Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eik fasteignafélag AGM Information 2021

Apr 19, 2021

2193_rns_2021-04-19_72c47982-7866-4f88-9a0d-a323aa26ef95.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Eik fasteignafélag hf.: Framboð til stjórnar 2021

Eik fasteignafélag hf.: Framboð til stjórnar 2021

Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn rafrænt 26. apríl 2021 kl. 16:00 í samræmi við fundarboð sem birt var 30. mars 2021.

Framboðsfrestur til stjórnar Eikar fasteignafélags hf. rann út 19. apríl kl. 16:00. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

- Bjarni Kristján Þorvarðarson

- Eyjólfur Árni Rafnsson

- Guðrún Bergsteinsdóttir

- Hersir Sigurgeirsson

- Kristín Friðgeirsdóttir

- Már Wolfgang Mixa

- Ragnheiður Harðar Harðardóttir

Stjórn hefur metið öll framboð til stjórnar gild, sbr. 63. gr. a. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórnin skipuð fimm mönnum. Nánari upplýsingar um frambjóðendur eru í viðhengi. Tillaga tilnefningarnefndar um stjórnarmenn fylgir einnig með.

Hlut­haf­ar sem hyggj­ast taka þátt í aðal­fund­in­um þurfa að skrá sig á heimasíðunni www.smartagm.com eigi síðar en kl. 16:00 sunnu­dag­inn 25. apríl 2021.

Viðhengi: