Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eik fasteignafélag Earnings Release 2015

Feb 29, 2016

2193_rpt_2016-02-29_94da35d2-6622-4873-bdee-de68f74f590d.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

2 Eik fasteignafélag hf.

Fréttatilkynning

Ársreikningur 2015

Ársreikningur Eikar fasteignafélags var samþykktur af stjórn félagsins í dag, 29. febrúar 2016.

  • Rekstrartekjur ársins námu 5.907 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 4.173 m.kr.
  • Heildarhagnaður ársins nam 4.629 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 2.343 m.kr. á árinu.
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 67.625 m.kr. í árslok.
  • Matsbreyting var jákvæð á árinu um 4.168 m.kr.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 41.746 m.kr. í árslok.
  • Eiginfjárhlutfall nam 33,8%.
  • Hagnaður á hlut var 1,34 kr.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri:

"Rekstur Eikar fasteignafélags gekk vel á árinu 2015 og var hagnaður af rekstri félagsins 4,6 milljarðar króna. Ánægjulegt var að sjá hve vel gekk að auka virðisútleiguhlutfallið en það hækkaði um 2,2% á árinu. Mikil eftirspurn var á síðari hluta ársins eftir húsnæði í helstu viðskiptakjörnum höfuðborgarsvæðisins en 91% af fast-eignum félagsins eru staðsettar á því svæði."

Félagið hefur gefið út ársskýrslu félagsins, sem hefur að geyma ítarlegar upplýsingar um félagið og rekstur þess á árinu 2015 ásamt ársreikning. Skýrslan er meðfylgjandi þessari tilkynningu og má einnig finna á heimasíðu félagsins, www.eik.is.

Ársreikningur Eikar fasteignafélags hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Endurskoðendur félagsins, KPMG ehf., hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralaust.

Tillaga um arðgreiðslu

Félagið hefur sett sér arðgreiðslustefnu um að greiða árlega út arð sem nemur 35% af handbæru fé frá rekstri

Fréttatilkynning

hvers árs. Í samræmi við stefnuna leggur stjórn félagsins til við aðalfund, sem haldinn verður 12. apríl n.k., að greiddur verði út 820 m.kr. (0,24 kr. á hlut) arður til hluthafa á árinu 2016 vegna rekstrarársins 2015.

Horfur

Félagið hefur gefið út ítarlega rekstraráætlun fyrir árið 2016 sem hægt er að nálgast á heimasíðu félagsins, www.eik.is.

Fjárhagsdagatal 2016

Aðalfundur12. apríl 2016
Árshlutauppgjör 1. ársfjórðungs 2015 10. maí 2016
Árshlutauppgjör 2. ársfjórðungs 2015 30. ágúst 2016
Árshlutauppgjör 3. ársfjórðungs 2015 8. nóvember 2016
Ársuppgjör 2015 28. febrúar 2017

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, í síma 590-2200 eða [email protected] Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 590-2200 eða [email protected]

Helstu niðurstöður fjórða ársfjórðungs

m.kr. 4F 2014 1F 2015 2F 2015 3F 2015 4F 2015
Rekstrartekjur 1.408 1.429 1.454 1.486 1.538
Þar af leigutekjur 1.372 1.338 1.381 1.402 1.443
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna (336) (346) (339) (331) (339)
Annar rekstrarkostnaður (73) (90) (136) (59) (94)
Þar af einskiptiskostnaður (3) (18) (70) 0 (1)
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir 999 993 979 1.096 1.105
Matsbreyting og afskriftir (163) 596 856 1.663 1.076
Hrein fjármagnsgjöld (243) (489) (1.028) (833) (233)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 593 1.099 807 1.926 1.948
Hagnaður tímabilsins 438 879 643 1.540 1.567
NOI hlutfall* 73,0% 75,6% 76,0% 78,2% 76,6%
Stjórnunarkostnaðarhlutfall af leigutekjum** 5,1% 5,4% 4,8% 4,2% 6,4%
Stjórnunarkostnaðarhlutfall af fjárfestingareignum*** 0,45% 0,46% 0,42% 0,36% 0,56%
Virðistútleiguhlutfall 91,8% 91,6% 91,6% 91,9% 93,8%
Virðistútleiguhlutfall án þróunareigna 92,6% 92,6% 93,0% 94,1% 95,2%

Kostnaðarhlutfall af fjárfestingareignum

Þróun vaxtaberandi skulda

Fjárfestingareignir