AI assistant
Eik fasteignafélag — AGM Information 2021
Mar 3, 2021
2193_rns_2021-03-03_3064e5d5-4363-4710-b970-51941d3e14e0.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
EIK
Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf.
Upplysingar um atkvæðagreiðslu
Þeir hluthafar sem ekki sækja aðalfund Eikar fasteignafélags hf. 25. mars 2021 geta greitt atkvæði með eftirfarandi hætti:
Umboð:
Hluthafar geta veitt öðrum aðila umboð til að mæta á aðalfundinn. Þeir sem hyggjast veita öðrum aðila umboð skulu fylla út umboðseyðublað, undirrita og votta. Umboðsmaður framvísar umboðinu fyrir upphaf aðalfundar eða sendir það rafrænt á netfangið [email protected] og fær síðan afhent fundargögn við upphaf fundarins.
Umboðseyðublað má nálgast á www.eik.is/hluthafar.
Atkvæðaseðill bréflega:
Hluthöfum er jafnframt gefinn kostur á að greiða atkvæði um mál, sem eru á dagskrá aðalfundar, bréflega, sbr. 80. gr. a. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Hluthafar skulu þá gera grein fyrir afstöðu sinni til tillagna á aðalfundinum og skulu þá atkvæðaseðlar þeirra fylltir út samkvæmt því. Atkvæðaseðill skal fylltur út greinilega (þ.m.t. skal tilgreina fjölda hluta sem hluthafi á í félaginu), vera undirritaður og vottaður af tveimur vottum.
Atkvæðaseðil má nálgast á www.eik.is/hluthafar.
Fyrrgreindan atkvæðaseðil má einnig senda félaginu með rafrænum hætti á póstfangið [email protected].
Hluthafar þurfa að fylla atkvæðaseðilinn út greinilega og í samræmi við framangreint. Atkvæðaseðill sem uppfyllir ekki skilyrðin verður metinn ógildur. Atkvæðaseðill sem sendur er bréflega eða á framangreint netfang þarf að berast í síðasta lagi einni klukkustund fyrir upphaf aðalfundarins.