AI assistant
Brim Seafood — Interim / Quarterly Report 2023
Aug 24, 2023
2192_rns_2023-08-24_1e76cd99-9755-45ba-83b7-5111df25a06c.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Uppgjör Brims hf. á öðrum ársfjórðungi 2023
BRIM
Fréttatilkynning
Starfsemin á 2F 2023
Að lokinni loðnuvertíð snéru uppsjávarskip félagsins sér að kolmunnaveiðum og lönduðu 30.000 tonnum af kolmunna á öðrum ársfjórðungi. Kolmunninn var unninn í fiskimjölsverksmiðjum félagsins á Akranesi og Vopnafirði. Auk afla af eigin skipum Brims tók verksmiðjan á Vopnafirði á móti tæpum 7.500 tonnum af færeyskum skipum þannig að móttekið magn í fiskimjölsverksmiðjum félagsins var sambærilegt og á öðrum ársfjórðungi árið áður. Veiði á kolmunna var með besta móti og verð á fiskimjöli hátt. Í lok annars ársfjórðungs héldu uppsjávarskipin til makrílveiða og komu fyrstu makrílfarmarnir á land í lok júní.
Bolfiskveiðar og -vinnsla gengu vel að undanskildum veiðum á ufsa sem héldu áfram að valda vonbrigðum á öðrum ársfjórðungi eins og á þeim fyrsta. Afli bolfiskskipa félagsins var um 10.300 tonn á öðrum ársfjórðungi en var um 13.300 tonn árið áður. Afurðaverð á ferskum landunnum bolfiskafurðum var hátt en á móti gaf afurðaverð á sjófrystum þorsk- og ýsuafurðum verulega eftir frá því sem var á sama tímabili í fyrra.
Í apríl var endanlega gengið frá viðskiptum vegna kaupa Brims á 50% hlut í Polar Seafood Denmark A/S eftir að allir fyrirvarar voru uppfylltir. Samið var um kaup á frystitogaranum Tuukkaq frá Grænlandi í júní og fékk skipið nafnið Þerney.
Lokið var við endurfjármögnun félagsins í júní með 220 milljóna evra sjálfbærniten gdu sambankaláni. Auk þess hefur félagið tryggt sér lánalínur að fjárhæð 35 milljónir evra.
Helstu atriði úr fjárhagsuppgjóri 2F 2023
- Vörusala var 109 m€ á fjórðungnum samanborið við 148 m€ á öðrum fjórðungi 2022
- Hagnaður var 10 m€ á fjórðungnum samanborið við 22 m€ á öðrum fjórðungi 2022
- EBITDA var 16 m€ og EBITDA hlutfall 14,9%
- Eignir hafa hækkað um 12 m€ frá áramótum og voru 955 m€ í lok tímabilsins
- Eigið fé þann 30. júní 2023 var 442 m€ og eignfjárhlutfall 46,2%
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri:
„Afkoman af rekstri Brims það sem af er þessu ári er viðunandi. Aðstæður eru engu að síður krefjandi og ýmis teikn á lofti um að herða þurfi róðurinn.
Þegar horft er um öxl sést að hagnaður á öðrum fjórðungi er sá þriðji mesti í a.m.k. áratug. Aðeins í fyrra og hitteðfyrra var hann meiri. Þá sjáum við einnig að hagnaður á fyrri helmingi árs hefur aðeins einu sinni verið meiri en það var í fyrra þegar uppsjávarafurðir voru seldar í óvenjumiklu magni.
Til næstu missera litið eru hins vegar blikur á lofti. Framlegðin af starfseminni fer minnkandi. Veiðar og vinnsla uppsjávartegunda hefur verið nokkuð stöðug en niðurskurður aflaheimilda í bolfiski er farinn að bíta – aflinn er minni, það dregur úr hagkvæmni sem skilar sér í minni framlegð.
Uppgjör Brims hf. á öðrum ársfjórðungi 2023
BRIM
Fréttatilkynning
Aðstæður á alþjóðamörkuðum voru áfram erfiðar á fyrri hluta ársins. Lægra verð á sjófrystum þorski og ýsu hefur haft neikvæð áhrif og einnig hefur verð á loðnuhrognum lækkað verulega frá síðasta ári. Mikilvægt er að hafa í huga að á öðrum ársfjórðungi í fyrra voru miklar sölutekjur af loðnuhrognum sem ekki varð í ár og því situr félagið á umtalsverðum birgðum.
Þá er rétt að benda á að efnahagsaðstæður bæði hér heima og ytra, þar sem verðbólga er mikil og vextir háir, þyngdu einnig róðurinn sem sést á að fjármagnskostnaður á fyrri hluta ársins var rúmlega tvöfalt meiri en á sama tíma í fyrra.
Á fyrri hluta ársins hélt fyrirtækið áfram að styrkja stoðir starfseminnar með fjárfestingum í traustum innviðum. Bæði var keyptur frystitogari sem hlotið hefur nafnið Þerney og þá var gengið endanlega frá kaupum Brims á 50% hlut í danska vinnslu- og sölufélaginu Polar Seafood Denmark. Brim hefur á síðustu árum lagt áherslu á að treysta alla hlekkina í virðiskeðju félagsins. Með fjárfestingunni í Polar Seafood hefur Brim styrkt markaðsstöðu sína umtalsvert og aukið möguleika félagsins á að finna afurðum sínum leið á verðmæta markaði.
Ljóst er að framundan eru tímar sem kalla á aðgát og aukið aðhald. Brim er öflugt félag sem stendur fjárhagslega sterkt og þolir ágjöf. Starfsfólk hefur marga fjöruna sopið og getur tekist á við breytingar og erfiðleika eins og vel hefur komið í ljós á síðustu árum. Við erum því full bjartsýni þó svo við búum okkur undir að syrt geti í álinn.
Uppgjör Brims hf. á öðrum ársfjörðungi 2023
BRIM
Fréttatilkynning
Rekstur
LYKILTÖLUR REKSTRAR
| EUR '000 | 2F 2023 | 2F 2022 | 1H 2023 | 1H 2022 |
|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur | 108.831 | 148.335 | 222.206 | 242.288 |
| Kostnaðarverð seldra vara | (90.591) | (113.451) | (173.550) | (165.804) |
| Vergur hagnaður | 18.240 | 34.884 | 48.656 | 76.484 |
| Aðrar tekjur | 295 | 0 | 295 | 0 |
| Útflutningskostnaður | (2.925) | (3.400) | (5.438) | (6.189) |
| Annar rekstrarkostnaður | (3.429) | (3.699) | (6.496) | (10.486) |
| Rekstrarhagnaður | 12.181 | 27.785 | 37.017 | 59.809 |
| Fjáreignatekjur | 1.244 | 792 | 2.421 | 1.661 |
| Fjármagnsgjöld | (4.709) | (1.925) | (8.439) | (3.726) |
| Gengismunur | 775 | 838 | (4) | 976 |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 2.578 | 739 | 4.600 | 1.834 |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 12.069 | 28.229 | 35.595 | 60.554 |
| Tekjuskattur | (1.656) | (5.768) | (6.320) | (11.696) |
| Hagnaður tímabilsins | 10.413 | 22.461 | 29.275 | 48.858 |
| EBITDA | 16.203 | 31.864 | 45.302 | 68.087 |
| EBITDA% | 14,9% | 21,5% | 20,4% | 28,1% |
Seldar vörur námu á 1H 2023 222 m€ samanborið við 242 m€ árið áður. Lækkun vörusölu má rekja til litillar sölu loðnuhrogna og minni sölu mjöls og lýsis en í upphafi árs 2022 var til mikið af birgðum í mjöli og lýsi eftir veiði á loðnu í des 2021 auk minni botnfiskafla.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 45,3 m€ eða 20,4% af rekstrartekjum, en var 68,1 m€ eða 28,1% árið áður.
Fjármagnsgjöld umfram fjáreignatekjur námu 6,0 m€ á fyrri árshelmingi 2023 en voru 2,1 m€ á sama tímabili í fyrra.
Hagnaður fyrir tekjuskatt á fyrri árshelmingi nam 35,6 m€, samanborið við 60,6 m€ á fyrri árshelmingi 2022. Tekjuskattur fyrir sama tímabil nam 6,3 m€, en var 11,7 m€ árið áður. Hagnaður tímabilsins varð því 29,3 m€ en var 48,9 m€ árið áður.
Uppgjör Brims hf. á öðrum ársfjörðungi 2023
BRIM
Fréttatilkynning
| EUR '000 | 30.06.2023 | 31.12.2022 |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 799.082 | 664.340 |
| Veltufjármunir | 156.001 | 278.547 |
| Eignir samtals | 955.083 | 942.887 |
| Eigið fé | 441.656 | 452.275 |
| Langtímaskuldir | 422.518 | 214.498 |
| Skammttímaskuldir | 90.909 | 276.114 |
| Eigið fé og skuldir | 955.083 | 942.887 |
Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 955 m€ í lok 2F 2023. Þar af voru fastafjármunir 799 m€ og veltufjármunir 156 m€. Hækkun á fastafjármunum skýrist af kaupungin Brims á 50% hlut í Polar Seafood Denmark A/S og kaupungin á frystitogaranum Tuukkaq. Fjárhagsstaða félagsins er áfram sterk og nam eigið fé 442 m€ og var eiginfjárhlutfall 46,2%, en var 48,0% í lok árs 2022. Heildarskuldir félagsins voru 513 m€ í lok fjörðungsins og hækkuðu um 23 m€ frá áramótum.
Lokið var við endurfjármögnun móður-félagsins í júní með 220 milljón evra sambankaláni.
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri nam 16 m€ á fyrri helmingi ársins, en var 41 m€ á fyrri helmingi ársins 2022. Fjárfestingarhreyfingar voru neikvæðar um 121 m€ og fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um tæpar 34 m€. Handbært fé lækkaði því um 139 m€ og var tæpar 23 m€ í lok tímabilsins.
| EUR '000 | 2023 | 2022 |
|---|---|---|
| 1.1.-30.6. | 1.1.-30.6. | |
| Handbært fé fá rekstri | 16.017 | 41.305 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (121.465) | 51.000 |
| Fjármögnunarhreyfingar | (33.918) | (26.260) |
| Hækkun á handbæru fé | (139.366) | 66.045 |
| Handbært fé í byrjun árs | 161.975 | 76.889 |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 22.609 | 142.934 |
Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna
Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrra árshelmings árins 2023 (1 evra = 151,12 ísk) voru tekjur 33,6 ma. króna, EBITDA 6,8 ma. og hagnaður 4,4 ma. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 30. júní 2023 (1 evra = 148,7 ísk) voru eignir samtals 142 milljarðar króna, skuldir 76,3 milljarðar og eigið fé 65,7 milljarðar.
Hluthafar
Lokaverð hlutabréfa 30. júní 2023 var 81,0 kr. á hlut og var markaðsvirði félagsins þá 156 milljarðar króna. Fjöldi hluthafa var 1.912.
Uppgjör Brims hf. á öðrum ársfjórðungi 2023
BRIM
Fréttatilkynning
Sambykkt árshlutareiknings
Árshlutareikningurinn var sambykktur á stjórnarfundi Brims hf. 24. ágúst 2023. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards).
Kynningarfundur þann 24. ágúst 2023
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 24. ágúst klukkan 16:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1. Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynnir uppgjör fjórðungsins og svarar spurningum. Fundinum verður jafnframt streymt og hægt verður að fylgjast með honum á www.brim.is/streymi. Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið [email protected]. Aðsendum spurningum verður svarað í lok fundar.
Brim hf.
Brim er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem starfar í sátt við samfélagið og umhverfið. Við stuðlum að verðmætasköpun í sjávarútvegi með vöruþróun, tæknilausnum og öflugu starfsfólki. Við tryggjum með ábyrgum veiðum og vinnslu, þar sem áhersla er á sjálfbærni og nýsköpun, að sjávarútvegur verði áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Við leitum allra leiða til að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið hvort sem er á sjó eða í landi.
Fjárhagsdagatal
| Þriðji ársfjórðungur | 16. nóvember 2023 |
|---|---|
| Fjórði ársfjórðungur | 22. febrúar 2024 |
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kristjánsson forstjóri, sími 550-1000.