Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Brim Seafood AGM Information 2020

Mar 24, 2020

2192_rns_2020-03-24_07be556e-80bf-42ff-bb7d-3360917971ea.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Brim hf.: Upplýsingar um breytta framkvæmd aðalfundar

Brim hf.: Upplýsingar um breytta framkvæmd aðalfundar

Aðalfundur Brims hf. verður haldinn þriðjudaginn 31. mars kl. 17:00.

Þar sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnarlæknis, að takmarka samkomur vegna útbreiðslu Covid-19 veirunnar hefur verið lagt bann við því að halda fjölmennan fund. Því hafa forsendur breyst verulega frá því að aðalfundur Brims hf. var auglýstur og ekki lengur tækt að safna hluthöfum saman til fundar á einn stað. Í ljósi þess og ábendingum frá hluthöfum félagsins beinir stjórnin því til hluthafa að mæta ekki á aðalfundinn heldur kjósa fyrirfram skriflega um tillögur fundarins og fela fundarstjóra umboð til að kjósa á fundinum fyrir sína hönd. Gert er ráð fyrir að einungis mæti á fundarstað starfsmenn fundarins, forstjóri og stjórnarformaður. 

Skrifleg kosning

Eyðublað fyrir skriflega kosningu og leiðbeiningar er að finna á heimasíðu félagsins: https://www.brim.is/brim/fjarfestar/adalfundur2020/

Skulu hluthafar senda útfyllt eyðublöð á netfangið: [email protected] og verður tekið við þeim þar til fundurinn hefst kl. 17:00 á aðalfundardaginn.

Skriflegt umboð

Jafnframt má senda þeim sem koma til með að sitja fundinn umboð með saman hætti og greinir hér að framan. Eyðublað og leiðbeiningar um það er að finna á heimasíðu félagsins:

https://www.brim.is/brim/fjarfestar/adalfundur2020/

Frestur hluthafa til að senda félaginu umboð og skrifleg atkvæði er til kl. 17:00 á aðalfundardaginn á netfangið: [email protected]

Fundurinn verður sendur út gegnum heimasíðu félagsins: https://www.brim.is/brim/fjarfestar/adalfundur2020/ Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst. Aðgangsorð inná fundinn verður sennt við móttöku atkvæðaseðils með umboði.

Nánari upplýsingar veita:

Inga Jóna Friðgeirsdóttir, fjármálastjóri í síma 858-1170 eða á netfangið [email protected]

Jón Þór Andrésson í síma 858-1030 eða á netfangið [email protected]

Reykjavík, 24. mars 2020

Stjórn Brims hf.

Viðhengi: