Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eik fasteignafélag Board/Management Information 2017

Jun 27, 2017

2193_rns_2017-06-27_662dc26c-4fd6-4ff3-936a-ae343b9d7d9d.html

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Eik fasteignafélag hf.: Nýr framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs

Eik fasteignafélag hf.: Nýr framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs

Pálína Gísladóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Eikar
fasteignafélags hf. Hún mun taka við starfinu af Arnari Hallssyni með haustinu.
Pálína er með BSc gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands
og MSc gráðu í byggingarverkfræði frá sama skóla.
Pálína hefur víðtæka reynslu þegar kemur að stýringu stórra verkefna. Hún kom
m.a. að þróun og hönnun hótels, atvinnu- og íbúðakjarnans sem nú er í byggingu
við Hörpu ásamt mörgum öðrum verkefnum. Frá árinu 2000 hefur hún starfað hjá
Mannviti verkfræðistofu eða dótturfyrirtækjum Mannvits. Pálína hefur einnig
setið í ýmsum stjórnum yfir langt skeið eins og stjórn Mannvits, HRV og Brunns.
"Það verður mikill liðsstyrkur fyrir Eik fasteignafélag að fá Pálinu til starfa
enda er hún með góða reynslu sem mun nýtast félaginu vel" segir Garðar Hannes
Friðjónsson forstjóri Eikar.
Garðar vill þakka Arnari Hallssyni, fráfarandi framkvæmdastjóra framkvæmdasviðs
Eikar, fyrir vel unnin störf undanfarin ár sem hafa verið viðburðarík hjá Eik
fasteignafélagi og óskar honum velfarnaðar á nýjum stað. Arnar hefur stofnað
ráðgjafafyrirtækið Atlas Ráðgjöf - Þróun og mannvirkjagerð ehf., sem mun sérhæfa
sig í hönnunarstjórn, framkvæmdaráðgjöf og stýriverktöku.
Þá vill Garðar jafnframt þakka þann mikla áhuga á félaginu sem fjölmargar góðar
umsóknir í starfið báru vitni um.
Nánari upplýsingar veitir:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, [email protected], s. 590-2200

[]