AI assistant
Brim Seafood — AGM Information 2019
Nov 20, 2019
2192_rns_2019-11-20_27a0270b-3c67-4d50-a115-ce82698f2489.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Hluthafafundur Brims hf. pann 12. desember 2019
Hluthafafundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. desember 2019 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík og hefst hann klukkan 17:00. Fundurinn fer fram á íslensku.
Dagskrá
- Tillaga um að staðfesta ákvörðun stjórnar um kaup félagsins á öllu hlutafé í sjávarútvegsfyrirtækjunum, Fiskvinnslunni Kambi hf. og Grábrók ehf.
- Önnur mál.
1. Tillaga um kaup á sjávarútvegsfyrirtækjunum Fiskvinnslunni Kambi og Grábrók
Þann 20. október 2019 var undirritaður kaupsamningur um kaup Brims á tveimur sjávarútvegsfyrirtækjum, Fiskvinnslunni Kambi hf. sem rekur útgerð og fiskvinnslu í Hafnarfirði og útgerðarfélaginu Grábrók ehf. sem einnig gerir út frá Hafnarfirði. Kaupverðið nemur samtals 3.084 milljónum króna og verður greitt að hluta með hlutabréfum í Brimi hf. sem eru í eigu félagsins og nema um 1,1% af heildarhlutafé Brims að verðmæti um 835 milljónir króna. Kaupin voru gerð með fyrirvara um samþykki stjórnar og síðar hluthafafundar. Stjórn samþykkti kaupin fyrir sitt leyti 14. nóvember 2019, eins og komið hefur fram í tilkynningu til Kauphallar.
Tillagan:
„Hluthafafundur í Brim hf. sem haldinn er 12. desember 2019 staðfestir með vísan til 95. gr. a, laga nr. 2/1995 um hlutafélög, ákvörðun stjórnar félagsins frá 14.11. 2019. um kaup á öllu hlutafé í Fiskvinnslunni Kambi hf. og Grábrók ehf.
Kaupverðið nemur samtals 3.084 milljónum króna og verður greitt að hluta með hlutabréfum í Brimi hf. sem eru í eigu félagsins og nema um 1,1% af heildarhlutafé Brims hf. að verðmæti um 835 milljónir króna.“
Greinargerð:
Brim hf. hefur að markmiði að styrkjast á sviði útgerðar og fiskvinnslu samhliða því að félagið er að styrkja stöðu sína í markaðssetningu og sölu á afurðum á erlendum mörkuðum. Hin keyptu félög eru með heimildir sem eru um 2.700 þorskígildi að stæðstum hluta þorskur, eiga fiskvinnslu í Hafnarfirði og tvo krókabáta. Með kaupunum bætir félagið við sig veiðiheimildum sem styrkja fjárfestingu félagsins í tæknivæddri fiskvinnslu í landi.
Aðrar upplýsingar
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar á netfangið [email protected] með það löngum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins. Pannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en kl. 17:00 mánudaginn 2. desember 2019, p.e. 10 dögum fyrir fundinn.
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta:
a) veitt õðrum skriflegt umboð
b) greitt atkvæði skriflega
Peim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Dagskrá, tillögur og öll skjöl sem lögð verða fyrir fundinn eru hluthöfum tiltæk á íslensku, á heimasíðu félagsins og á skrifstofu félagsins á venjulegum skrifstofutíma. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn.
Kynning á fyrirtækjunum verður birt 10 dögum fyrir fundinn.
Allar nánari upplýsingar um fundinn má finna á vefsíðu félagsins www.brim.is
Stjórn Brims hf.