AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Brim Seafood

Share Issue/Capital Change May 25, 2022

2192_rns_2022-05-25_a3902417-8738-47be-a67f-4cdd61e645bb.html

Share Issue/Capital Change

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Skráning skuldabréfaflokksins BRIM 221026 GB

Skráning skuldabréfaflokksins BRIM 221026 GB

Brim hf., hefur birt lýsingu dagsetta 24. maí 2022. Lýsingin samanstendur af tveimur aðskildum skjölum, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu, og er birt í tengslum við umsókn útgefanda um að skuldabréf í flokknum Brim 221026 GB verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Skuldabréfaflokkurinn verður tekinn til viðskipta 27. maí 2022.

Skuldabréfin eru óverðtryggð til fimm ára, með lokagjalddaga þann 22. október 2026 og falla undir sjálfbæran fjármögnunarramma félagsins og eru kennd við bláan og grænan lit. Með útgáfu þeirra fjármagnar Brim verkefni sem stuðla að sjálfbærni, en félagið hefur á undanförnum árum fjárfest markvisst í slíkum verkefnum með það að markmiði að draga úr áhrifum starfsemi sinnar á umhverfið. Skuldabréfin eru þau fyrstu sinnar tegundar hérlendis sem falla undir bæði bláan og grænan fjármögnunaramma.

Íslandsbanki hf. hafði umsjón með því ferli að fá lýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og töku skuldabréfaflokksins til viðskipta.

Lýsingin er hér meðfylgjandi og má einnig finna á heimasíðu útgefanda,  https://www.brim.is/is/fjarfestar/fjarhagsupplysingar. Lýsinguna má jafnframt nálgast á skrifstofu félagsins Norðurgarði 1, 101 Reykjavík.

Nánari upplýsingar veitir Inga Jóna Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 858-1170 eða í tölvupósti [email protected]

Viðhengi:

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.