Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eik fasteignafélag AGM Information 2021

Jan 13, 2021

2193_rns_2021-01-13_d3f3a323-d818-4f0a-a9c4-b8cfab02d0a8.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Eik fasteignafélag hf.: Tilnefningarnefnd auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar

Eik fasteignafélag hf.: Tilnefningarnefnd auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar

Tilnefningarnefnd Eikar fasteignafélags hf. auglýsir eftir tillögum hluthafa að frambjóðendum til stjórnarkjörs sem og framboðum annarra til stjórnar félagsins vegna aðalfundar hluthafa sem stendur til að halda 25. mars 2021.

Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem tilnefningarnefnd félagsins lætur í té og unnt er að nálgast á heimasíðu félagsins https://www.eik.is/hluthafar/.

Tillögur hluthafa og framboð skulu send á netfangið [email protected] eða í lokuðu umslagi á skrifstofu félagsins, eigi síðar en 4. febrúar 2021. Nefndin mun ekki leggja mat á tillögur eða framboð sem berast eftir tímamarkið.

Rökstudd tillaga nefndarinnar skal kynnt með fundarboði aðalfundar og vera aðgengileg hluthöfum á heimasíðu félagsins a.m.k. þremur vikum fyrir aðalfund. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimildir til þess að skila inn framboðum til stjórnar minnst 7 sólarhringum fyrir aðalfund í samræmi við 3. mgr. 20. gr. samþykkta félagsins.