AI assistant
Eik fasteignafélag — Earnings Release 2018
Apr 25, 2018
2193_rns_2018-04-25_a9dae7c4-c970-4091-9720-044316bfa2b5.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu þrjá mánuði ársins 2018
Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu þrjá mánuði ársins 2018
* Rekstrartekjur tímabilsins námu 1.946 m.kr.
* Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 1.235 m.kr.
* Heildarhagnaður tímabilsins nam 1.103 m.kr.
* Handbært fé frá rekstri nam 817 m.kr. á tímabilinu.
* Bókfært virði fjárfestingareigna nam 86.685 m.kr. og bókfært virði eigin
eigna nam 3.733 m.kr. í lok tímabilsins.
* Matsbreyting fjárfestingareigna nam 884 m.kr. á tímabilinu.
* Söluhagnaður fjárfestingareigna nam 204 m.kr. á tímabilinu.
* Vaxtaberandi skuldir námu 57.729 m.kr. í lok tímabilsins.
* Eiginfjárhlutfall nam 30,7% a.t.t arðgreiðslu félagsins sem greidd verður í
lok apríl.
* Hagnaður á hlut var 0,32 kr.
* Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til
31. mars 2018 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 25. apríl
2018.
Meðfylgjandi er árshlutaskýrsla sem inniheldur árshlutareikning fyrstu þrjá
mánuði ársins ásamt ítarlegri upplýsingum um rekstur félagsins en fram koma í
tilkynningunni.
Rekstur félagsins
Rekstur félagsins gekk vel á fyrstu þremur mánuðum ársins 2018 og er uppgjörið í
takt við áætlanir stjórnenda félagsins. Rekstrartekjur félagsins á fyrstu þremur
mánuðum ársins 2018 námu 1.946 m.kr. og aukast um 11,1% milli ára. Þar af voru
leigutekjur 1.637 m.kr. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam
1.235 m.kr. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 1.379 m.kr. og heildarhagnaður
tímabilsins nam 1.103 m.kr.
NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, afskriftir og
einskiptisliði sem hlutfall af leigutekjum) nam 73,4% á fyrstu þremur mánuðum
ársins 2018 samanborið við 74,0% fyrstu þrjá mánuði ársins 2017.
Fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS) og stuðst er m.a. við núvirt framtíðarsjóðstreymi
einstakra eigna. Breytingar á gangvirði eru færðar undir matsbreytingu
fjárfestingareigna sem nam 884 m.kr á tímabilinu. Söluhagnaður
fjárfestingareigna nam 204 m.kr. í fjórðungnum.
Efnahagur félagsins
Heildareignir félagsins námu 95.712 m.kr. þann 31. mars 2018. Þar af eru
fjárfestingareignir að virði 86.685 m.kr. sem skiptast í fasteignir í útleigu að
fjárhæð 84.515 m.kr., fasteignir í þróun 1.709 m.kr., byggingarréttir og lóðir
448 m.kr. og fyrirframgreidd gatnagerðargjöld að fjárhæð 13 m.kr. Eigin eignir
námu 3.733 m.kr. og er Pósthússtræti 2 (Hótel 1919) fært sem eigin eign þar sem
í fasteigninni er annar rekstur en útleiga fasteigna og er reksturinn í eigu
eins dótturfélags Eikar. Eigið fé félagsins nam 29.426 m.kr. í lok mars 2018 og
var eiginfjárhlutfall 30,7% a.t.t. arðgreiðslu félagsins sem greidd verður í lok
apríl. Heildarskuldir félagsins námu 66.286 m.kr. þann 31. mars 2018, þar af
voru vaxtaberandi skuldir 57.729 m.kr. og tekjuskattsskuldbinding 6.285 m.kr.
Virðisútleiguhlutfall
Virðisútleiguhlutfall félagsins var 96,0% í lok ársfjórðungsins og hefur hækkað
um 0,7% frá áramótum.
Arðgreiðslustefna
Samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 22. mars 2018 að greiða 915 m.kr. í arð
til hluthafa. Arðurinn verður greiddur til hluthafa þann 26. apríl 2018. Stefna
stjórnar er að greiða 35% af handbæru fé frá rekstri hvers árs í arð til
hluthafa. Handbært fé frá rekstri fyrstu þrjá mánuði ársins nam 817 m.kr.
Eignasafn félagsins
Fasteignirnar innan samstæðunnar eru rúmlega 100 talsins og telja tæplega 300
þúsund útleigufermetra í 600 leigueiningum og eru leigutakarnir á fimmta
hundrað. Helstu fasteignir félagsins eru Borgartún 21 og 26, Suðurlandsbraut 8,
Mýrargata 2-16, Pósthússtræti 2, Álfheimar 74 (Nýi Glæsibær) og Austurstræti
5,6,7 og 17 í Reykjavík, Smáratorg 1 og 3 í Kópavogi og Glerártorg á Akureyri.
Stærstu leigutakar eru Húsasmiðjan, Flugleiðahótel, Fasteignir ríkissjóðs,
Rúmfatalagerinn, Landsbankinn, Síminn, Sýn (Fjarskipti), Míla, Deloitte og
Vátryggingafélag Íslands.
Stærsti hluti fasteignasafns Eikar eru skrifstofuhúsnæði eða 44%. Næst koma
verslunarhúsnæði 25%, hótel 12%, lagerhúsnæði 12%, og veitingahúsnæði 4%. Um
91% fasteigna félagsins eru á höfuðborgarsvæðinu, þar af 36% á fjármála- og
viðskiptasvæði Reykjavíkur (aðallega innan póstnúmera 105 og 108), 22% í miðbæ
Reykjavíkur og 19% í Smáranum - Mjódd. 9% eignasafnsins er á landsbyggðinni, þar
af 8% á Akureyri.
Í ársfjórðungnum keypti félagið Vatnagarða 22, sem er vel staðsett 2.380 fm.
lagerhúsnæði í fullri útleigu. Þá seldi félagið Ármúla 13a, sem er
skrifstofuhúsnæði að stærð 2.382 fm. Húsnæðið hafði staðið autt síðan Sýn hf.
færði höfuðstöðvar sínar að Suðurlandsbraut 8.
Kynningarfundur
Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 26. apríl 2018 klukkan 8:30 á
Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2, Reykjavík. Boðið
verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8:00. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri
Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Lýð H.
Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.
Fjárhagsdagatal 2018
* Árshlutauppgjör 2. ársfjórðungs 2018 30. ágúst 2018
* Árshlutauppgjör 3. ársfjórðungs 2018 31. október 2018
* Ársuppgjör 2019 28. febrúar 2019
Nánari upplýsingar veitir:
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, [email protected], s. 590-2200
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, [email protected], s. 590-2200 /
820-8980
[]
Viðhengi: