AI assistant
Eik fasteignafélag — M&A Activity 2016
Feb 10, 2016
2193_rns_2016-02-10_558aee86-cafe-47dd-9de0-3f03d4967165.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Eik fasteignafélag hf. : Undirritun kaupsamnings á Heimshótelum ehf. (Hótel 1919)
Eik fasteignafélag hf. : Undirritun kaupsamnings á Heimshótelum ehf. (Hótel 1919)
Í tilkynningu Eikar fasteignafélags hf. þann 14. október sl. kom fram að félagið
hefði undirritað kauptilboð um kaup félagsins á öllu útgefnu hlutafé Heimshótela
ehf.
Í dag, 10. febrúar 2016, hefur kaupsamningur verið undirritaður um ofangreind
viðskipti. Umsamið kaupverð er 3,6 milljarðar króna (Enterprise value) fyrir
allt útgefið hlutafé í Heimshótelum ehf., að teknu tilliti leiðréttinga samkvæmt
skilmálum kaupsamningsins, þ.e. framangreint kaupverð miðast við að (i) við
afhendingu sé félagið og Hótel 1919 ehf. skuldlaus og (ii) að til staðar séu í
félaginu 110 m.kr. sem munu nýtast til betrumbóta á hótelinu. Kaupsamningurinn
er háður fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins, Seðlabanka Íslands, þar
sem seljandi er erlendur aðili, og Rezidor Hotels ApS.
Fasteignirnar sem um ræðir og eru í eigu Heimshótela ehf. eru Pósthússtræti 2,
Tryggvagata 28 og Hafnarstræti 9-11 í Reykjavík. Allt hlutafé í Hóteli 1919
ehf., sem er 100% í eigu Heimshótela ehf., er hluti af kaupverðinu. Hótel 1919
ehf. er með langtímarekstrarsamning við alþjóðlegu hótelkeðjuna Rezidor Hotels
ApS um rekstur hótelsins undir nafni Radisson Blu. Rekstrarsamningurinn felur
það í sér að Rezidor Hotels stýrir og hefur eftirlit með rekstri hótelsins gegn
tiltekinni þóknun en hagnaður félagsins rennur að öðru leyti til Eikar.
Rekstrarsamningur af þessu tagi er lítt þekktur meðal fasteignaeigenda á Íslandi
en er algengt rekstrarform meðal fasteignaeigenda erlendis.
Fasteignirnar eru tæpar 6 þúsund fermetrar að stærð og staðsettar í hjarta
Reykjavíkur. Þar sem tekjur Heimshótela ehf. ráðast m.a. af verðlagningu
hótelherbergja og herbergisnýtingu Hótels 1919 ehf. munu sveiflur verða á EBITDA
félagsins. Áætlað er að "yield" kaupanna verði um 8% við afhendingu.
Kaupin verða fjármögnuð með lántöku og handbæru fé félagsins. Félagið mun birta
rekstrarspá síðar í febrúar fyrir árið 2016 þar sem tekið verður tillit til
tekna vegna Heimshótela.
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri:
"Það er ánægjuefni að tilkynna að ritað hafi verið undir kaupsamning á öllu
hlutafé Heimshótela ehf. Um er að ræða frábæra eign á besta stað í
höfuðborginni. Með kaupum á Heimshótelum ehf. (Hótel 1919) mun Eik eiga flestar
fasteignir á reitnum sem afmarkast af Hafnarstræti, Tryggvagötu og Naustinu og
passar því eignin einstaklega vel í eignasafn Eikar. "
Nánari upplýsingar veitir:
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, [email protected], s. 590-2200 / 861-3027.
[HUG#1984927]