Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Arion Banki Share Issue/Capital Change 2021

Feb 9, 2021

2189_rns_2021-02-09_785905b4-48c1-44f8-b48f-e96005708044.html

Share Issue/Capital Change

Open in viewer

Opens in your device viewer

Arion banki: Kaupréttaráætlun starfsfólks

Arion banki: Kaupréttaráætlun starfsfólks

Á aðalfundi Arion banka hf. þann 17. mars 2020 var stjórn bankans veitt heimild til að samþykkja kaupréttaráætlun byggða á 10. gr. laga nr. 90/2003, og gera kaupréttarsamninga við starfsfólk bankans um kaup á hlutum í bankanum. Nú hefur verið gengið frá kaupréttarsamningum við starfsfólk í samræmi við samþykkta kaupréttaáætlun. Kaupréttur samkvæmt áætluninni nær til allra fastráðinna starfsmanna bankans og er markmið áætlunarinnar að samþætta hagsmuni starfsfólks við langtímahagsmuni bankans.

Samkvæmt áætluninni öðlast hver kaupréttarhafi rétt til að kaupa hluti í Arion banka fyrir að hámarki 600.000 krónur einu sinni á ári í fimm ár, fyrst í febrúar 2022 og síðast í febrúar 2026. Kaupverð hluta er vegið meðalverð í viðskiptum með hlutabréf félagsins tíu viðskiptadaga fyrir samningsdag, sem er 3. febrúar 2021, eða 95,5 krónur hver hlutur.

Alls gerðu 628 starfsmenn kaupréttarsamning sem ná til allt að 3.945.550 hluta á ári miðað við 100% nýtingu kauprétta.

Kaupréttaráætlun þessi var staðfest af ríkisskattstjóra 15. desember 2020 og er í samræmi við 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.

Kaupréttaráætlun Arion banka hf. er meðfylgjandi.

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:


Theodórs Friðbertssonar, forstöðumanns fjárfestatengsla Arion banka, [email protected], s. 856 6760 eða Haraldar Guðna Eiðssonar, forstöðumanns samskiptasviðs, [email protected], s. 856 7108.

Viðhengi: