Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eik fasteignafélag Capital/Financing Update 2021

Mar 2, 2021

2193_rns_2021-03-02_07d2ee33-6498-4a6c-89a2-1235169dd470.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 5. mars 2021

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 5. mars 2021

Eik fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum föstudaginn 5. mars næstkomandi. Boðinn verður til sölu nýr skuldabréfaflokkur EIK 100327.

Skuldabréfaflokkurinn verður með lokagjalddaga þann 10. mars 2027 og greiðast vextir og afborganir tvisvar sinnum á ári, þann 10. mars og 10. september ár hvert. Afborganir fylgja 30 ára jafngreiðsluferli (annuity) fram til lokagjalddaga þegar allar eftirstöðvar höfuðstóls greiðast upp. Þá mun flokkurinn deila veðsafni með þegar útgefnum skuldabréfaflokkum félagsins, EIK 100346, EIK 161047, EIK 050726, EIK 050749 og EIK 23 1, og lánum frá fjármálastofnunum.

Heildarstærð skuldabréfaflokksins verður að hámarki 3.000 milljónir króna og munu nafnvextir hans ráðast af niðurstöðu útboðsins, sem verður með hollensku fyrirkomulagi, þ.e. að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem verður tekið. Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna þann 10. mars næstkomandi og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Íslandsbanki hefur umsjón með sölu skuldabréfanna.

Tilboðum skal skilað fyrir klukkan 16:00 á útboðsdegi, þann 5. mars 2021, til verðbréfamiðlunar Íslandsbanka á netfangið [email protected]. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Nánari upplýsingar veitir:

Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, [email protected], s: 590-2209 / 820-8980