AI assistant
Brim Seafood — Proxy Solicitation & Information Statement 2022
Mar 23, 2022
2192_rns_2022-03-23_b96985ee-50b2-486d-a3cb-5bd27d3ba541.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
U
Stjórn Brims hf.
V.t. Kristján Þ. Davíðsson, formaður stjórnar
Norðurgarður 1
101 Reykjavík
Reykjavík, 22. mars 2022
Efni: Breytingartillaga vegna hluthafafundar 24. mars 2022
Með vísan í kauphallartilkynningu um aðalfund Brims hf. dags. 2. mars 2022 óskar Lífeyrissjóður verzlunarmanna („LV“), sem hluthafi, eftir því að eftirfarandi breytingartillaga verði tekin fyrir á dagskrá aðalfundar sem haldinn verður þann 24. mars 2022. Tillaga LV er breytingartillaga við dagskrárlið 8 um heimild félagsins til kaupa á eigin bréfum.
LV gerir það að tillögu sinni að eftirfarandi undirstrikaður texti bætist við núverandi tillögu stjórnar Brims hf.:
„Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Heimild þessi skal aðeins nýtt í þeim tilgangi að koma á formlegri endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin bréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.“
Greinargerð með breytingartillögu
Er hér gerð breytingartillaga sem skýrir betur og afmarkar umboð stjórnar til endurkaupa á eigin hlutum félagsins og tryggir um leið eðlilegt jafnræði meðal hluthafa þess. Markmið með ákvæðinu er að setja fram með gagnsæjum hætti hvernig félagið skuli heimilt að ráðstafa fjármunum til hluthafa og er í samræmi við almenna venju á innlendum hlutabréfamarkaði. Sambærilegt ákvæði var samþykkt á aðalfundum Brims hf. á árunum 2016, 2017 og 2019.
Reykjavík, 22. mars 2022
F.h. Lífeyrissjóðs verzlunarmanna

Arne Vagn Olsen
Forstöðumaður eignastýringar
Lífeyrissjóður verzlunarmanna [email protected] 580 4000 Kringlunni 7, 103 Reykjavík
live.is