AI assistant
Eik fasteignafélag — M&A Activity 2013
Sep 5, 2013
2193_rns_2013-09-05_2b018d3c-9965-4a94-a407-f31dfe34ff41.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Disclosure 309301
Eik fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir
Varðandi kauptilboð Regins í hluta Eikar fasteignafélags hf.
Stjórn Eikar fasteignafélags hf. barst í dag kauptilboð sem Reginn hf. gerir hluthöfum Eikar í allt hlutafé félagsins. Reginn hf. hefur þegar tilkynnt um tilboðið og meginefni þess. Í tilboðinu er miðað við að hver hlutur í Eik fasteignafélagi hf. sé metinn á genginu 5,05. Í nýlegu hlutfjárútboði Eikar til forgangsréttarhafa var hver hlutur seldur á genginu 4,15. Stjórn Eikar fasteignafélags hf. hefur ekki gefist kostur á að leggja mat á tilboð Regins, enda tilboðið lagt fram án vitneskju stjórnarinnar. Eins og tilkynnt hefur verið hefur Eik fasteignafélag hf. nýlega undirritað samning um kaup á tilteknum eignum SMI ehf., sem stjórn beggja félaga hafa samþykkt fyrir sitt leiti. Það að tilboð hafi borist í alla hluti í Eik hf. sýnir áhuga á félaginu. Hluthafar Eikar hf. eiga nú tvo prýðilega kosti. Eik mun kappkosta að kynna báða kosti fyrir öllum hluthöfum vel á næstunni. Nánari upplýsingar veitir Garðar Hannes Friðjónsson Forstjóri Sími 861-3027 Tölvupóstu [email protected]