AI assistant
Brim Seafood — Proxy Solicitation & Information Statement 2024
Feb 28, 2024
2192_rns_2024-02-28_e9860142-ae2b-49c8-8b5b-bbf2a7a5c434.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
AR
Aðalfundur Brims hf.
- mars 2024
Aðalfundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 21. mars 2024
í matsal félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík klukkan 16:00.
Fundurinn fer fram á íslensku.
DAGSKRÁ
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina síðastliðið ár.
- Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.
- Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu.
- Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðenda.
- Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd
- Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin bréfum.
- Önnur mál, löglega upp borin.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 15:30.
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar á netfangið [email protected] með það löngum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins, 10 dögum fyrir fundinn. Pannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en kl. 16:00 mánudaginn 11. mars 2024.
Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Framboðum skal skila á skrifstofu félagsins, Norðurgarði 1 eða á netfangið [email protected]. Tilkynnt verður um framkomin framboð tveimur dögum fyrir aðalfundinn.
Aðilar sem eru eignaskráðir hluthafar í hlutaskrá skv. hluthafakerfi félagsins þegar aðalfundur fer fram geta beitt réttindum sínum á aðalfundi. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja fundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð, en form að umboði er aðgengilegt á vefsíðu félagsins. Tekið skal fram að umboð getur aldrei gilt lengur en í eitt ár frá dagsetningu þess.
Hluthöfum stendur jafnframt til boða að kjósa um dagskrármál með skriflegum hætti eða veita umboð. Á vefsíðu félagsins má finna viðeigandi eyðublöð.
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.
Heildarhlutafé félagsins nemur kr. 1.955.979.606 og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut. Eigin bréf félagsins eru nú kr. 30.532.917 og virkt hlutafé félagsins því 1.925.446.689.
Dagskrá og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins og tillögur eru hluthöfum tiltæk á íslensku, á heimasíðu félagsins og á skrifstofu þess á venjulegum skrifstofutíma. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn.
Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn má finna á vefsíðu félagsins https://www.brim.is/is/fjarfestar/adalfundur/
Reykjavík 28. febrúar 2024
Stjórn Brims hf.