Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eik fasteignafélag Capital/Financing Update 2021

Dec 17, 2021

2193_rns_2021-12-17_8deef770-a87b-4838-8c72-7748d6e4c559.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Eik fasteignafélag hf.: Sala á nýjum skuldabréfaflokki EIK 24 1

Eik fasteignafélag hf.: Sala á nýjum skuldabréfaflokki EIK 24 1

Eik fasteignafélag hf. hefur lokið sölu á nýjum skuldabréfaflokki, EIK 24 1, sem er óverðtryggður skuldabréfaflokkur með lokagjalddaga þann 15. september 2024. Skuldabréfaflokkurinn var seldur á 4,34% ávöxtunarkröfu. Vextir greiðast einu sinni á ári og höfuðstóll skuldabréfsins greiðist í einni greiðslu á lokagjalddaga. Þá mun flokkurinn deila veðsafni með þegar útgefnum skuldabréfaflokkum félagsins og lánum frá fjármálastofnunum.

Seld voru skuldabréf fyrir 3.000 milljónir króna.

Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna þann 28. desember næstkomandi og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Íslandsbanki hafði umsjón með viðskiptunum.

Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, á netfanginu [email protected] eða í síma 820-8980.