AI assistant
Brim Seafood — Proxy Solicitation & Information Statement 2020
Mar 29, 2020
2192_rns_2020-03-29_6711a100-f910-4d35-a5d9-df03bfc8d87e.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Sex einstaklingar eru í framboði til stjórnar Brims á aðalfundi félagsins 31. mars 2020.
Anna G. Sverrisdóttir kt. 290750-6879
Menntun
Stundaði diplómanám við Ökonomisk Faghögskole í Þrándheimi, með áherslu á endurskoðun og mannaðsmál (er nú hluti af Norges teknisk-naturvitenskapelige universitet í Þrándheimi-NTNU) og var áður í Verslunarskóla Íslands.
Fyrst kjörin í stjórn Brims hf.
- apríl 2016
Starfsreynsla
Sjálfstætt starfandi ráðgjafi, AGMOS ehf., sinnir afmörkuðum verkefnum fyrir Samtök ferðabjónustunnar SAF. Reynsla úr atvinnulífinu er margvísleg og hefur einkum unnið við fjármál og framkvæmdastjórn m.a. hjá eftirfarandi fyrirtækjum: Bláa Lóninu, Laugarvatn Fontana, Viðskiptablaðinu, Vöku-Helgafelli, Íslenska Útvarpsfélaginu (Stöð 2), Arnarflugi auk þess að hafa starfað hjá Endurskoðunarskrifstofu Björns og Ara (er nú hluti af Deloitte), Útgerðarfélaginu Hilmi sf. og Landsbankanum.
Önnur stjórnarstörf
Á sæti í stjórnum: Bláa Lónsins hf, Hreyfingar ehf, AGMOS ehf. Fyrri stjórnarseta m.a. í eftirfarandi félögum og stofnunum: Into the Glacier ehf, Lífeyrissjóði verzlunarmanna, Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða, Útflutningsráði, Ferðamálaráði, Samtökum ferðabjónustunnar, Arnarflugi hf. Hefur auk þess verið mjög virk í nokkrum frjálsum félagasamtökum. Hefur einnig sinnt margvíslegum nefndarstörfum s.s. fyrir atvinnuvega-, utanríkis-, samgöngu- og umhverfisráðuneyti.
Eignarhlutur í Brimi hf.
Kr. 0 (0,00%)
Hagsmunatengsl
Engin hagsmunatengsl hvorki við helstu viðskiptaaðila né samkeppnisaðila félagsins eða hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu.
Eggert Benedikt Guðmundsson kt. 301163-3399
Menntun
Rafmagnsverkfræðingur (Dipl.-Ing.) frá Tækniháskólanum í Karlsruhe, MBA frá IESE viðskiptaháskólanum í Barcelona.
Fyrst kjörinn í stjórn Brims hf.
- maí 2018
Starfsreynsla
Starfar sem forstöðumaður Grænvangs.
Fyrri störf: Forstjóri eTactica ehf, forstjóri N1 hf., forstjóri HB Granda hf., forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Philips Electronics, verkfræðingur hjá Íslenska járnblendifélaginu hf.
Önnur stjórnarstörf
Stjórnarformaður Hótels Holts Hausta ehf. Formaður Leikfélags Reykjavíkur.
Eignarhlutur í Brimi hf.
Kr. 0 (0,00%)
Hagsmunatengsl
Engin hagsmunatengsl hvorki við helstu viðskiptaaðila né samkeppnisaðila félagsins eða hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu.
Guðmundur Kristjánsson, kt. 220860-4429
Menntun
Viðskipta og Markaðsfræði frá Salem State College, Salem Massachusetts, USA. Útgerðartæknir frá Tækniskóla Íslands 1983
Fyrst kjörinn í stjórn Brims hf.
- maí 2018
Starfsreynsla
Starfar sem forstjóri Brims hf.
Fyrri störf: Framkvæmdastjóri Útgerðarfélagsins Tjaldur ehf., framkvæmdastjóri Kristján Guðmundsson hf. Rifi.
Önnur stjórnarstörf
Stjórnarmaður/Stjórnarformaður: Fiskitangi ehf, Ögurvík ehf, Icelandic Japan, Artic Prime Fisheries Grænlandi og fleiri félaga.
Eignarhlutur í Brimi hf.
Kr. 19.797 (0,001%)
Hagsmunatengsl
Eigandi að Fiskitanga ehf. sem á 1.625.000 hluti í Brimi hf. Eigandi í Útgerðarfélagi Reykjavíkur sem á ásamt dótturfélagi 873.226.180 hluti í Brimi hf.
Kristján Þ. Davíðsson, kt. 161160-2889
Menntun
Sjávarútvegsfræðingur (M.Sc.) frá Sjávarútvegsháskóla Noregs/Háskólanum í Tromsö, Noregi og skipstjórnarpróf 1. stigs frá Stýrimannaskóla Íslands. Próf Fjármálaeftirlitsins fyrir stjórnarmenn fjármálafyrirtækja. Fjöldi námskeiða hér- og erlendis á ýmsum sviðum fjármála, stjórnunar, sölumála, samskipta o.fl.
Fyrst kjörinn í stjórn Brims hf.
- mars 2019
Starfsreynsla
Rúmlega 30 ára starfsreynsla í sjávarútvegi og fjármálum á Íslandi og erlendis af sölumálum, stjórnun, fjármálum, fyrirtækjarekstri, ráðgjöf, fjárfestingum og stjórnarstöfum fyrirtækja í sjávarútvegi (útgerð, vinnslu og sölu/útflutningi), fiskeldi, fjármálum og tækni.
2000 - 2001, 2009 - 2017 & 2019 til dagsins í dag: Víðskiptaþróun ehf. Eigandi og stjórnandi.
2010 – dagsins í dag. Framkvæmdastjóri Isder hf. fjárfestingafélags.
2017 – 2018: Landssamband fiskeldisstöðva, framkvæmdastjóri frá apríl 2017 til desember 2018.
2008 - 2009: Skilanefnd Glitnis. Framkvæmdastjóri.
2005 Iceland Seafood International hf. Framkvæmdastóri.
2001 - 2003 & 2005 - 2008: Íslandsbanki hf./Glitnir Bank. Forstöðumaður í sjávarútvegsteymi á fyrirtækjasviði bankans og síðar á alþjóðasviði. Frá 2006 – 2007 framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs.
2003 - 2005: Grandi hf/HB Grandi hf. Forstjóri / Aðstoðarforstjóri.
1994 - 2000: Marel hf. Sölustjóri.
1990 - 1994: SIF HF, (nú Iceland Seafood International hf.) Sölustjóri.
1987 - 1990: Kapro Nor AS, Noregi. Framkvæmdastjóri útflutnings.
Fyrir 1987: FTFI rannsóknarstofnun fiskidnaðar í Tromsö, Noregi. Aðstoðarmaður við rannsóknir. Stundaði áður sjósókn í nokkur ár sem háseti, netamaður og stýrimaður. Þar á undan starfað við fiskvinnslu með námi.
Önnur stjórnarstörf
SOS Barnaþorpín: Stjórnarmaður frá 2007 og formaður stjórnar frá 2015 til dagsins í dag. Valka ehf: Stjórnarmaður frá 2009 og formaður frá 2011 til dagsins í dag. Olivita AS, Noregi: Stjórnarmaður frá 2013. Margildi hf: Varamaður í stjórn frá 2016. Polar Trawl Doors hf: Stjórnarmaður frá 2015. Vaki hf. (nú hluti af Pentair): Stjórnarmaður frá 2010-2016. Landsbankinn hf: Bankaráðsmaður frá 2011-2015, formaður áhættunefndar og sat í endurskoðunarnefnd bankans. Corporación Pesquera Inca, Perú: Formaður stjórnar frá 2009 til 2011 og varaformaður frá 2011 til 2013. Formaður áhættunefndar og meðlimur í fjármála- og stefnumótunarnefnd. Salar Islandica hf. Formaður stjórnar frá 2003 til 2005. Fiskey hf: Stjórnarmaður frá 2003 til 2005. Deris SA/Salmones Friosur SA, Síle. Stjórnarmaður frá 2003 til 2005.
Eignarhlutur í Brimi hf.
Kr. 0. Framkvæmdastjóri Isder sem á 1.500.000 hluti (0,077%)
Hagsmunatengsl
Engin hagsmunatengsl hvorki við helstu viðskiptaaðila né samkeppnisaðila félagsins eða hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu.
Kristrún Heimisdóttir kt. 280871-4199
Menntun
Lögfræðingur, cand.jur. frá Háskóla Íslands. Laga- og heimspekinám í KU Leuven Belgíu og í UCC Cork á Írlandi. Doktorsnám í Bandaríkjunum.
Fyrst kjörin í stjórn Brims hf.
- júli 2018
Starfsreynsla
Sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Rannsóknarfélagi við Columbia University Law School í New York frá 2015. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins 2013-2014. Lektor við Háskólann á Akureyri frá 2012 og nú gestalektor þar. Aðstoðarmaður efnahags- og viðskiptaráðherra 2010-2012. Lögfræðilegur ráðgjafi velferðarráðherra 2009-2010. Aðstoðarmaður utanríkisráðherra 2007-2009. LEX lögmannsstofa 2006-2007. Lögfræðingur Samtaka iðnaðarins 2002-2006. Valnefnd sigurtillögu vegna samkeppni um byggingu tónlistarhúss í Reykjavík 2005-2006. Kenndi við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst. Framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar. Lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis. Íþróttafréttakona o.fl. hjá RÚV. Einn höfundar skýrslu starfshóps um EES samstarfið 2019. Starfaði með Thorvald Stoltenberg fyrir hönd Íslands í nefnd um varnarsamstarf Norðurlanda 2008. Í stjórnarskrárnefnd 2005-2007.
Önnur stjórnarstörf
Í Háskólaráði Háskóla Íslands. Í stjórn "Leifur Eiríksson Foundation". Varamaður í stjórn Bankasýslu ríkisins. Í síðanefnd Knattspyrnusambands Íslands. Varamaður í stjórn Samtaka sparífjáreigenda.
Dæmi um fyrri stjórnarstörf: Stjórnarformaður Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, stjórnarformaður Félagsþjónustu kirkjunnar, stjórnarformaður Hlaðvarpans ehf. Ritari stjórnar Íþrótta- og Ólympíusambandsins. Formaður Afrekssjóðs. Í stjórn Háskólans í Reykjavík.
Samstarfsvettvangur sjávarútvegs og iðnaðar.
Eignarhlutur í Brimi hf.
Kr. 0 (0,00%)
Hagsmunatengsl
Engin hagsmunatengsl hvorki við helstu viðskiptaaðila né samkeppnisaðila félagsins eða hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu.
Magnús Gústafsson, kt. 130941-2149
Menntun
Rekstrartæknifræðingur frá Odense Teknikum, Hagræðingarnám.
Fyrst kjörinn í stjórn Brims hf.
- maí 2018
Starfsreynsla
Forstjóri Atlantika INC, í Bandaríkjunum, 2009 – 2018, Aðalræðismaður Íslands í New York 2005 – 2008, forstjóri Icelandic Inc – Coldwater Seafood 1984 – 2005, forstjóri Hampiðjunnar hf. 1972 – 1984 og hagræðingarráðunautur hjá Vinnuveitendasambandi Íslands 1966 - 1972.
Önnur stjórnarstörf
Sat í stjórn í Útgerðarfélags Reykjavíkur hf.
Sat í stjórn Promens.
Eignarhlutur í Brimi hf.
Kr. 81.689 (0,004%)
Hagsmunatengsl
Engin hagsmunatengsl hvorki við helstu viðskiptaaðila né samkeppnisaðila félagsins eða hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu.