Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Brim Seafood Interim / Quarterly Report 2021

May 20, 2021

2192_rns_2021-05-20_0ddec95a-6568-48a7-afa0-7e92419c2cb2.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Brim hf. uppgjör 1F 2021

BRIM

Fréttatilkynning

Starfsemin á 1F 2021

  • Loōnuvertiō var gjöful og mikil verōmæti búin til úr litlu aflamarki þar sem þekking starfsfólks og fjárfestingar undanfarinna ára nýttust vel
  • Staða á botnfiskmörkuðum var erfið vegna heimsfaraldurs en markaðir eru að taka við sér
  • Endurskipulagning á rekstri botnfiskssviðs í gangi með tilliti til fjárfestinga í landsvinnslu í Norðurgarði
  • Hafin vinna við að skoða nýja hátækni uppsjávarvinnslu á Vopnafirði
  • Sameiginleg árs- og samfélagsskýrsla gefin út í fyrsta skipti en í fjórða sinn sem Brim birtir samfélagsskýrslu

Helstu niðurstöður úr fjárhagsuppgjóri 1F 2021

  • Hagnaður tímabilsins var 10,9 m€
  • Sambærileg sala milli ára, var 71,3 m€ á fjórðungnum samanborið við 72,8 m€ á fyrsta fjórðungi 2020
  • EBITDA er 19,2 m€ og EBITDA% 26,9%
  • Eignir hækkuðu um 16,6 m€ frá áramótum og voru 782 m€
  • Sterk eiginfjárstaða þar sem eiginfjárhlutfall var 43% í lok tímabilsins

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri:

„Afkoman á fyrsta fjórðungi ársins var góð. Rekstur Brims var stöðugur en miklu skipti að loðnuveiðin gekk vel eftir tveggja ára veiðibann. Loðnuvertiðin var gjöful og mikil verðmæti búin til úr litlum afla þar sem þekking starfsfólks og fjárfestingar undanfarinna ára nýttust vel í þessari verðmætasköpun.

Heimsfaraldurinn hafði áhrif á verð á mörkuðum á botnfiski. Afurðaverð á þorski og ýsu hélt sér en vegna minni eftirspurnar á karfa og ufsa lækkaði verð á þeim tegundum. Nú þegar áhrifin af heimsfaraldrinum minnka vonumst við til að markaðir fyrir sjávarafurðir nái aftur fyrra jafnvægi. Ísland er með jákvæða ímynd í umhverfismálum í sjávarútvegi sem styður við stöðu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja á erlendum mörkuðum.

Brim er öflugt félag sem hefur í áratugi fjárfest í aflaheimildum, nýrri tækni bæði til sjós og lands og þekkingu starfsfólks. Jafnframt hafa hluthafar skilið eftir hagnað í félaginu sem gerir það að verkum að eigið fé félagsins er sterkt og nýtist það vel þegar að rekstraraðstæður versna eins og gerðist í heimsfaraldri vegna Covid-19.“


Brim hf. uppgjör 1F 2021

BRIM

Fréttatilkynning

Rekstur

EUR '000 1F 2021 1F 2020
Seldar vörur 71.337 72.750
Kostnadarverð seldra vara (52.230) (63.048)
Þar af veiðigjald 1.253 625
Þar af afskriftir 4.135 3.366
Vergur hagnaður 19.107 9.702
Útflutningskostnaður (1.448) (2.255)
Annar rekstrarkostnaður (2.633) (3.104)
Rekstrarhagnaður 15.026 4.343
Fjáreignatekjur 983 181
Fjármagnsgjöld (1.839) (1.524)
Gengismunur (305) (1.802)
Áhrif hlutdeildarfélaga 413 (346)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 14.278 852
Tekjuskattur (3.362) (371)
Hagnaður tímabilsins 10.916 429
EBITDA 19.161 7.709

Seldar vörur námu á 1F 2021 71,3 m€ samanborið við 72,8 m€ á sama tíma árið áður. Aukning var í sölu hjá sölufélögum í Asíu sem nam 21%.

Rekstrarhagnaður eykst um 10,7 m€ milli tímabila sem skýrist fyrst og fremst af loðnuvertið þar sem allur afli fór til manneldis.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 19,2 m€ eða 26,9% af rekstrartekjum, en var 7,7 m€ eða 10,6% á fyrsta fjörðungi 2020.

Nettó fjármagnskostnaður lækkar um 0,5 m€ og eins lækkar neikvæður gengismunur um 1,5 m€ milli tímabila.

Hagnaður fyrir tekjuskatt var 14,3 m€, samanborið við hagnað að fjárhæð 0,9 m€ á fyrsta fjörðungi 2020. Tekjuskattur var 3,4 m€ og hagnaður fyrsta ársfjörðungs 2021 því 10,9 m€ samanborið við 0,4 m€ hagnað fyrsta fjörðung ársins 2020.

Efnahagur

EUR '000 31.03.2021 31.12.2020 31.03.2020
Fastafjármunir 645.630 647.862 553.932
Veltufjármunir 135.912 117.126 150.316
Eignir samtals 781.542 764.988 704.248
Eigið fé 334.234 337.470 306.405
Langtímaskuldir 321.574 325.852 317.108
Skammtímaskuldir 125.734 101.666 80.735
Eigið fé og skuldir 781.542 764.988 704.248

Heildareignir félagsins námu 782 m€ í lok 1F 2021. Þar af voru fastafjármunir 646 m€ og veltufjármunir 136 m€.

Breyting í veltufjármum frá lokum árs 2020 er skýrð með aukningu á birgðum upp á 13,2 m€.

Fjárhagsstaða félagsins er sterk og nam eigið fé 334 m€ og var eiginfjárhlutfall 43% í lok fjörðungsins samanborið við 44% í lok árs 2020. Heildarskuldir félagsins voru 447 m€ í lok fjörðungsins og lækkuðu nettó vaxtaberandi skuldir um 14 m€ úr 299 m€ í 285 m€. Þegar leiðrétt er fyrir lánum til APF og Grábrókar eru nettó vaxtaberandi skuldir 193 m€.


Brim hf. uppgjör 1F 2021

BRIM

Fréttatilkynning

Sjóostreymi

EUR '000 2021 2020
1.1-31.3 1.1-31.3
Handbært fé fá rekstri 14.978 21.277
Fjárfestingarhreyfingar (481) (7.150)
Fjármögnunarhreyfingar (7.024) (4.489)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé 7.473 9.638
Handbært fé í upphafi tímabils 21.596 53.497
Handbært fé í lok tímabilsins 29.069 63.135

Handbært fé frá rekstri nam 15 m€ á fyrsta fjórðungi ársins, en var 21,3 m€ á fyrsta fjórðungi 2020. Fjárfestingarhreyfingar voru óverulegar á fjórðungnum og sama má segja um fjármögnunarhreyfingar þar sem breyting milli tímabila skýrist af hækkun skammtimaláns um 2,3 m€.

Hækkun á handbæru fé á

fjórðungnum var 7,5 m€ og stóð í 29 m€ í lok fjórðungsins.

Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrsta fjórðungs ársins 2021 (1 evra = 154,3) verða tekjur 11 milljarðar króna, EBITDA 3 milljarðar og hagnaður 1,7 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 31. mars 2021 (1 evra = 148,1) verða eignir samtals 115,7 milljarðar króna, skuldir 66,2 milljarðar og eigið fé 49,5 milljarðar.

Hluthafar

Lokaverð hlutabréfa 31. mars 2021 var 50,4 kr. á hlut og var markaðsvirði félagsins þá 96,8 milljarðar króna. Fjöldi hluthafa var 992.

Samþykkt árshlutareiknings

Árshlutareikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi Brims hf. 20. maí 2021. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards).

Kynningarfundur þann 20. maí 2021

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 20. maí næstkomandi og hefst kl. 16:45, þar mun Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynna uppgjör fjórðungsins.

Fundurinn verður eingöngu rafrænn og hægt verður að fylgjast með fundinum á www.brim.is/streymi. Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið fjá[email protected]. Spurningum verður svarað í lok fundar.

Brim hf.

Brim er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem starfar í sátt við samfélagið og umhverfið. Við stuðlum að verðmætasköpun í sjávarútvegi með vöruþróun, tæknilausnum og öflugu starfsfólki. Við tryggjum með ábyrgum veiðum og vinnslu, þar sem áhersla er á sjálfðærni og nýsköpun, að sjávarútvegur verði áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Við leitum allra leiða til að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið hvort sem er á sjó eða í landi.


Brim hf. uppgjör 1F 2021

BRIM

Fréttatilkynning

Fjárhagsdagatal

Annar årsfjöröungur 26. ágúst 2021
Priðji årsfjöröungur 18. nóvember 2021
Fjórði årsfjöröungur 24. febrúar 2022

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri samfélagsábyrgðar, nýsköpunar og fjárfestatengsla í síma 781-8282 eða [email protected]