AI assistant
Brim Seafood — Interim / Quarterly Report 2021
Aug 26, 2021
2192_rns_2021-08-26_98c0d111-906b-4256-8753-6bb0bb2e511c.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Brim hf. uppgjör 2F 2021
BRIM
Fréttatilkynning
Stöðugur rekstur á fyrri hluta árs
- Tekjur Brims á öðrum ársfjörðungi voru 128,7 milljónir evra í samanburði við 60,3 milljónir evra á sama tíma 2020. EBITDA fjörðungsins jókst úr 9,4 milljónum evra árið 2020 í 20,6 milljónir evra á þessu ári.
- Meginskýringar á auknum tekjum og bættri afkomu eru góð loðnuvertíð, auknar veiðar ísfiskstogara og vinnsla á botnfiski í endurnýjaðri fiskvinnslu félagsins við Norðugarð í Reykjavík og aukin sala dótturfélags í Japan á loðnuafurðum.
- Tekjur á fyrri hluta ársins námu ríflega 200 milljónum evra í samanburði við 133 milljónir evra í fyrra. EBITDA framlegð fyrstu sex mánaða ársins var 39,7 milljónir evra samanborið við 17,1 milljónir evra á fyrri hluta ársins 2020.
- Efnahagur félagsins er traustur. Eignir eru um 762 milljónir evra og eigið fé 346,3 milljónir evra.
- Brim birtir nú fyrst fyrirtækja í sjávarútvegi umhverfisuppgjör fyrir fyrri árshelming og kemur þar fram að bein losun félagsins nemur 33 þúsund CO₂ ígildistonnum á fyrri hluta ársins í samanburði við rúm 68 þúsund allt árið í fyrra og að hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa er 20,4% af orkunotkun á fyrstu sex mánuðum ársins en var 21% í fyrra.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri:
„Ég er ánægður með uppgjórið og afkomuna á fyrri hluta ársins. Rekstur félagsins er stöðugur þrátt fyrir óróa á heimsöruðum. Engu að síður eru alltaf sveiflur í sjávarútvegi eins og dæmi frá í vetur sýna þegar leyfðar voru loðnuveiðar eftir nokkura ára hlé en þær gengu vel og sala loðnuafurða sömuleiðis.
Vegna sveiflna og stöðugra breytinga í sjávarútvegi verða eigendur og stjórnendur að horfa til langs tíma. Í áratugi hefur það verið þaulhugsuð stefna Brims að kyrrsetja í félaginu stóran hluta hagnaðar á ári hverju til að styrkja og auka við eigið fé félagsins. Pannig hefur fyrirtækið á hverjum tíma getað fjárfest til frekari uppyggingar, t.d. í öflugum skipum, mannauð, aflaheimildum, nýrri tækni og tækjabúnaði og nýsköpun til að takast á við breytta tíma.
Á þessu ári eru það nýlegar fjárfestingar í ísfisktogurum og hátæknivinnslu í Norðurgarði sem skila auknum verðmætum í botnfiski og á uppsjávarsviði félagsins skilaði öflugt sölustarf dótturfélags Brims í Japan góðum verðum fyrir loðnuafurðir á þessu ári en Brim fjárfesti í félaginu fyrir tveimur árum.
Brim birtir nú í fyrsta sinn umhverfisuppgjör fyrir fyrri hluta ársins en félagín hefur skuldbundið sig til að draga úr losun í samræmi við Parísarsáttmála Sameinuðu þjóðanna frá 2015. Í uppgjörinu kemur fram að okkur miðar á þeirri leið en enn er langt í land. Með reglulegu uppgjóri eykst agi sem er nauðsynlegur til að ná árangri í baráttunni gegin loftlagsvánni. Í árs- og samfélagsskýrslu félagsins birtist uppgjör fyrir ófjárhagslega þætti í starfi félagsins sem áhrif hafa á umhverfi og samfélag. Þar á meðal upplýsingar um eignarhald Brims í öðrum félögum og sést þar að félagín fjárfestir í fyrirtækjum tengdum sjávarútvegi.
Efnahagur Brims er traustur í dag, eigið fé félagsins nemur 50,7 milljörðum íslenskra króna. Það gerir félaginu kleift að fjárfesta þegar tækifæri gefast og eiga möguleika á fjármögnum á hagstæðum kjörum. Til þess að Brim verði áfram burðarstoð í atvinnulífi landsmanna verður fyrirtækið að vera öflugt og eiga fjármagn til að fjárfesta.“
Brim hf. uppgjör 2F 2021
BRIM
Fréttatilkynning
Samþykkt árshlutareiknings
Stjórn Brims hf. 26. ágúst 2021. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alpjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards). Helstu lykiltölur rekstrar og efnahags eru:
LYKILTÖLUR REKSTRAR
| EUR'000 | 2F 2021 | 2F 2020 | % | 1H 2021 | 1H 2020 | % |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur | 128.742 | 60.341 | 200.079 | 133.091 | ||
| Kostnaðarverð seldra vara | (107.453) | (50.500) | (159.683) | (113.547) | ||
| Par af afskriftir | 4.178 | 3.713 | 8.313 | 7.079 | ||
| Vergur hagnaður | 21.289 | 9.841 | 116,3% | 40.396 | 19.544 | 106,7% |
| Útflutningskostnaður | (2.448) | (1.328) | (3.896) | (3.583) | ||
| Annar rekstrarkostnaður | (2.447) | (2.848) | (5.080) | (5.952) | ||
| Rekstrarhagnaður | 16.394 | 5.665 | 189,4% | 31.420 | 10.009 | 213,9% |
| Fjáreignat ekjur | 1.050 | (19) | 2.033 | 162 | ||
| Fjármagnsgjöld | (2.127) | (1.869) | (3.966) | (3.393) | ||
| Gengismunur | (78) | 979 | (383) | (823) | ||
| Áhrif hlutdeildarf élaga | 152 | 570 | 565 | 224 | ||
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 15.391 | 5.326 | 189,0% | 29.669 | 6.179 | 380,2% |
| Tekjuskattur | (3.080) | (549) | (6.442) | (920) | ||
| Aflögð starfsemi | 0 | 242 | 0 | 190 | ||
| Hagnaður tímabilsins | 12.311 | 5.019 | 145,3% | 23.227 | 5.449 | 326,3% |
| EBITDA | 20.572 | 9.396 | 118,9% | 39.733 | 17.105 | 132,3% |
| EBITDA% | 16,0% | 15,6% | 19,9% | 12,9% |
LYKILTÖLUR EFNAHAGS
| EUR'000 | 30.06.2021 | 31.12.2020 | 30.06.2020 |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | 641.522 | 647.862 | 622.706 |
| Veltufjármunir | 120.429 | 117.126 | 126.248 |
| Eignir samtals | 761.951 | 764.988 | 748.954 |
| Eigið fé | 346.349 | 337.470 | 315.511 |
| Langtímaskuldir | 318.949 | 325.852 | 338.242 |
| Skammtímaskuldir | 96.653 | 101.666 | 95.201 |
| Eigið fé og skuldir | 761.951 | 764.988 | 748.954 |
| Veltufjárhlutfall | 1,25 | 1,15 | 1,33 |
| Eiginfjárhlutfall | 45% | 44% | 42% |
| Nettó vaxtaberandi skuldir | 271.655 | 298.588 | 290.261 |
Brim hf. uppgjör 2F 2021
BRIM
Fréttatilkynning
SJÖDSTREYMI
| EUR'000 | 2021 | 2020 |
|---|---|---|
| 1.1-30.6 | 1.1-30.6 | |
| Handbært fé få reksri | 43.441 | 18.863 |
| Fjärfestingarhrevingar | (992) | (40.758) |
| Fjármögnunarhrevingar | (33.253) | (4.065) |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | 9.196 | (25.960) |
| Handbært fé flutt á eignir og aflagða st arrest semi til sölu | 0 | (673) |
| Handbært fé i upphaf i timabils | 21.596 | 53.497 |
| Handbært fé i lok timabilsins | 30.792 | 26.864 |
Kynningarfundur þann 26. ágúst 2021
Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 26. ágúst og hefst kl. 16:30, þar mun Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynna uppgjör fjórðungsins.
Fundurinn verður eingöngu rafrænn og hægt verður að fylgjast með fundinum á www.brim.is/streymi. Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið fjá[email protected]. Spurningum verður svarað í lok fundar.
Brim hf.
Brim er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem starfar í sátt við samfélagið og umhverfið. Við stuðlum að verðmætasköpun með vöruþróun, tæknilausnum og öflugu starfsfólki. Við tryggjum með ábyrgum veiðum og vinnslu, þar sem áhersla er á sjálfbærni og nýsköpun, að sjávarútvegur verði áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Við leitum allra leiða til að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið hvort sem er á sjó eða í landi.
Fjárhagsdagatal
Priðji ársfjórðungur 18. nóvember 2021
Fjórði ársfjórðungur 24. febrúar 2022
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri samfélagsábyrgðar, nýsköpunar og fjárfestatengsla í síma 781-8282 eða fjá[email protected]