AI assistant
Eik fasteignafélag — M&A Activity 2016
Nov 18, 2016
2193_rns_2016-11-18_f8ef69f5-e7cf-40a8-b262-35ef8ced4488.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Eik fasteignafélag hf.: Samþykkt kauptilboð í Slippinn fasteignafélag ehf. (Hótel Marina)
Eik fasteignafélag hf.: Samþykkt kauptilboð í Slippinn fasteignafélag ehf. (Hótel Marina)
Í dag, 18. nóvember 2016, hefur Eik fasteignafélag hf. undirritað kauptilboð um
kaup á öllu útgefnu hlutaféi Slippsins fasteignafélags.
Heildarvirði kaupanna eru 4.450 m.kr. Fasteignir í eigu Slippsins
fasteignafélags eru Mýrargata 2-8, Mýrargata 12 og Mýrargata 14-16. Eignirnar,
sem staðsettar eru í hjarta miðbæjar Reykjavíkur, eru samtals 6.504 fermetrar.
Flugleiðahótel er leigutaki allra fermetrana og eru með langtímaleigusamning.
Vænt ávöxtun fjárfestingarinnar fyrir árið 2017 er tæplega 6,7% m.v. núverandi
forsendur um tekjur og gjöld. Við kaupin munu hóteleignir verða 13% af virði
fasteigna Eikar og verða 99% af þeim eignum staðsettar í miðbæ Reykjavíkur.
Tilboðið er háð ýmsum fyrirvörum og skilyrðum sem aðilar munu vinna sameiginlega
að því að aflétta.
Nánari upplýsingar veita:
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, garð[email protected], s. 590-2200 / 861-3027.
Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, [email protected], s.
590-2209 / 820-8980.
[]