AGM Information • Mar 15, 2023
AGM Information
Open in ViewerOpens in native device viewer
Endanleg dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Brims hf. 23. mars 2023
Aðalfundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 23. mars 2023 með rafrænum hætti auk þess sem hluthöfum gefst kostur á að mæta til fundarins en fundurinn fer fram í matsal félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík.
Ekki eru breytingar á áður birtri dagskrá eða tillögum.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig tímanlega á vefsíðunni www.lumiconnect.com/meeting/brim2023 eigi síðar en kl. 17.00 þann 22. mars, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.
Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram með rafrænum hætti í gegnum Lumi AGM. Hluthöfum stendur jafnframt til boða að kjósa um dagskrármál með skriflegum hætti eða veita umboð. Á vefsíðu félagsins má finna viðeigandi eyðublöð. Eigi síðar en einum degi fyrir aðalfund þarf beiðni hluthafa um að kjósa með skriflegum hætti að berast félaginu.
Fundurinn fer fram á íslensku og hefst klukkan 17:00.
Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn má finna á vefsíðu félagsins https://www.brim.is/fjarfestar/adalfundur
Dagskrá og tillögur stjórnar ásamt nánari upplýsingum má finna í meðfylgjandi viðhengi.

Viðhengi:
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.