Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Brim Seafood Earnings Release 2021

Aug 26, 2021

2192_rns_2021-08-26_d0d35e38-d9d2-4281-b048-bdcb3f546ee4.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Uppgjör Brims á öðrum ársfjórðungi 2021

Uppgjör Brims á öðrum ársfjórðungi 2021

Stöðugur rekstur á fyrri hluta árs

  • Tekjur Brims á öðrum ársfjórðungi voru 128,7 milljónir evra í samanburði við 60,3 milljónir evra á sama tíma 2020. EBITDA fjórðungsins jókst úr 9,4 milljónum evra árið 2020 í 20,6 milljónir evra á þessu ári.
  • Meginskýringar á auknum tekjum og bættri afkomu eru góð loðnuvertíð, auknar veiðar ísfiskstogara og vinnsla á botnfiski í endurnýjaðri fiskvinnslu félagsins við Norðugarð í Reykjavík og aukin sala dótturfélags í Japan á loðnuafurðum.
  • Tekjur á fyrri hluta ársins námu ríflega 200 milljónum evra í samanburði við 133 milljónir evra í fyrra. EBITDA framlegð fyrstu sex mánaða ársins var 39,7 milljónir evra samanborið við 17,1 milljónir evra á fyrri hluta ársins 2020.
  • Efnahagur félagsins er traustur. Eignir eru um 762 milljónir evra og eigið fé 346,3 milljónir evra.
  • Brim birtir nú fyrst fyrirtækja í sjávarútvegi umhverfisuppgjör fyrir fyrri árshelming og kemur þar fram að bein losun félagsins nemur 33 þúsund CO2 ígildistonnum á fyrri hluta ársins í samanburði við rúm 68 þúsund allt árið í fyrra og að hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa er 20,4% af orkunotkun á fyrstu sex mánuðum ársins en var 21% í fyrra.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri:

„Ég er ánægður með uppgjörið og afkomuna á fyrri hluta ársins. Rekstur félagsins er stöðugur þrátt fyrir óróa á heimsmörkuðum. Engu að síður eru alltaf sveiflur í sjávarútvegi eins og dæmi frá í vetur sýna þegar leyfðar voru loðnuveiðar eftir nokkura ára hlé en þær gengu vel og sala loðnuafurða sömuleiðis.

Vegna sveiflna og stöðugra breytinga í sjávarútvegi verða eigendur og stjórnendur að horfa til langs tíma. Í áratugi hefur það verið þaulhugsuð stefna Brims að kyrrsetja í félaginu stóran hluta hagnaðar á ári hverju til að styrkja og auka við eigið fé félagsins. Þannig hefur fyrirtækið á hverjum tíma getað fjárfest til frekari uppbyggingar, t.d. í öflugum skipum, mannauð, aflaheimildum, nýrri tækni og tækjabúnaði og nýsköpun til að takast á við breytta tíma.

Á þessu ári eru það nýlegar fjárfestingar í ísfisktogurum og hátæknivinnslu í Norðurgarði sem skila auknum verðmætum í botnfiski og á uppsjávarsviði félagsins skilaði öflugt sölustarf dótturfélags Brims í Japan góðum verðum fyrir loðnuafurðir á þessu ári en Brim fjárfesti í félaginu fyrir tveimur árum.

Brim birtir nú í fyrsta sinn umhverfisuppgjör fyrir fyrri hluta ársins en félagið hefur skuldbundið sig til að draga úr losun í samræmi við Parísarsáttmála Sameinuðu þjóðanna frá 2015. Í uppgjörinu kemur fram að okkur miðar á þeirri leið en enn er langt í land. Með reglulegu uppgjöri eykst agi sem er nauðsynlegur til að ná árangri í baráttunni gegn loftlagsvánni. Í árs- og samfélagsskýrslu félagsins birtist uppgjör fyrir ófjárhagslega þætti í starfi félagsins sem áhrif hafa á umhverfi og samfélag. Þar á meðal upplýsingar um eignarhald Brims í öðrum félögum og sést þar að félagið fjárfestir í fyrirtækjum tengdum sjávarútvegi.

Efnahagur Brims er traustur í dag, eigið fé félagsins nemur 50,7 milljörðum íslenskra króna. Það gerir félaginu kleift að fjárfesta þegar tækifæri gefast og eiga möguleika á fjármögnum á hagstæðum kjörum. Til þess að Brim verði áfram burðarstoð í atvinnulífi landsmanna verður fyrirtækið að vera öflugt og eiga fjármagn til að fjárfesta.“

Samþykkt árshlutareiknings

Stjórn Brims hf. 26. ágúst 2021. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards).

Kynningarfundur þann 26. ágúst 2021

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 26. ágúst og hefst kl. 16:30, þar mun Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynna uppgjör fjórðungsins.

Fundurinn verður eingöngu rafrænn og hægt verður að fylgjast með fundinum á www.brim.is/streymi. Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið [email protected]. Spurningum verður svarað í lok fundar.

Brim hf.

Brim er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem starfar í sátt við samfélagið og umhverfið. Við stuðlum að verðmætasköpun með vöruþróun, tæknilausnum og öflugu starfsfólki. Við tryggjum með ábyrgum veiðum og vinnslu, þar sem áhersla er á sjálfbærni og nýsköpun, að sjávarútvegur verði áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Við leitum allra leiða til að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið hvort sem er á sjó eða í landi.

Fjárhagsdagatal

Þriðji ársfjórðungur                 18. nóvember 2021

Fjórði ársfjórðungur                24. febrúar 2022

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri samfélagsábyrgðar, nýsköpunar og fjárfestatengsla í síma 781-8282 eða [email protected]

Viðhengi: