AI assistant
Eik fasteignafélag — AGM Information 2021
Mar 24, 2021
2193_rns_2021-03-24_cf24e38d-122f-4a42-b0b9-c36167c3b26e.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
L
Eik fasteignafélag hf.
V.t. Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður stjórnar
Sóltún 26
105 Reykjavík
Reykjavík, 23. mars 2021
Efni: Breytingartillaga vegna 5. dagskrárliðar aðalfundar 25. mars 2021
Með vísan í kauphallartilkynningu um aðalfund Eikar fasteignafélags hf. óskar Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV) eftir því að eftirfarandi breytingartillaga verði tekin fyrir á dagskrá aðalfundar sem haldinn verður 25. mars 2021.
Breytingartillaga LV
Lagt er til að fellid verði á brott grein 3.2 í starfskjarastefnu Eikar fasteignafélags hf., en greinin er svohljóðandi:
„Stjórn getur tekið ákvörðun um að stjórnarmaður, þ.m.t. stjórnarformaður, komi að og vinni tilfallandi verkefni fyrir félagið, sem ekki falla undir venjuleg stjórnarstörf, og skal þá greitt miðað við umfang vinnunnar og markaðskjör hverju sinni.“
Greinargerð
Í „Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja“ (5. útgáfa) er m.a. tiltekið að koma skuli fram í starfskjarastefnu „hvort og þá við hvaða aðstæður og innan hvaða ramma heimilt sé að greiða stjórnendum og stjórnarmönnum til viðbótar við grunnlaun.“
Að mati LV veitir grein 3.2. í starfskjarastefnu Eikar fasteignafélags hf. ekki nægjanlega skýra umgjörð um slík tilfallandi verkefni. Í samtölum LV og Eikar fasteignafélags hf. í aðdraganda aðalfundar hefur komið fram að ekki hafi reynt á ákvæðið og ólíklegt að slík heimild yrði nýtt. Í því ljósi leggur LV til að greinin verði fjarlægð úr starfskjarastefnunni.
Virðingarfyllst,
f.h. Lífeyrissjóðs verzlunarmanna,

Arne Vagn Olsen,
forstöðumaður eignastýringar
Lífeyrissjóður verzlunarmanna [email protected] 580 4000 Kringlunni 7, 103 Reykjavík
live.is