AI assistant
Brim Seafood — AGM Information 2021
Mar 3, 2021
2192_rns_2021-03-03_bfcd067e-db97-4282-9e5b-cf827d0bf767.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
DAGSKRÁ OG TILLÖGUR FYRIR ADALFUND BRIMS
BRIM
Aðalfundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 25. mars 2021
á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.
Gætt verður að gildandi fyrirvörum stjórnvalda um fjöldatakmarkanir, nálægðarmörk og sóttvarnir, en jafnframt verður gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum.
Fundurinn fer fram á íslensku og hefst klukkan 17:00.
DAGSKRÁ
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina síðastliðið ár.
- Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.
- Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu.
- Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðenda.
- Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin bréfum.
- Önnur mál, löglega upp borin.
Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram með rafrænum hætti í gegnum Lumi AGM
TILLÖGUR
TILLAGA UM GREIDSLU ARDS
„Samkvæmt stefnu félagsins sem kynnt var í skráningarlýsingu félagsins árið 2014 leggur stjórn félagsins til að arðgreiðsla á árinu 2021 vegna rekstrarársins 2020 verði 1,2 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 2.305 millj. kr. (um 14,8 millj. evra á lokagengi ársins 2020), eða 2,4% af markaðsvirði hlutafjár í lok árs 2020. Arðurinn verði greiddur 30. apríl 2021. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 25. mars 2021 og arðleysisdagur því 26. mars 2021.
Arðsréttindadagur er 29. mars 2021. Arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags.“
Hluthöfum mun standa til boða að fá arðgreiðslu í evrum, sem mun byggja á ISK/EUR miðgengi Seðlabanka Íslands eins og það er tilgreint við lok dags síðasta dag fyrir arðgreiðsludag, eða 29. apríl 2021. Hluthafar sem hyggjast óska eftir arðgreiðslu í evrum skulu tilkynna félaginu það fyrir lok dags 10. apríl 2021 á þar til gert eyðublað, sem er aðgengilegt á vefsvæði félagsins www.brim.is/brim/fjarfestar/adalfundur2021
TILLAGA FÉLAGSSTJÓRNAR UM STARFSKJARASTEFNU
„Stjórn félagsins leggur til óbreytta starfskjarastefnu“.
TILLAGA UM PÓKNUN TIL STJÓRNARMANNA
„Stjórn félagsins leggur til að þóknun næsta árs til stjórnarmanna verði 310.000 kr. á mánuði, varaformaður fái einn og hálfan hlut og formaður tvöfaldan hlut.“
KOSNING ENDURSKODANDA
Stjórn félagsins leggur til að Deloitte ehf. verði kjörir endurskoðandi félagsins.
TILLAGA UM AÐ STJÓRN FÁI HEIMILD TIL KAUPA Á EIGIN HLUTUM
„Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrrilliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin bréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.“