Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Arion Banki Remuneration Information 2021

Feb 9, 2021

2189_rns_2021-02-09_351340f3-e497-486b-9c1f-2226bf77f299.pdf

Remuneration Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

SÜDZESÁG TÁRSASÁG
KAUPRÉTTARÁÆTLUN
ARION BANKA HF.

1


HAVFORSKNINGSINSTITUTTET

Stjórn Arion banka hf., kt. 581008-0150, Borgartúni 19, Reykjavík, gerir svofellda áætlun um kauprétt starfsmanna bankans á hlutum í bankanum.

Inngangur

Á aðalfundi Arion banka hinn 17. mars 2020 var stjórn bankans veitt heimild til að sambykkja kaupréttaráætlun byggða á 10. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og bankanum heimilað að gera kaupréttarsamninga við starfsmenn félagsins um kauð á hlutum í bankanum að fjárhæð allt að 600.000 kr. að markaðsvirði á ári hverju næstu fimm ár.

1. gr. Markmið

Markmið kaupréttaráætlunar þessarar er að sambætta hagsmuni starfsmanna við langtímamarkmið bankans.

Með samningum gerðum á grundvelli kaupréttaráætlunarinnar gefst starfmönnum bankans kostur á að kaupa árlega á næstu fimm árum hluti í bankanum á fyrir fram skilgreindu verði.

2. gr. Kaupréttarhafar

Kaupréttur á hlutum í Arion banka hf. samkvæmt áætlun þessari nær til allra fastra starfsmanna bankans.

Fastir starfsmenn Arion banka teljast þeir starfsmenn sem hafa verið fastráðnir, einkum með ótímabundnum ráðningarsamningi við bankann, og hafa skuldbundið sig til starfa fyrir bankann gegni launum úr hendi hans.

Áætlun þessi nær ekki til verktaka sem starfa fyrir bankann og starfsmanna sem eru lausráðnir til skamms tíma. Þá nær áætlunin ekki til þeirra starfsmanna bankans sem vegna annarra regina mega ekki eiga hluti í bankanum eða stunda viðskipti með þá. Áætlunin nær ekki til starfsmanna dótturfélaga bankans.

Starfsmenn sem ráðast til bankans í föst störf eftir gerð þessarar áætlunar skulu öðlast kauprétt. Síkur ávinningur hefst frá og með næsta innlausnardegi eftir að hið fasta ráðningarsamband hófst, þar til áætlun þessi rennur skeið sitt á enda eða þar til starfsmaðurinn lýkur störfum en þá gildir 4. gr. þessarar áætlunar.

Kaupréttaráætlun þessi verður kynnt væntanlegum kaupréttarhöfum á sérstökum fundi eða með fjarfundarkynningu. Þeirri almennu kynningu verður fylgt eftir með tölvupósti til hvers starfsmanns með ítarlegri fræðslu og boði um gerð kaupréttarsamnings.

Samningur um kauprétt verður gerður við hvern kaupréttarhafa, í tveimur samhljóða eintökum og mun hvor samningsaðila halda sínu eintakinu. Gert er ráð fyrir að samninga megi undirrita rafrænt.


HAVFORSKNINGSINSTITUTTET

3. gr. Réttindi og skyldur

Hlutum keyptum á grundvelli áæt lunarinnar fylgja öll sömu réttindi og öðrum hlutum í bankanum.

Í kaupréttarsamningum, gerðum á grundvelli áæt lunar þessarar, verður kveðið á um að hið skemmsta tólf mánuðir skuli líða frá gerð kaupréttarsamnings og þar til kaupréttur er fyrst nýttur.

Í kaupréttarsamningum, gerðum á grundvelli áæt lunar þessarar, verður kveðið á um að kaupréttarhafi skuldbindi sig til að eiga keypta hluti í tvö ár hið skemmsta til þess að kaupréttarhafi geti nýtt skattalegar ívilnanir er felast í áætlun þessari, sbr. 10. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Í kaupréttarsamningum gerðum á grundvelli áæt lunar þessarar verður kveðið á um að kaupréttur sé ekki framseljanlegur. Sama gildir um veðsetningu kaupréttar, en veðsetning er óheimil.

4. gr. Ávinnsla kauprétta

Kaupréttur hvers kaupréttarhafa ávinnst í fimm áföngum á fimm árum frá gerð kaupréttarsamnings á grundvelli áæt lunar þessarar.

  • Þann 28. febrúar 2022 hefur starfsmaður áunnið sér rétt til kaupa á hlutafé fyrir allt að kr. 600.000 og að lágmarki kr. 10.000.
  • Þann 28. febrúar 2023 hefur starfsmaður áunnið sér rétt til kaupa á hlutafé fyrir allt að kr. 600.000 og að lágmarki kr. 10.000.
  • Þann 28. febrúar 2024 hefur starfsmaður áunnið sér rétt til kaupa á hlutafé fyrir allt að kr. 600.000 og að lágmarki kr. 10.000.
  • Þann 28. febrúar 2025 hefur starfsmaður áunnið sér rétt til kaupa á hlutafé fyrir allt að kr. 600.000 og að lágmarki kr. 10.000.
  • Þann 28. febrúar 2026 hefur starfsmaður áunnið sér rétt til kaupa á hlutafé fyrir allt að kr. 600.000 og að lágmarki kr. 10.000.

Ávinnsla kaupréttar er bundin störfum kaupréttarhafa fyrir bankann. Láti kaupréttarhafi af störfum hjá bankanum fellur kaupréttur hans niður. Ef starfslok ber að vegna aldurs, andláts kaupréttarhafa eða vegna þess að kaupréttarhafi verður óvinnufær sökum heilsubrests skal kaupréttarhafi hafa hlutfallslegan áunnin kauprétt og skal hann eða dánarbú hans, á tilkynningartímabili skv. 7. gr. tilkynna hvort kaupréttur verði nýttur.

Hver starfsmaður getur að hámarki keypt hluti á grundvelli áæt lunar þessarar fyrir kr. 600.000 á ári, miðað við skilgreint kaupverð, sbr. ákvæði 7. tölul. 10. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Þannig skal starfsmanni ekki heimilt að safna upp eða fresta innlausn áunnins kaupréttar, heldur fellur óinnleystur kaupréttur niður.

5. gr. Kaupverð

Kaupverð í kaupréttarsamningum sem kunna að verða gerðir á grundvelli áæt lunar þessarar skal ávallt vera í samræmi við reglur 4. tl. 10. gr., sbr. 9. gr. laga nr. 90/2003.


HAVFORSKNINGSINSTITUTTET

Hlutir í bankanum eru skráðir til viðskipta í kauphöll. Kaupverð hluta samkvæmt kaupréttaráætlun þessari skal vera vegið meðalverð í viðskiptum með hluti í bankanum tíu heila viðskiptadaga fyrir samningsdag.

Nýti starfsmaður kauprétt sinn skal hlutafé staðgreitt með reiðufé.

Komi til þess að hlutafé Arion banka hf. verði lækkað niður fyrir það nafnverð sem það er við gerð áætlunar þessarar skal kaupréttarverð hækka um sama hlutfall, óháð því í hvaða tilgangi lækkun hlutafjár kann að fara fram.

6. gr. Staðfesting ríkisskattstjóra

Kaupréttaráætlun þessi verður borin undir ríkisskattstjóra til staðfestingar, sbr. ákvæði 8. tölul. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, áður en henni verður hrundið í framkvæmd og er hún þannig háð slíku samþykki.

7. gr. Innlausn og afhending hluta

Kaupréttarhafar skulu tilkynna um nýtingu kaupréttar hvers árs innan tíu (10) daga frá birtingu ársuppgjørs bankans fyrir viðkomandi ár frá og með árinu 2022. Skal stjórn þá í framhaldi tilkynningar afhenda hlutafé, annað tveggja, með útgáfu nýs hlutafjár eða afhendingar á eigir hlutum, gegir greiðslu innlausnarverðs.

Til fullnustu á skyldum sínum samkvæmt samningum gerðum á grundvelli áætlunar þessarar mun félagið gefa út nýtt hlutafé eða afhenda eigir hlutafé.

8. gr. Heimild til niðurfellingar áætlunar

Stjórn bankans skal, mæli ríkar ástæður með því, vera heimilt að fella niður áætlun þessa í heild og gildir þá sama um öll réttindi og skyldur sem af henni má leiða. Heimild stjórnar skal virkjast í eftirtöldum tilfellum:

a) Vegna samruna félags utan samstæðu.
b) Komi til þess að verulegur hluti samstæðunnar verði seldur.
c) Komi til endurskipulagningar fjárhags, afturköllunar starfsleyfis, skipunar bráðabirgðastjórnar eða slítameðferðar bankans.
d) Í öðrum tilfellum, mæli ríkar ástæður með því.

9. gr. Fyrirvari um heimildir hluthafa vegna útgáfu nýrra hluta

Áætlun þessi og kaupréttarsamningar og skuldbindingar bankans gagnvart kaupréttarhöfum skulu ávallt vera bundnar því skilyrði að bankinn geti afhent hlutafé til að efna samninga, annað tveggja með útgáfu nýrra hluta eða afhendingu eigir hluta.


RÍKISSKATTSTJÓRA
5/9

10. gr. Sambykkt áætlunar

KPMG Law ehf. er falið að leggja áætlunina fyrir ríkisskattstjóra til sambykktar, skv. 8. tölul. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Reykjavík, 1. desember 2020

img-0.jpeg

Í umboði stjórnar
Benedikt Gíslason, bankastjóri

5


A

F.h. Arion banka er staðfest að samningsform þetta verður notað við gerð kaupréttarsamninga á grunni kaupréttaráætlunar sem stjórn Arion banka hefur samþykkt í kjólfar aðalfundar bankans.

f.h. Arion banka hf.
Benedikt Gíslason, bankastjóri

ARION BANKI HF.

OG

[•]

SAMNINGUR UM KAUPRÉTT
Á HLUTUM Í ARION BANKA HF.


HASSKATTSSTJÖGY

Arion banki hf., kt. 581008-0150, Borgartúni 19, Reykjavík (hér eftir nefnt „bankinn“) og [•], kt. [•], [•] (hér eftir nefndur „kaupréttarhafi“ eða „starfsmaður“) gera með sér eftirfarandi

KAUPRÉTTARSAMNING

1. Inngangur

Samningur þessi er gerður á grundvelli kaupréttaráætlunar sem stjórn Arion banka hf. samþykkti á fundi sinum þann 25. nóvember 2020. Kaupréttaráætlunin var staðfest af ríkisskattsstjóra þann []. Kaupréttaráætlunin skal á hverjum tíma vera aðgeng leg kaupréttarhöfum.

2. Ávinnsla kaupréttar

2.1. Kaupréttarhafa er heimilt að kaupa hlutafé í félaginu fyrir allt að kr. 3.000.000 á fimm ára tímabili, þó að hámarki kr. 600.000 á ári. Fjöldi hluta leiðir af framangreindu hámarkskaupverði og kaupgengi hluta, sbr. gr. 4.1.

2.2. Engin skylda hvílir á kaupréttarhafa til að innleysa áunninn kauprétt sinn auk þess sem heimilt skal að nýta hann í heild eða að hluta.

2.3. Kaupréttarhafi ávinnur sér kauprétt sem hér segir:

2.3.1. Þann 28. febrúar 2022 (innlausnardagur) hefur starfsmaður áunnið sér rétt til kaupa á hlutafé fyrir allt að kr. 600.000 en að lágmarki k. 10.000.

2.3.2. Þann 28. febrúar 2023 (innlausnardagur) hefur starfsmaður áunnið sér rétt til kaupa á hlutafé fyrir allt að kr. 600.000 en að lágmarki k. 10.000.

2.3.3. Þann 28. febrúar 2024 (innlausnardagur) hefur starfsmaður áunnið sér rétt til kaupa á hlutafé fyrir allt að kr. 600.000 en að lágmarki k. 10.000.

2.3.4. Þann 28. febrúar 2025 (innlausnardagur) hefur starfsmaður áunnið sér rétt til kaupa á hlutafé fyrir allt að kr. 600.000 en að lágmarki k. 10.000.

2.3.5. Þann 28. febrúar 2026 (innlausnardagur) hefur starfsmaður áunnið sér rétt til kaupa á hlutafé fyrir allt að kr. 600.000 en að lágmarki k. 10.000.

3. Innlausn kaupréttar

3.1. Samkvæmt ákvæði 3. tölul. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skulu að lágmarki líða 12 mánuðir frá gerð samnings um kauprétt þar til kaupréttur er nýttur.

3.2. Kjósi kaupréttarhafi að nýta áunninn kauprétt skal hann tilkynna það skriflega til bankans innan tíu (10) daga frá birtingu ársuppgjørs bankans fyrir næstliðið ár frá og með árinu 2022. Í tilkynningu skal tilgreina innlausnardag og hve mikinn hluta áunnins kaupréttar kaupréttarhafi kýs að nýta á innlausnardegi.

3.3. Óheimilt er að færa eða fresta innlausn kauprétta og skal einungis heimilt að nýta þá á þeim tíma er gr. 2.3.1 – 2.3.5. kveða á um. Pannig getur kaupréttarhafi að hámarki keypt hluti á grundvelli samnings þessa fyrir kr. 600.000 á ári, miðað við skilgreint kaupverð, sbr. ákvæði 7. tl. 10. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

3.4. Prátt fyrir framangreint kann starfsmanni að vera óheimilt að nýta kauprétt sinn, t.d. vegna ákvæða innhjerjareglna. Í slíkum tilvikum skal nýting heimil strax og slíkt bann hættir að eiga við um viðkomandi starfsmann.


HAVFORSKNINGSINSTITUTTET

4. Kaupverð og greiðsla þess

4.1. Kaupverð hvers hlutar byggir á reglum sem finna má í 10. gr. laga nr. 90/2003, og skal vera hið sama og vegið meðalverð í viðskiptum með hluti í bankanum tíu heila viðskiptadaga fyrir samningsdag, sbr. og 4. tl. 1. mgr. 10. gr. laganna.

4.2. Kaupverð innleystra hluta skal greitt í reiðufé á innlausnardegi gegn afhendingu hlutanna.

4.3. Stjórn bankans skal í framhaldi tilkynningar kaupréttarhafa um innlausn afhenda hlutafé, annað tveggja með útgáfu nýs hlutafjár eða afhendingu á eigin hlutum.

5. Eignarhaldstími

Kaupréttarhafi er ekki skuldbundinn til að eiga hlutina í sérstakan tíma að kaupum liðnum, en innherjareglur kunna þó að koma í veg fyrir sölu. Varðandi skattalegar skyldur vísast til 7. gr. þessa samnings.

6. Tengsl kaupréttar og starfs

6.1. Kaupréttur samkvæmt samningi þessum er bundinn við starf kaupréttarhafa í þágu bankans. Láti kaupréttarhafi af störfum hjá bankanum á samningstímanum fellur áunninn en öinnleystur kaupréttur niður.

6.2. Ákvæði 6.1. á ekki við starfslok sem stafa af því að kaupréttarhafi lætur af störfum vegna aldurs, andláts eða verður óvinnufær sökum heilsubrests. Í slíkum tilfellum hefur kaupréttarhafi eða dánarbú hans hlutfallslegan áunnin kauprétt og skal hann eða dánarbú hans, á tilkynningartímabili, skv. gr. 3.2, tilkynna hvort kaupréttur verði nýttur og að hve miklu leyti.

6.3. Starfslok eða fráfall kaupréttarhafa hafa ekki áhrif á þegar innleystan kauprétt.

7. Skattalegar skyldur

7.1. Samningur þessi byggist á kaupréttaráætlun bankans sem hlotið hefur staðfestingu ríkisskattstjóra samkvæmt 8. tölul. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Í því felst að ekki myndast skattskyldar tekjur við innlausn kaupréttar, enda þótt gangverð hluta í bankanum á innlausnardegi kunni að vera hærra en kaupverð. Selji kaupréttarhafi hluti keypta samkvæmt samningi þessum, að liðnum tveggja ára lágmarks eignarhaldstíma, skattleggst söluhagnaður, þ.e. mismunur söluverðs og lægra kaupverðs, sem fjármagnstekjur. Slíkur söluhagnaður manns, sem ber ótakmarkaða skattskyldu hér á landi, sætir ekki afdrætti skatts í staðgreirðslu. Skattlagning söluhagnaðarins fer fram eftir á byggt á grundvelli álagningar vegna skattskila. Selji kaupréttarhafi hlutina áður en tveggja ára lágmarks eignarhaldstíma er náð skal greiða tekjuskatt af söluhagnaði vegna kaupréttar.

7.2. Bankinn ber ekki ábyrgð á þeim skattalegu afleiðingum sem nýting starfsmanns á kauprétti, eða hvers kyns ráðstafanir á kaupréttinum eða hinum keyptu hlutum, kann að hafa í för með sér.

8. Réttarstaða kaupréttarhafa

8.1. Þeim hlutum í bankanum sem kaupréttarhafi kaupir samkvæmt samningi þessum fylgja sömu réttindi og skyldur og öðrum hlutum í bankanum.

8.2. Hlutir keyptir samkvæmt samningi þessum veita kaupréttarhafa ekki réttarstöðu hluthafa í bankanum fyrr en þeir hafa að fullu verið greiddir og afhentir. Afhending hluta fer fram með skráningu í hlutaskrá bankans.


HAVFORSKNINGSINSTITUTTET

8.3. Kaupréttur samkvæmt samningi þessum er ekki framseljanlegur til þriðja aðila.

9. Réttarstaða bankans og fyrirvari um skuldbindingu hans

9.1. Kaupréttur samkvæmt samningi þessum takmarkar hvorki rétt bankans til hækkunar eða lækkunar hlutafjár, né til skiptingar eða samruna við annað félag/félög, enda þótt slíkar ráðstafanir kunni að hafa áhrif á kauprétt.

9.2. Kaupréttur samkvæmt samningi þessum takmarkar ekki á nokkurn hátt rétt bankans til að gera nauðsynlegar breytingar á starfsemi sinni, svo sem til sölu eigna, fjárfestinga eða lántöku.

9.3. Kaupréttaráætlun og kaupréttarsamningar þessi auk skuldbindinga bankans gagnvart kaupréttarhöfum skulu ávallt vera bundnar því skilyrði að bankinn geti afhent hlutafé til að efna samninga, annað hvort þannig að bankinn hafi á hverjum tíma gilda heimild til hluthafafundar til að gefa út nýtt hlutafé án þess að forkaupsréttarhafar nýti rétt sinn eða þannig að bankinn hafi yfir að ráða eigin hlutum til afhendingar til kaupréttarhafa.

10. Úrlausn ágreinings

10.1. Um samning þennan gilda íslensk lög.

10.2. Rísi ágreiningur milli samningsaðila um efni samnings þessa eða efndir hans, sem þeir ná ekki að jafna sín í milli, skal ágreiningurinn lagður í úrskurð gerðardóms. Gerðardómur skal skipaður þremur mönnum. Hvor samningsaðila um sig skal tilnefna einn gerðarmann, en leitað skal til Héraðsdóms Reykjavíkur eftir tilnefningu þriðja gerðardómsmannsins, sem jafnframt skal vera formaður gerðardómsins.

10.3. Um störf gerðardóms fer eftir ákvæðum laga nr. 53/1989, um samningsbundna gerðardóma.

11. Annað

11.1. Engar breytingar verða gerðar á samningi þessum nema með skriflegum hætti og samþykki beggja samningsaðila. Breytingar á samningi sem víkja frá þeirri kaupréttaráætlun, sem samningurinn byggir á og staðfest hefur verið af ríkisskattstjóra, kunna að breyta skattalegum skyldum, sbr. ákvæði 7. greinar hér að framan.

11.2. Samningur þessi er gerður í tveimur samhljóða eintökum og heldur sínu eintakinu hvor samningsaðila.

Reykjavík, [+]

F.h. Arion banka hf.:

[+]

Skv. umboði stjórnar

Kaupréttarhafi:

[+]