AI assistant
Eik fasteignafélag — Capital/Financing Update 2017
Mar 20, 2017
2193_ffr_2017-03-20_c76d8936-fdb9-4fd6-afb7-0f94bd5d3546.pdf
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Eik fasteignafélag hf. Álfheimum 74 104 Reykjavík
20. mars 2017
Staðfesting og könnun PwC á útreikningum sérstakra skilyrða skuldabréfaflokksins EIK 100346
Í tengslum við þjónustusamning PricewaterhouseCoopers ehf. ("PwC") við Eik fasteignafélag hf. ("Eik"), undirritaður 19. september 2012 í tengslum við hlutverk sitt sem eftirlitsaðili vegna skuldabréfaflokksins EIK 12 1, birtir PwC hér niðurstöður vegna skuldabréfaflokksins EIK 100346.
Eftirlitsaðili skal staðfesta og kanna sjálfstætt útreikning útgefanda (Eik) á sérstökum skilyrðum, þ.e. sjóðstreymis- og eiginfjárkvöðum og fjárhæð tryggingabréfa, eins og þau eru skilgreind í skuldabréfaflokknum. Efnahagsliðir miðast við punktstöðu á uppgjörsdegi og rekstarliðir við undangengna tólf mánuði frá uppgjörsdegi. Staðfestingin og könnunin skiptist í sérstök fjárhagsleg skilyrði og tryggingaskilyrði sbr. hér að neðan.
| Fjárhagsleg skilyrði | Skilyrði | Niðurstaða útreiknings |
Skilyrði staðist |
|
|---|---|---|---|---|
| Sjóðstreymiskvöð: | Hreinar leigutekjur deilt með reiknuðum vöxtum á tólf mánaða tímabili. |
Aldrei lægra en 1,5 |
2,52 | Já |
| Eiginfjárkvöð: | Eiginfjárhlutfall án óefnislegra eigna á prófunardegi. |
Aldrei lægra en 20% |
33% | Já |
| Tryggingaleg skilyrði |
||||
| Sjóðstreymiskvöð: | Hreinar leigutekjur veðandlagsins deilt með reiknuðum vöxtum af nettó veðskuldum (án verðbóta og gengisbreytinga) á tólf mánaða tímabili. |
Aldrei lægra en 1,65 |
2,69 | Já |
| Veðsetningarhlutfall: | Hlutfall nettó veðskulda miðað við bókfært virði veðandlagsins. |
Aldrei hærra en 75%. |
64% | Já |
PwC staðfestir hér með að skuldabréfaflokkurinn EIK 100346 stenst öll ofangreind skilyrði miðað við dagsetninguna 31.12.2016.