AGM Information • Aug 22, 2023
AGM Information
Open in ViewerOpens in native device viewer
Brim: Kynningarfundur fyrir uppgjör annars ársfjórðungs fimmtudaginn 24. ágúst.
Brim hf. mun birta uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2023 eftir lokun markaða fimmtudaginn 24. ágúst.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 24. ágúst klukkan 16:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1.
Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynnir uppgjör fjórðungsins og svarar spurningum.
Fundinum verður jafnframt streymt og hægt verður að fylgjast með honum á www.brim.is/streymi. Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið [email protected]. Aðsendum spurningum verður svarað í lok fundar.
Nánari upplýsingar veitir Inga Jóna Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 858-1170 eða [email protected]

Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.