Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Arion Banki Proxy Solicitation & Information Statement 2025

Jan 3, 2025

2189_rns_2025-01-03_0092cd8f-f43b-4760-884c-4dc7f7d20124.html

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Tilkynning frá tilnefningarnefnd Arion banka

Tilkynning frá tilnefningarnefnd Arion banka

Samkvæmt fjárhagsdagatali Arion banka fyrir árið 2025, verður aðalfundur bankans haldinn þann 12. mars 2025 kl. 16.00.

Tilnefningarnefnd Arion banka gegnir ráðgefandi hlutverki vegna kjörs til stjórnar bankans og leggur fram rökstudda tillögu á þeim hluthafafundum þar sem kjör stjórnarmanna er á dagskrá, varðandi þá frambjóðendur sem tilnefningarnefndin telur best til þess fallna að taka sæti í stjórn bankans. Nánari upplýsingar um hlutverk tilnefningarnefndarinnar má finna í starfsreglum nefndarinnar, sem eru aðgengilegar hér.

Tilnefningarnefnd Arion banka óskar nú eftir framboðum til stjórnar Arion banka. Frestur til þess að skila inn umsókn til tilnefningarnefndarinnar rennur út þann 31. janúar 2025 kl. 16.00, en tilnefningarnefndin mun ekki leggja mat á framboð sem berast eftir þann tíma. Fyrirhugað er að tilnefningarnefndin muni birta tillögu sína eigi síðar en 21. febrúar 2025.

Frambjóðendur sem vilja skila inn framboði til tilnefningarnefndarinnar eru beðnir um að fylla út sérstakt eyðublað, sem er aðgengilegt hér, og senda til nefndarinnar á netfangið [email protected].

Athugið að störf tilnefningarnefndarinnar og skilafrestur umsókna til hennar takmarka ekki rétt frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar bankans áður en almennur framboðsfrestur rennur út, sem er fimm (5) dögum fyrir aðalfund bankans, þ.e. þann 7. mars 2025 kl. 16.00.

Viðhengi: