Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eik fasteignafélag M&A Activity 2013

Sep 23, 2013

2193_rns_2013-09-23_07b7bc2a-acf2-41cb-8d08-ede86f796302.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Disclosure 309574

Eik fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

Eik fasteignafélag hf. og Landfestar ehf. hefja samrunaviðræður

Stjórn Eikar fasteignafélags hf. og Arion banki hf., eigandi Landfesta ehf., hafa ákveðið að hefja viðræður um hugsanlegan samruna Eikar fasteignafélags hf. og Landfesta hf. Markmið viðræðnanna er að leggja mat á eignarhlutföll í sameinuðu félagi og væntan ábata hluthafa félaganna tengdan samlegðartækifærum félaganna og hugsanlegri skráningu hlutafjár hins sameinaða félags í kauphöll. Í viðræðum aðila er gert ráð fyrir því að Eik fasteignafélag hf. ljúki þeim kaupum fasteigna af SMI ehf., sem félagið hefur skuldbundið sig til. Ef af samruna félaganna verður, verður hið sameinaða félag eitt sterkasta fasteignafélag landsins og augljós valkostur viðskiptamanna og fjárfesta. Gert er ráð fyrir að niðurstaða viðræðna aðila liggi fyrir innan fjögurra vikna. Frekari upplýsingar veitir: Garðar Hannes Friðjónsson Forstjóri Sími 861-3027 [email protected]