AI assistant
Brim Seafood — Governance Information 2020
Mar 9, 2020
2192_rns_2020-03-09_6065ab2e-0e16-4d8f-91df-f434b6dfe3ea.pdf
Governance Information
Open in viewerOpens in your device viewer
TILNEFNINGARNEFNDIR SKRÁDRA FÉLAGA Á ÍSLANDI.:
Með vísan til samþykktar stjórnar Brims hf. um að fela undirrituðum að taka til skoðunar ofangreint mál og taka saman um það skýrslu er hér að neðan samantekt um málið.
Eins og flestum er kunnugt er í leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja mælst til þess að innan skráðra félaga sé komið á fót tilnefningarnefndum. Mælst er til þess að hluthafafundur skipi tilnefningarnefnd eða ákveði hvernig nefndir skuli skipuð.
Meirihluti skráðra félaga á Íslandi hafa þegar komið á fót tilnefningarnefnd. Þær heyra ýmist beint undir hluthafafund eða eru undirnefnd stjórnar. Algengast er að tilnefningarnefndir séu skipaðar þremur einstaklingum þar sem tveir eru kjörnir á aðalfundi og sá þriðji sé skipaður af stjórn. Þó þekkist það einnig að tilnefningarnefndir séu skipaðar að fullu af stjórn og starfi sem undirnefndir stjórnar.
Heyrst hafa gagnrýnisraddir varðandi það fyrirkomulag að stjórnarmenn komi að skipun tilnefningarnefnda og að nefndarmenn komi úr þeirra hópi. Virðist í þessu ljósi vera nokkur tilhneiging í þá átt að auka sjálfstæði nefndanna gagnvart stjórn.
Á sama tíma hefur verið gagnrýnt að í einhverjum tilvikum virðist litið á nefndirnar sem stjórnsýslueiningar sem hafi það hlutverk að auglýsa eftir og taka við framboðum í stað þess að þær séu beinlínis virkjaðar til að leita að frambærilegum frambjóðendum og velja úr þeim og stilla stilla upp í samræmi við mat nefndarinnar á hæfi hvers og eins, svo sem menntun, reynslu og að teknu tilliti til annarra þátta sem máli skipta, t.d. kynjahlutfalls ofl.
Ljóst er af ofangreindu að skoðanir eru skiptar bæði um hlutverk og ágæti tilnefningarnefnda. Í samtölum við hluthafa, stjórnarmenn og stjórnendur skráðra félaga með tilnefningarnefndir um reynsluna hingað til hefur það neikvæða gjarnan verið dregið fram, en fyrirkomulagið á augljóslega eftir að slípast og þróast.
Tillaga mín, eftir framangreinda yfirferð og ítarlega skoðun málsins, að samþykkt stjórnar er neðangreint:
Stjórn Brims hefur fjallað á það á sínum vettvangi hvort rétt sé að koma á tilnefningarnefnd innan félagsins og hefur stjórnir í því sambandi fylgst með umræðunni um tilnefningarnefndir og einnig hefur málið verið skoðað og rætt við bæði hluthafa, stjórnarmenn og stjórnendur skráðra fyrirtækja, sem og við sérfræðinga/ráðgjafa um málefnöð. Það er niðurstaða stjórnarinnar að halda áfram að að vega og meta kosti og galla tilnefningarnefnda sem og að fylgjast með framkvæmdinni hjá öðrum skráðum félögum. Því telur stjórn ekki rétt á þessum tímapunkti að leggja til við hluthafafund að koma á fót tilnefningarnefnd.
Reykjavík, 25.02.2020.
Kristján Þ. Davíðsson