendur, upplýsingar um fjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu, er – eða verður eftir því sem þau verða til – að finna á vefsíðu félagsins, www.eik.is/fjarfestar/hluthafar. Auk þess munu viðeigandi gögn liggja frammi í hófuðstöðvum félagsins, að Álfheimum 74, 104 Reykjavik, tveimur vikum fyrir aðalfundinn. Endanleg dagskrá frá stjórn og tillögur verður birt miðvikudaginn 15. mars 2017.
Upplýsingar um tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins og greinargerð með þeim má finna í heild sinni á vefsíðu félagsins, www.eik.is/fjarfestar/hluthafar. Flestar breytinganna eru gerðar til að samræma samþykktimar betur við lög og góða stjórnarhætti, en í stuttu mál lúta tillögurnar að eftirfarandi atriðum:
Smávægilegri orðalagsbreytingu á 6. gr. um heimildir hluthafa til framsals hluta sinna, á 8. gr. um eigin hluti, á 12. gr. um mál sem taka skal fyrir á aðalfundi auk þess sem bætt er við ákvæði um arðgreiðslur og fellt á brott ákvæði um að hluthafundir ákvarði þóknun endurskoðenda, á 13. gr. um boðun aukafunda auk þess sem hlutfall hluthafa sem þarf að krefjast fundar er lækkað í 1/20, á 15. gr. um hvernig mál sem ekki er getið um í fundarboði verði tekin til atkvæðagreiðslu á hluthafund, og á 18. gr. um stjórnarkjör auk þess sem fræstum til að krefjast hlutfalls- eða margfeldiskosningar og birta hluthöfum upplýsingar um stjórnarframboð er breytt og viðbótarorðalag um forgang margfeldiskosningar sett inn.
Víðbótarorðalagi í 11. gr. um form og efni fundarboðs hluthafundar og um hvaða upplýsingar skal birta á vef félagsins í tengslum við aðalfund auk þess sem fellt er á brott ákvæði um að fundur sé eingöngu lögmætur ef fulltrúar sem ráða yfir að lágmarki helmingi hlutafjárins taki þátt, í 14. gr. um að fundargerð skuli vera aðgengileg hluthöfum félagsins á skrifstofu þess 14 dögum eftir fund, í 15. gr. um hvaða mál verði greidd atkvæði um á hluthafund, um rétt hluthafa til að fá mál tekið til meðferðar á aðalfundi og um hvenær skal birta úrslit kosninga á hluthafund á vef félagsins, og í 20. gr. um stofnun undimefnda stjórnar hvenær niðurstaða slíkra nefnda er bindandi fyrir stjórn.
Reykjavik, 7. mars 2017
Stjórn Eikar fasteignafélags hf.
Eik fasteignafélag hf.
Álfheimum 74, 104 Reykjavik
www.eik.is