Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Brim Seafood Interim / Quarterly Report 2021

Nov 18, 2021

2192_rns_2021-11-18_2ebc2e6c-c73e-4249-bd07-c363dec440d9.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Brim hf. uppgjör 3F 2021

BRIM

Fréttatilkynning

Stjórn Brims hf. hefur sambykkt árshlutareikning samstæðunnar fyrir fyrstu 9 mánuði ársins 2021. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla.

Góður og stöðugur rekstur á þriðja ársfjörðungi

  • Rekstur ársfjörðungsins var stöðugur og sambærilegur við sama ársfjörung síðasta árs. Salan nam 91,6 milljónum evra í samanburði við 80,7 milljónir evra á sama tíma 2020.
  • EBITDA fjörðungsins lækkar lítillega milli tímabila eða um 0,8 milljónir evra.
  • Hagnaður fjörðungsins eykst milli ára og er 19,9 milljónir evra samanborið við 16,0 milljónir evra á þriðja fjörðungi ársins 2020. Grunnrekstur er í takt við sama tímabil 2020 en munurinn liggur í söluhagnaði skips.
  • Rekstur botnfisksviðs gekk vel á fjörðungnum, góð aflabrögð hafa verið í botnfiski og staða á mörkuðum góð. Á sama tíma var sóknin erfið á makrílvertíðinni og einnig hófust síldveiðar seinna en á árinu 2020.
  • Efnahagur félagsins er sterkur. Eignir eru um 772 milljónir evra og eiginfjárhlutfallið 47%.

LYKILTÖLUR REKSTRAR

EUR '000 3F 2021 3F 2020 % 9M 2021 9M 2020 %
Seldar vörur 91.557 80.679 291.636 213.770
Kostnaðarverð seldra vara (65.670) (53.154) (225.353) (166.702)
Vergur hagnaður 25.887 27.525 -6,0% 66.283 47.068 40,8%
Aðrar tekjur 2.983 0 2.983 0
Útflutningskostnaður (1.866) (1.632) (5.762) (5.215)
Annar rekstrarkostnaður (2.290) (2.962) (7.370) (8.914)
Rekstrarhagnaður 24.714 22.931 7,8% 56.134 32.939 70,4%
Fjáreignatekjur 987 1.021 3.020 1.183
Fjármagnsgjöld (1.818) (2.212) (5.784) (5.605)
Gengismunur 231 (1.190) (152) (2.013)
Áhrif hlutdeildarfélaga 86 (152) 651 72
Hagnaður fyrir tekjuskatt 24.200 20.398 19% 53.869 26.576 103%
Tekjuskattur (4.334) (4.633) (10.776) (5.553)
Aflögð starfsemi 0 282 0 472
Hagnaður tímabilsins 19.866 16.047 24% 43.093 21.495 100%
EBITDA 25.778 26.593 -3% 65.511 43.698 50%
EBITDA% 28,2% 33,0% 22,5% 20,4%

Brim hf. uppgjör 3F 2021

BRIM

Fréttatilkynning

LYKILTÖLUR EFNAHAGS

EUR '000 30.09.2021 31.12.2020 30.09.2020
Fastafjármunir 636.939 647.862 637.915
Veltufjármunir 135.388 117.126 139.126
Eignir samtals 772.327 764.988 777.041
Eigið fé 366.602 337.470 330.153
Langtímaskuldir 315.891 325.852 335.041
Skammtímaskuldir 89.834 101.666 111.847
Eigið fé og skuldir 772.327 764.988 777.041
Veltufjárhlutfall 1,51 1,15 1,24
Eiginfjárhlutfall 47% 44% 42%
Nettó vaxtaberandi skuldir 248.786 298.588 298.076

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri:

„Afkoma fjórðungsins er góð og ég er ánægður með hversu stöðugur reksturinn er orðinn. Undanfarin misseri höfum við markvisst fjárfest í botnfiskaflaheimildum og nýrri tækni sem er að skila árangri í dag. Eins sjáum við að fjárfestingar í sólufélögunum styrkja viðskiptalíkanið okkar.

Loðnuvertið er framundan og er þetta mesta magn loðnukvóta frá árinu 2003. Við þessa aukningu í úthlutun fór Brim yfir hámarkshlutdeild í þorskígildum.

Fjárhagsdagatal

Fjórði ársfjórðungur 24. febrúar 2022

Kynningarfundur og nánari upplýsingar

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 18. nóvember næstkomandi og hefst kl. 16:30, þar mun Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynna uppgjör fjórðungsins.

Fundurinn verður eingöngu rafrænn og hægt verður að fylgjast með fundinum á www.brim.is/streymi. Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið fjá[email protected]. Spurningum verður svarað í lok fundar.

Nánari upplýsingar veitir Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri samfélagsábyrgðar, nýsköpunar og fjárfestatengsla í síma 781-8282 eða fjá[email protected]

Brim hf.

Brim er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem starfar í sátt við samfélagið og umhverfið. Við stuðlum að verðmætasköpun með vöruþróun, tæknilausnum og öflugu starfsfólki. Við tryggjum með ábyrgum veiðum og vinnslu, þar sem áhersla er á sjálfðærni og nýsköpun, að sjávarútvegur


Brim hf. uppgjör 3F 2021

BRIM

Fréttatilkynning

verði áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Við leitum allra leiða til að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið hvort sem er á sjó eða í landi.