Report Publication Announcement • Aug 23, 2022
Report Publication Announcement
Open in ViewerOpens in native device viewer
Brim: Kynningarfundur fyrir uppgjör annars ársfjórðungs fimmtudaginn 25. ágúst.
Brim hf. mun birta uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2022 eftir lokun markaða fimmtudaginn 25. ágúst.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 25. ágúst klukkan 16:15 í vöruskemmu við höfuðstöðvar félagsins að Norðurgarði 1 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar.
Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynnir uppgjör fjórðungsins og svarar spurningum.
Fundinum verður jafnframt streymt og hægt verður að fylgjast með honum á www.brim.is/streymi. Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið [email protected]. Aðsendum spurningum verður svarað í lok fundar.
Nánari upplýsingar veitir Inga Jóna Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 858-1170 eða [email protected]

Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.