Earnings Release • Nov 18, 2021
Earnings Release
Open in ViewerOpens in native device viewer
Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2021
Stjórn Brims hf. hefur samþykkt árshlutareikning samstæðunnar fyrir fyrstu 9 mánuði ársins 2021. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla.
Góður og stöðugur rekstur á þriðja ársfjórðungi
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri:
„Afkoma fjórðungsins er góð og ég er ánægður með hversu stöðugur reksturinn er orðinn. Undanfarin misseri höfum við markvisst fjárfest í botnfisksaflaheimildum og nýrri tækni sem er að skila árangri í dag. Eins sjáum við að fjárfestingar í sölufélögunum styrkja viðskiptalíkanið okkar.
Loðnuvertíð er framundan og er þetta mesta magn loðnukvóta frá árinu 2003. Við þessa aukningu í úthlutun fór Brim yfir hámarkshlutdeild í þorskígildum.
Fjárhagsdagatal
Fjórði ársfjórðungur 24. febrúar 2022
Kynningarfundur og nánari upplýsingar
Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 18. nóvember næstkomandi og hefst kl. 16:30, þar mun Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynna uppgjör fjórðungsins.
Fundurinn verður eingöngu rafrænn og hægt verður að fylgjast með fundinum á www.brim.is/streymi. Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið [email protected]. Spurningum verður svarað í lok fundar.
Nánari upplýsingar veitir Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri samfélagsábyrgðar, nýsköpunar og fjárfestatengsla í síma 781-8282 eða [email protected]
Brim hf.
Brim er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem starfar í sátt við samfélagið og umhverfið. Við stuðlum að verðmætasköpun með vöruþróun, tæknilausnum og öflugu starfsfólki. Við tryggjum með ábyrgum veiðum og vinnslu, þar sem áhersla er á sjálfbærni og nýsköpun, að sjávarútvegur verði áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Við leitum allra leiða til að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið hvort sem er á sjó eða í landi.

Viðhengi:
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.