Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eik fasteignafélag Earnings Release 2021

Aug 10, 2021

2193_rns_2021-08-10_621d8c8b-dc79-4c06-a1a8-5eafd5bad938.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Eik fasteignafélag hf.: Bætt afkoma á öðrum ársfjórðungi og uppfærð afkomuspá

Eik fasteignafélag hf.: Bætt afkoma á öðrum ársfjórðungi og uppfærð afkomuspá

Samkvæmt stjórnendauppgjöri lítur út fyrir að EBITDA af rekstri á öðrum ársfjórðungi 2021 verði á bilinu 2.670 - 2.730 m.kr. og afkoma fyrstu sex mánaða ársins því um það bil 5% umfram áætlanir stjórnenda.

Afkoma á tímabilinu batnar einkum vegna þess að stjórnendur ráðgera að neikvæð áhrif faraldursins á viðskiptavini félagsins í ferðaþjónustu verði takmarkaðri en áætlað var. Dregið hefur úr áhrifum virðisrýrnunar viðskiptakrafna þar sem staða þeirra hefur hækkað minna en félagið hafði gert ráð fyrir og horfur á heimtum eru álitnar betri. Sömu ástæður standa til þess að stjórnendur álíta rétt að uppfæra afkomuspá.

Aðlöguð EBITDA afkomuspá fyrir árið 2021 er nú á bilinu 5.400 - 5.700 m.kr. miðað við fast verðlag frá júlí 2021 samanborið við 5.050 - 5.350 m.kr. spá þá sem félagið birti í febrúar 2021, en hún miðaði við 2,5% jafna verðbólgu á árinu. Ný afkomuspá er líkt og áður háð áhættu- og óvissuþáttum, einkum áhrifa faraldursins, sem geta þýtt að afkoman verði frábrugðin því sem greint er frá í þessari spá.

Í samræmi við upplýsingastefnu sína stefnir félagið meðal annars að því að birta opinberlega upplýsingar um það ef stjórnendur vænta áhrifa sem nema 3% eða meira á rekstrarhagnað (EBITDA), að teknu tilliti til áður birtra upplýsinga.

Uppgjörsferlinu og könnun endurskoðenda félagsins er ólokið. Afkoman kann að taka breytingum af þeim sökum. Félagið birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2021 eftir lokun markaða miðvikudaginn 25. ágúst.

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, [email protected], s. 590-2200

Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, [email protected], s. 820-8980